Akureyri


Akureyri - 30.04.2014, Blaðsíða 2

Akureyri - 30.04.2014, Blaðsíða 2
2 16. tölublað 4. árgangur 30. apríl 2014 GRÁSLEPPA Kaupum ferska óskorna Grásleppu um allt land. Tökum einnig verkuð hrogn til útutnings. Fiskislóð 34, 101 Reykjavík Sími 520-7302 (Ragnar) Sæluvikan stendur yfir Sæluvika, lista- og menningarhá- tíð í Skagafirði, var sett sunnu- daginn 27. apríl sl. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar sem jafnframt var haldin atvinnulífssýning. Stendur Sæluvikan til sunnudags- ins 4. maí. Sæluvika Skagfirðinga er ein elsta menningarhátíð landsins en upphaf hennar má rekja til ársins 1874 þegar svokallaðir sýslufundir hófust. Skemmtanir voru jafnan haldnir í tengslum við þessa fundi og tóku þær smám saman á sig þá mynd sem Sæluvikan er í dag. Í Sæluvikunni nú er að finna fjöl- marga lista- og menningarviðburði, s.s. tónlistarveislur, myndlistasýningar, bílabíó, kirkjukvöld, leiksýningar, knattspyrnumót, kvikmyndasýningar, hestasýningar og fjölmargt fleira. a Unga fólkið er bílafólk Nánast 100% ánægja er með þá ákvörðun að hafa frítt í strætó á Akureyri. Þetta sýna niðurstöður úr könnun sem Háskólabrú Keilis á Akureyri vann. 97% af svarend- um játuðu spurningu hvort það ætti að vera ókeypis í strætó á Akureyri. Um 57% svarenda segjast nýta sér strætó innanbæjar samkvæmt könnuninni. Aðeins lítil brot Ak- ureyringa fer hins vegar í strætó út fyrir Akureyri, t.d. milli Akureyrar og Reykjavíkur. 18% hafa nýtt sér þá þjónustu en 82% ekki. Þá var einnig spurt um viðhorf bæjarbúa til aksturs bifreiða í hinni svokölluðu göngugötu í miðbæn- um. Þar reyndust skoðanir nokkuð skiptar. Fleiri vilja þó aksturshöft en að bílar aki um göngugötuna allan ársins hring. Gefnir voru þrír afstöðumöguleikar, að loka götunni fyrir bílum þegar mikill mannfjöldi er í bænum, hafa hana alveg lokaða nema aðeins vegna vörulosunar eða skerða alls ekki bílaumferð. Fleiri hallast að því að hafa einhver höft á bílaumferð í göngugötunni en viðhorf ungmenna skera sig nokkuð úr, því meirihluti fólks undir tvítugu styður bílaumferð í göngugötunni. -BÞ Tilraun mistekist nú þegar Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að sú tilraun þegar verkafólk sættist á hóflegar kjarabætur í vetur í von um litla verðbólgu og aukinn stöðugleika hafi mistek- ist. Verkalýðshreyfingin hafi samið í þeirri trú að allir hópar þjóðfé- lagsins færu þessa leið. Kjarasamningar sem gerðir hafi verið síðan við aðra hópa sýni að meiri peningar virðist til skiptanna. Ferlið kalli á endurskoðun og aðgerðir þegar samningar losna í febrúar næstkomandi. „Þessi tilraun er þegar orðin skökk, ég tel að hún hafi mis- tekist,“ segir Björn. Hann krefst leiðréttingar fyrir verkafólk. „Ég vil fá stærri hluta af kökunni eftir eitt ár fyrir mína félagsmenn.“ Baráttudagur verka- fólks, 1. maí, er á morgun. Björn segir þann dag mikla hátíð í sínum huga þótt menn gangi missátt- ir til leiks ár hvert eftir því hve stórir sigrar hafi unnist. Það ber til tíðinda að endurvakinn verður úti- fundur á Ráðhústorgi í kjölfar kröfugöngunnar klukkan 2 eftir áralangt hlé, að fundi loknum verður boðið upp á kaffi í Hofi. „Ég held við séum alltaf að vinna einhverja sigra þótt þeir séu misstórir, fyrsti maí er alltaf okkar uppskeruhátíð þótt stundum sé maður ekki sáttur við hvernig gæðunum er skipt.“ -BÞ Eyfirðingum þakkað Fundur landeigenda á fyrirhug- aðri Blöndulínu 3, sem haldinn var á Mælifellsá í Skagafirði þann 19. apríl 2014 hefur sent frá sér álykt- un þar sem fundarmenn „óska landsmönnum öllum til hamingju með að jarðstrengir eru nú metnir sem valkostur við raflínulagnir um Sprengisand“. Lýst er yfir stuðningi við verndun hálendisins og loftlínu um Sprengisand mótmælt. Í ályktun fundar landeigenda segir: „Um árabil hafa íbúar á leið Blöndulínu 3 barist gegn þrýstingi Landsnets um lagningu háspennu- línu og krafist þess að metin verði á hlutlausan hátt lagning jarðstrengja á þeirri leið sem Íslandi öllu. Jafn- framt er þess krafist að stjórnvöld leggi niður aðflutningsgjöld af jarð- strengjum til samræmis við loftlínur.“ Eyfirðingum og eyfirskum sveit- arstjórnarmönnum er „þakkað frumkvæði og framsýn stefna um lagningu jarðstrengja, landsmönnum og náttúru Íslands til hagsbóta og er skorað á sveitarstjórn Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar að fylgja þeirra frumkvæði“ eins og segir í álykt- uninni. Fundurinn sendir baráttukveðj- ur til landeigenda á Suðurnesjum „sem nú er hótað eignarnámi í þágu stóriðju“. a BJÖRN SNÆBJÖRNS- SON: FYRSTI maí er alltaf okkar uppskeru- hátíð þótt stundum sé maður ekki sáttur við hvernig gæðunum er skipt. VIÐHORF SVARENDA TIL bílaumferðar í Hafnarstræti eftir aldri. Aðeins tvítugir og yngri eru meira áfram um bílaumferð í göngugöt- unni en aksturshöft. Kannski finnst unga fólkinu gaman að skella sér á miðbæjarrúntinn í kjölfar bílprófs eða þá að loftmengun og hávaði eru því ekki ofarlega í huga? EINRÓMA ÁNÆGJA ER með frían strætó á Akureyri eins og sést á þessari mynd. ÞESSI MYND SÝNIR að fái nýta sér strætó út fyrir Akureyri. “Hefurðu nýtt þér strætó sem gengur út fyrir Akureyri t.d. Reykja- víkur, Dalvíkur og svo framv.“ Ný stjórn Byggðastofnunar Sigurður Ingi Jóhannesson hefur skipað nýja stjórn Byggðastofnunar. Þóroddur Bjarnason verður áfram formaður stjórnar. Nýja stjórnin er þannig: » Þóroddur Bjarnason stjórnarformaður, Akureyri » Einar Einarsson varaform Skagafj » Valdimar Hafsteinsson Hveragerði » Ásthildur Sturludóttir Patreksfirði » Karl Björnsson - SÍS Reykjavík » Oddný María Gunnarsdóttir Blönduósi » Sigríður Jóhannesdóttir Þistilfirði ÞÓRODDUR BJARNASON

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.