Akureyri


Akureyri - 30.04.2014, Page 12

Akureyri - 30.04.2014, Page 12
12 16. tölublað 4. árgangur 30. apríl 2014 AÐSEND GREIN DR. VIÐAR HALLDÓRSSON Á íþróttahreyfingin á Íslandi að líða fyrir íþróttastarfið í Armeníu? Svar til Sveins Arnarsonar um forvarnargildi íþrótta. Í síðasta tölublaði birtist grein eftir Svein Arnarsson þar sem hann veltir upp spurningum um hvernig forvarnarfé nýtist best. Í greininni setur Sveinn fram efasemdir um forvarnargildi íþróttastarfs er varðar reykingar og neyslu áfengis. Rök- semdafærsla hans byggir á því að þar sem ekki er hægt að sýna fram á forvarnargildi íþróttastarfs í öllum löndum, samkvæmt ESPAD könnun meðal nemenda í 10. bekk árið 2007, þá þurfi að setja varnagla við því að um raunverulegt forvarnargildi sé að ræða og þar með að settir séu peningar til íþróttafélaga á Íslandi með þetta markmið að leiðarljósi. Þessu er haldið fram í greininni þrátt fyrir að sú könnun sem vitnað er til sýni eindregið fram á forvarnar- gildi skipulags íþróttastarfs hér á landi hvað varðar reykingar og neyslu áfengis. Reyndar kemur fram í greininni að “Íslendingar standa sig best” af þeim 40 löndum sem þátt tóku í könnuninni hvað þetta varðar. Staðreyndin er í raun sú að könnunin sem vitnað er til styður niðurstöður kannana og rannsókna síðustu 20 ára sem hafa sýnt fram á ótvírætt forvarnargildi skipulags íþróttastarfs hér á landi. Ég ætla því hér að reyna að svara nokkrum þeim spurningum sem Sveinn setur fram í grein sinni í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvort réttlætanlegt geti talist að peningar skattgreiðenda fari að einhverju leyti til íþrótta í nafni forvarna. Íþróttir eru félagslegt fyrirbæri Í upphafi spyr Sveinn hvers vegna skipulagt íþróttastarf hefur ekki sama forvarnargildi í ýmsum öðrum löndum (eins og til dæmis í Armeníu, Portúgal og Rúmeníu) og á Íslandi – eins og fram kemur í ESPAD könnuninni. Í því samhengi þurfum við að átta okkur á því að íþróttir eru félagslegt fyrirbæri og því fé- lagslega ákvarðaðar og skilyrtar. Það er ekkert í eðli sjálfs athæfisins, til dæmis að kasta bolta í körfu, sem hefur forvarnargildi er varðar reyk- ingar eða neyslu vímuefna. Mestu máli skiptir í hvers konar umgjörð, samhengi og tilgangi athæfið á sér stað. Þetta hafa innlendar rann- sóknir ítrekað sýnt. Til dæmis sýna rannsóknir að þau ungmenni sem stunda skipulagt íþróttastarf, innan íþróttafélaga hér á landi, eru ólík- legri til að reykja og nota vímuefni en þau ungmenni sem ekki stunda skipulagt íþróttastarf. Á móti eru þau ungmenni sem stunda eingöngu óskipulagt íþróttastarf, einhvers konar íþróttir utan íþróttafélaga, eru líklegri til að nota vímuefni en þau ungmenni sem engar íþróttir stunda. Slíkar niðurstöður sýna hve háð forvarnargildi íþrótta er þeim félagslegu kringumstæðum sem ákvaðra þátttökuna hverju sinni. Íþróttamenningin skiptir því máli þar sem hefðirnar, gildi starfsins, hæfni og menntun þjálfara og þátt- taka foreldra ráða ferðinni og gera íþróttastarfið á einum stað ólíkt því sem það er á öðrum. Þá varpar Sveinn fram þeirri spurning hverjir veljast í íþróttir, þar sem gefið er í skyn að þau ung- menni sem eru ólíklegri til að nota vímuefni stundi íþróttir frekar en önnur ungmenni. Rannsóknir hér á landi hafa ekki greint slíkt val í íþróttir – þó ekki sé hægt að útiloka allt í þeim efnum. Aftur á móti hafa rannsóknir sýnt að forvarnargildi skipulags íþróttastarfs nær helst til þeirra ungmenna sem eru í mestum áhættuhópi með að nota vímuefni og hafa hvað mesta þörf fyrir öflugt forvarnarstarf í sínum tómstundum. Öflug forvörn Sveinn spyr þá í grein sinni hvað sé besta forvörnin? Skipulagt íþróttastarf er ekki eina athæfi ung- menna sem býr yfir einhvers konar forvarnargildi. Margs konar annað uppbyggilegt starf ungmenna gerir það einnig. Þetta er því spurning sem erfitt er að svara með afgerandi hætti. Það er ljóst að það eru margir þættir sem koma saman og virka sem forvarnir gegn notkun vímu- efna. Tengsl milli uppeldis- og fjöl- skylduþátta, áhrif vina og jafningja, lífsstíls sem og tómstundastarfs og afþreyingar eru margbrotin. En til að reyna að svara spurningunni þá hefur skipulagt íþróttastarf sannað sig sem öflug forvörn í þessu sam- hengi í samanburði við margs kon- ar annað athæfi ungs fólks. Ekki einungis er kemur að forvörnum gegn vímuefnanotkun heldur hefur einnig verið sýnt fram á að þátt- taka í skipulögðu íþróttastarfi hefur margs konar félagslegan, sálrænan og líkamlegan ávinning í för með sér. Hvort skipulagt íþróttastarf sé besta forvörnin er þó ómögulegt að segja til um þar sem rannsóknir hafa ekki leitast við að meta það með beinum hætti. Gagnrýnin umræða góð Að lokum vil ég taka það fram að tilgangur þessarar greinar er ekki að draga úr gagnrýnni umræðu, sem ávallt er af hinu góða, heldur að benda á þætti sem taka verður inn í myndina til að líklegra sé að umræðan haldist áfram í eðlilegum farvegi. Ef að rannsóknir sýna að íþróttahreyfingin á Íslandi sé að sinna forvarnarstarfi meðal barna og ungmenna með góðum og mælanleg- um árangri þá er, að mínu mati, ekki eðlilegt að draga þá ályktun að það eigi að endurskoða fjármagn sem veitt er til þess starfs á þeim forsend- um að skipulagt íþróttastarf í öðrum löndum hafi ekki sama forvarnar- gildi. Slíkri röksemdarfærslu mætti helst líkja við að refsa Jóni fyrir eitthvað sem Gunna hefur gert. Það skýtur því skökku við að Sveinn efist um réttmæti þess að fjármagn sé sett í forvarnarstarf íþróttafélaga hér á landi, þar sem íþróttahreyfingin hef- ur einmitt sýnt fram á umtalsverðan árangur í því sambandi – og ætti því kannski fremur að vera umbunað fyrir góðan árangur en véfengd. Að þessu sögðu má svara upp- haflegri spurningu Sveins með þeim hætti að forvarnarfé nýtist best þar sem það skilar mestum árangri. Forvarnargildi íþrótta hefur sannað sig hér á landi og hefur verið umfjöll- unarefni fjölda fræðibóka, skýrslna og vísindagreina. Hluta þeirra má nálgast á heimasíðu rannsóknarmið- stöðvar innan Háskólans í Reykjavík sem heitir Rannsóknir og greining (www.rannsoknir.is). Ég vil hvetja alla til að kynna sér þær viðamiklu upplýsingar sem þar liggja fyrir um forvarnargildi íþrótta – því ekki viljum við að ósekju láta íþróttahreyfinguna á Íslandi líða fyrir það hvernig íþróttastarfinu er háttað í Armeníu Höfundur er Lektor í félags- fræði við Háskóla Íslands. AÐSEND GREIN LOGI MÁR EINARSSON Gleðilegt sumar? Það er sannarlega vor í lofti og börn- in í bænum hafa átt viðburðaríka páskahelgi. Ýmist rennt sér á brett- um og skíðum í fjallinu eða stundað aðra afþreyingu sem bærinn hefur upp á að bjóða. Sum minnast ferð- ar með fjölskyldunni í sumarbústað eða til afa og ömmu útá land. Þau eru eru önnum kafin við að dytta að reiðhjólunum sínum; þvo þau og pumpa í dekkin áður en brunað er af stað út í sumarið. Á kvöldin láta þau sig dreyma um ævintýrin handan hornsins; fótboltamót í Vestmanna- eyjum, landsmót skáta að Hömrum eða aðra spennandi hluti. Á meðan sitja foreldrarnir frammi í eldhúsi og velta því fyrir sér hvort verja eigi sumarleyfinu utanlands, á ferð um landið eða bara í rólegheitum á sólpallinum, þar sem grillað er upp á hvern dag og skotist í pottinn á kvöldin. Eða hvað? Í nýrri skýrslu Barnaheilla kemur fram að fátækum börnum fjölgaði mikið í kjölfar efnhagsþrenginganna í Evrópu á árunum 2008 til 2012. Æ fleiri börn eru við það að lenda utangátta í því samfélagi sem þau búa í. Talið er að jafnvel 16% barna á Íslandi eigi það á hættu að búa við fátækt: Það eru 10.000 íslensk börn og 500 á Akureyri. Alltof mörg börn hér í bænum eiga því ekki kost á að lifa því lífi sem lýst er í upphafi greinarinnar eða taka þátt í leik og starfi sem flestum okkar þykir sjálfsagt. Efnaminni börn eiga það á hættu að einangrast félagslega og verða útundan. Séu þau fátæk í æsku eru þau mun líklegri til þess að verða það fullorðin. Í kjölfar hrunsins var gripið til mikil aðhalds á flestum vígstöðvum. Margt var nauðsynlegt, annað skilj- anlegt en niðurskurðurinn var þó hugsaður til skamms tíma. Í skólum voru vistunargjöld hækkuð, forfalla- kennsla spöruð,efniskaup til kennslu minnkuð og fjármunir sem ætlaðir voru til skemmtunar eða uppbrots á skólastarfi allir skornir við trog. Vísitölutenging styrkja bæjarins til íþrótta- og tómstundarstarfs barna var fryst og framboð til tómstunda skert. Allt bitnaði þetta harðast á þeim sem síst skyldi; börnum frá heimilum sem hafa lítið milli hand- anna. Margir brugðust við á aðdá- unarverðan hátt. Íþrótta- og tóm- stundafélög hafa mörg sýnt mikla samfélagslega ábyrgð og reynt að tryggja að bág fjárhagsstaða bitni sem minnst á efnalitlum börnum. Fjölmörg dæmi eru um kennara sem taka með sér efni að heiman til að nota við kennslu, jafnvel föt eða nesti handa börnum sem greinilega eiga erfitt. Slík fórnfýsi er góð en það er ekki æskilegt að börn eigi allt of mikið undir slíkum góðvilja til langframa. Þá er heldur ekki hægt að leggja það á kennara að starfa við slíkar aðstæður. Þó ástandið sé líklega verra sums staðar í Evrópu kemur m.a. fram í nýlegri grein í Independent að betur stæð ríki þurfi að hafa verulegar áhyggjur af þessari þróun. http://goo.gl/N3Uy6y. Öll börn eiga sinn rétt Öll börn eiga rétt á því að fá að þroska og nýta hæfileika sína. Það eykur ekki einungis hamingju þeirra heldur skilar samfélaginu auknum gæðum. Nú þegar vorar í afkomu bæjarins er afar mikilvægt að bætt staða verði fyrst nýtt til þess að skila til baka þeim sparnaði sem gripið var til í skólum, barna- og unglingastarfi. Jafnframt því þarf að huga að að- gerðum sem jafna stöðu barna. Tímasett aðgerðaáætlun Samfylkingin vill setja fram tíma- setta aðgerðaáætlun sem miðar að því að vinna gegn fátækt á Akureyri. Þar verði strax gripið til ráðstafana til hjálpar börnum í efnalitlum fjöl- skyldum. Meðal þess sem við viljum gera er að: Fara í nákvæma endurskoðun fjárhagsáætlunar með það að mark- miði að jafna stöðu barna í bænum. Farið verði ítarlega í saumana á því hvort rétt er gefið við úthlutun gæða. Úthluta öllum börnum persónu- legum umboðsmanni, að danskri fyrirmynd, sem aðstoði þau og veiti utanumhald frá því að skólaganga hefst, til 18 ára aldurs. Auka ráðstöfunarfé skóla til að skapa fjölbreytni og tilbreytingu í skólastarfi og bæta aðstöðu starfs- fólks til að takast á við verkefni sín. Hækka frístundaávísanir og endurskoða aðkomu bæjarins að stuðningi við börn og unglinga í íþrótta- og tómstundarstarfi. Tryggja að öll börn geti nýtt sér hollar og góðar skólamáltíðir. Markmiðið er að tryggja öllum börnum fullnægjandi hlutdeild í þeim miklu gæðum sem bærinn býr yfir. Ég heiti því að Samfylkingin mun setja þessi mál í forgang á næsta kjörtímabili. Gleðilegt sumar! Íþrótta- og tómstundafélög hafa mörg sýnt mikla samfélagslega ábyrgð og reynt að tryggja að bág fjárhagsstaða bitni sem minnst á efnalitlum börnum. Logi Már Einarsson Dr. Viðar Halldórsson Slíkri röksemdarfærslu mætti helst líkja við að refsa Jóni fyrir eitthvað sem Gunna hefur gert

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.