Akureyri


Akureyri - 30.04.2014, Blaðsíða 10

Akureyri - 30.04.2014, Blaðsíða 10
10 16. tölublað 4. árgangur 30. apríl 2014 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00 F A S TU S _E _0 5. 03 .1 4 Ráðstefnu- og fundarstóll Tryggðu þér og gestum þínum öruggt sæti, með vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði. Nú með 20% afslætti. Verð kr. 14.000,- m.vsk. meðan birgðir endast Veit á vandaða lausn 20% afsláttur Til styrktar Halli og fjölskyldu Styrktartónleikarnir verða haldnir í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 8. maí kl. 20:30. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að vegna alvarlegra veikinda Halls Heimissonar, íbúa á Akureyri, hafi hópur listamanna ákveðið að efna til tónleika og fjársöfnunar og styrkja Hall og fjölskyldu hans á erfiðum tímum. Hljómsveit valinkunnra listamanna mun leika en auk hennar koma fram eftirtaldir: Pálmi Gunnarsson Jónas Sig. Eyþór Ingi Jónsson og Elvý Hreinsdóttir Hymnódía Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson Bjarni Hafþór Helgason Óskar Pétursson Aðgangseyrir á tónleikana verður kr. 2.000 eða eftir vilja hvers og eins. Vinsamlegast athugið að ekki verður posi á staðnum. Opnaður hefur verið söfnunarreikningur í Íslandsbanka: Reikningsnúmer 565-14-403903 og kennitala 050961-3469 a Heyrst hefur HEYRST HEFUR að aukinn titringur sé að færast í hina pólitísku baráttu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar eftir rúmar fjórar vikur. Meðan fólk beið þess misspennt að Guðni Ágústsson segði af eða á um eigin innkomu í borgarmálin fyrir framsókn varð þessi vísa til norðan heiða: Guðni er kominn að kveða burt andúð að kveða burt leiðindi, það getur hann. Hann hefur sagt mér að senn komi samúð, sólskin í Framsókn og svartsýnisbann. Hann hefur sagt mér til syndanna minna, við sofum of mikið og vinnum ekki hót. Hann muni Framsóknarstefnuna kynna og vonglaðir tökum nú kosningum mót. (I.Sv.) HEYRST HEFUR að afar erfitt hafi reynst að fá forráðamenn Leikfélags Akureyrar til að tjá sig um þá erfiðu stöðu sem uppi er innan leikfélagsins. Hefur heyrst að forráðamenn stofnunarinnar hafi líkt og týnt símunum sínum nánast allir sem einn þegar fróðleiksfúsir blaðamenn reyndu að slíta upp fréttir og viðbrögð í síðustu viku en allt hafi komið fyrir ekki. Hefur heyrst að flestir hlutaðeigandi hafi nú fundið aftur símana sína – enda dugar ekki að stinga höfðinu í sandinn... Vorfagnaður karla- kórs Eyjafjarðar Karlakór Eyjafjarðar setur upp kórleikritið „Frásögn úr Frónsskíri“ eftir stjórnanda sinn, Petru Björk Pálsdóttur. Sagan gerist á óræðum en sögu- legum tíma og segir frá óðalsbónda nokkrum sem langar að koma of- dekraðri dóttur sinni út. Vonbiðl- arnir streyma að en fá misjafnar móttökur, hundurinn á óðalinu er ástsjúkur, sölumaður sigins fisks lendir í hremmingum, brytinn og ekillinn eru ómissandi í alla staði, sannleiksspegillinn er heldur sann- leiksfús og ýmislegt getur nú gerst í svona ævintýri sem ekki verður látið uppi hér. Karlakórinn syngur sín lög hvar þau eiga við í sýningunni og sögu- maður afar greinargóður kveður fast að. Kórmenn fara sjálfir með hlutverkin og hefur Skúli Gautason leikstýrt hópnum. Hljómsveit kórsins leikur með en hana skipa: Valmar Väljaots, Haukur Ingólfsson, Birgir Karlsson og Árni Ketill Friðriksson. Sýningar verða sem hér segir: föstudaginn 2.maí, laugardaginn 3. maí, föstudaginn 9.maí og sunnu- daginn 11. maí og hefjast sýningar allar kl. 20 í Laugarborg í Eyja- fjarðarsveit. Miðaverð 2500 kr, frítt fyrir 14 ára og yngri. Mikil gleði og mikill söngur og allir velkomnir, að sögn Petru Bjarkar Pálsdóttur. a Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu Vegna námsleyfis er staða framkvæmdastjóra Akureyrarstofu laus til umsóknar frá 15. ágúst 2014 - 31. júlí 2015. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum. STARFSSVIÐ Akureyrarstofa er skrifstofa atvinnu-, ferða-, menningar-, markaðs- og kynn- ingarmála hjá Akureyrarbæ. Á Akur- eyrarstofu starfa verkefnisstjórar saman í teymi, hver með ábyrgð á afmörk- uðum sviðum í starfseminni. Fram- kvæmdastjóri er yfirmaður þeirra og for- stöðumanna þeirra menningarstofnana sem reknar eru af Akureyrarbæ. Rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akureyri heyrir einnig undir starfsemina. Akureyrarstofa er tengiliður við stofnanir sem fjármagnaðar eru af miklu leyti af Akureyrarbæ og tengjast mála- flokkum hennar: Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Leikfélag Akureyrar, Mark- aðsskrifstofa Norðurlands, Menningar- félagið Hof, Minjasafnið á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Stjórn Akureyrarstofu er nefndin sem fer með málaflokkana og er fram- kvæmdastjóri Akureyrarstofu jafnframt framkvæmdastjóri hennar. Hann undir- býr fundi hennar og fylgir ákvörðunum hennar eftir. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar www. akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt Umsóknarfrestur er til 10. maí 2014 AÐSTÆÐUR Í HLÍÐARFJALLI voru með allra besta móti á Andrésarleikunum í síðustu viku, nægur snjór og söguleg veðurblíða. Á myndinni sést Aron Máni Sveinsson renna sér fimlega niður brekkurnar. Þórhallur Jónsson í Pedromyndum

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.