Akureyri


Akureyri - 17.05.2012, Side 14

Akureyri - 17.05.2012, Side 14
14 17. MAÍ 2012 BETRI TÍÐ MEÐ BLÓM Í HAGA Það er talað um fátt annað þessa dagana en Ólaf Ragnar og Veðrið, sem dunið hefur yfir íslendinga síðustu daga. Bæði eiga þau það sameiginlegt að koma alltaf jafn mikið á óvart. Ekki þó alveg á sama hátt og þruma úr heiðskíru lofti. Eins og Ólafur hefur veðrið verið nokku skikkanlegt upp á síðkastið. Engar óvæntar uppákomur. Enda er að koma vor og vorin hafa tilhneigingu til að vera hvorki né. Ekkert spes, en gefa fyrirheit um sólríka sumardrykki og almennan léttleika tilverunnar. Að baki er langvarandi leiðindaveður, sem hefur hægt og bítandi gert íbúa landsins þreytta og arga. Margra mánaða stöðug leiðindi með stöku uppþoti, þótt þennan veturinn hafi það hvorki verið ísbjörn eða ísbjörg (icesave) sem hafi markað spor í snjóinn. Janúar og febrúar eru almennt leiðinlegustu mánuðirnir. Síðustu metrarnir í maraþoninu. Kjörtímabili Ólafs alveg að ljúka. Snjórinn sem eitt sinn var krúttlegur og jafnvel hressandi er orðinn markaður sóti og alveg rosalega þreytandi. Bíl- arnir komast hvorki áfram né aftur á bak. Svo hækkar sól á lofti. Snjórinn bráðnar af götunum og allt er með kyrrum kjörum. Lítið að gerast. Garðhúsgögnin dregin út úr dimmum kytrum. Stuttbuxurnar mátaðar og gefa nákvæma mælingu á þeim vetrarforða sem safnast hefur. Sumarið er í nánd. Ekki komið. En handan við hornið. Þá gerist það. Við vissum það. Það hefur tilhneigingu til að henda þegar kjálkinn slaknar aðeins og hugur- inn er farinn annað. Þegar allt virðist stefna í nokkuð ljúfa átt. Þá kemur það. Hretið! Og kjálkinn herpist. Skemmtiskelfir! Leiðinlegi gaurinn er víst ennþá í partýinu. Garðhúsgögnum er aftur ýtt inn í ystu myrkur. Stuttbuxurnar fara aftur inn í skáp og það er hlaupið út í búð eftir stóru súkkulaðistykki. Hvítt teppi leggst yfir landið allt. Og það er hvorki krúttlegt né hressandi heldur eins og ein- hver hafi fært markið í maraþonhlaupinu. Það skal þó hafa í huga að þetta er bara hret. Veturinn getur ekki ver- ið endalaus og hretið er merki um að hann tekur brátt enda. Endanlega. Það er að koma dagur og leiðinlegi gaurinn í partýinu verður einhvertíman að fara heim. Ætli það sé ekki best að beita æðruleysi. Því bráðum kemur betri tíð – með blóm í haga. ANDARTAK MEÐ ARNDÍSI Kraftbílar ehf. // Draupnisgötu 6 // 603 Akureyri // Sími 464 0000 // kraftbilar@kraftbilar.is www.kraftbilar.is Hefur þú prófað smurþjónustu Kraftbíla og ? LÉTTSKOÐUN Bjóðum upp á ókeypis léttskoðun sem er góður kostur til að leita hagkvæmra leiða varðandi viðhald á bílnum þínum. Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi Sími 580 5800 • www.landvelar.is Slönguhjól og kefli Fjaður inndraganleg - plast, stál eða ryðfrí umgjörð Ýmsar slönguútfærslur fyrir vatn, loft og olíur Borgarstjóri Denver heimsækir Akureyri Á miðvikudaginn í síðustu viku fengu Akureyringar góða gesti alla leið frá Denverborg í Coloradofylki Banda- ríkjanna. Það voru borgarstjórinn í Denver, Michael Hancock, ásamt borg- arfulltrúum, fulltrúum ferðamálayfir- valda og sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Með í för voru einnig þrír af stjórnendum Icelandair. Tilgangurinn með komu borgarstjórans til Akureyr- ar var undirbúa vinabæjasamband Denver og Akureyrar. Fólkið kom til Íslands með fyrsta beina fluginu milli Denver og Keflavík- ur en Icelandair áætlar fljúga þá leið fjórum sinnum í viku árið um kring. Vonast er til að með innanlands- flugi milli Akureyrar og Keflavíkur muni fjöldi ferðamanna aukast á Norðurlandi en algengt hefur verið að bandarískir ferðamenn sem koma með flugi til Keflavíkur ferðist lítið út fyrir Suðurlandið. Eiríkur Björn Björgvinsson bæj- arstjóri og starfsfólk Akureyrarstofu tóku á móti hópnum og buðu þau hópnum í kynnisferð til Hríseyjar. Á leiðinni var bláskelsræktun skoðuð en þegar út í Hrísey var komið var fólkinu ekið í traktorskerru um eyjuna og endað í húsi Hákarla-Jörundar þar sem bláskel var snædd. Á bakaleiðinni var komið við í Sundlaug Akureyrar þar sem gestir spígsporuðu um bakka laugarinnar og dáðust að lúxusinum sem heita vatnið okkar býður uppá. Ferðin endaði svo í Hofi þar sem Eiríkur Björn og Michael Hancock skrifuðu undir viljayfirlýsingu um vinabæjasamstarf en í því felst að báð- ir bæirnir munu setja á stofn undir- búningsnefndir sem eiga að tryggja góð samskipti ásamt fjármunum og vinnuframlagi til verkefnisins. Þessar nefndir munu svo hittast að ári liðnu til að ræða kosti þess að stofna til vinabæjarsambands. a HÓPURINN Í SKOÐUNARFERÐ um Hrísey á traktorskerru Daníel Starrason MICHAEL HANCOCK VAR mjög hrifin af Grýlu í göngugötunni Daníel Starrason

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.