Austurland - 16.05.2013, Blaðsíða 2
2 16. MAÍ 2013
Blaðið er að þessu sinni að miklu leyti tileinkað Austfirskum krásum af
einhverju tagi en Matvæladagurinn verður haldinn á Hótel Héraði 16. maí
næstkomandi. Þar munu fyrirtæki, kaupendur og seljendur eiga stefnumót
um innkaup á komandi ferðamannavertíð. Í tengslum við daginn mun
almenningur geta bragðað á austfirskum krásum í ferðaeldhúsi Lúlú í
Neskaupsstað sem staðsett verður á planinu fyrir utan Hótel Hérað auk
þess sem austfirskar krásir verða boðnar til sölu bæði í Húsi handanna og
nýrri Kjöt- og fiskverslun Snæfells í Kaupvangi.
Síðustu blöð hafa verið stútfull af pólitík og eflaust þykir mörgum
nóg komið. Allt útlit er fyrir að tveir stærstu flokkarnir nái saman um
stjórnarsamstarf byggt á traustum meirihluta. Þessi trausti meirihluti
hefur alltaf valdið mér hugarangri óháð þeim sem með hann fara hverju
sinni. Það er þessi meirihluta - minnihluta hugsun veldur mér áhyggjum
en traustur meirihluti á þingi þýðir oft að raddir minnihlutans þagna.
Á Austurlandi hafa orðið miklar breytingar á umgjörð stjórnmálanna.
Áhrif Austurlands á landsmálin hafa minnkað eftir að kjördæmaskipan
var breytt þannig að landshlutinn tilheyrir Norðaustur kjördæmi. Efstu
og áhrifamestu menn á listum flokkanna koma oftast af Norðurlandi,
flestir frá Akureyri. Sameiningar í landshlutanum hafa orðið til þess
að tvö stærstu sveitarfélögin hafa úrskurðarvald í flestum málefnum og
margir eru á því að sveitarfélögin sem áður háðu einvígi um flest mál, með
tilheyrandi leiðindum, hafi nú fallist í faðma og myndi aukinn meirihluta
í samstarfi sveitarfélaganna. Þetta verður til þess að hin sveitarfélögin
hafa veika rödd í samstarfinu og eru yfirleitt með einn fulltrúa af þremur
í nefndum. Með þessu verður afar ólíklegt að málefni og hagsmunir sem
skipta minni sveitarfélögin máli njóti sama stuðnings og mál sem hin stóru
tvö hafa ákveðið að setja á oddinn.
Mikið hefur verið rætt um að löggjafarvald og framkvæmdavald ætti
að vera aðskilið þannig að ráðherrar sem fara með framkvæmdavaldið
eigi ekki að sitja á þingi og þurfi jafnvel ekki að vera kjörnir þangað.
Þá er spurning hvaða áhrif persónukjör óháð flokkum komi til með að
hafa á leikfléttuna sem á sér stað í stjórnarmyndunarviðræðum. Myndi
sá þingmaður sem fær flest atkvæði fá stjórnarmyndunarumboð? Ef
til vill væri réttast að hver og einn kjósandi mætti kjósa sitt draumalið
í ráðherrastóla og byggt á því vali yrði sett saman ríkisstjórn sem yrði
að vinna saman óháð meirihluta/minnihluta? Ekki veit ég til þess að
flokkar hafi almennt gefið út ráðherraefni sín fyrir kosningar né að
stjórnmálamenn hafi tækifæri til að sérhæfa sig og ávinna sér traust í
ákveðnum málaflokkum umfram aðra. Þetta veldur því að kjósandinn
veit ekkert hvað hann er að kjósa nema byggt á loforðalistanum og oft
óljósum hugsjónum.
Það er spurning hvort alræði meirihlutans sé rétta leiðin til framtíðar
eða hvort það styður lýðræðislega og gagnrýna umræðu um þjóðmálin.
Margar áhugaverðar hugmyndir komu fram í kosningabaráttunni um
hvernig við getum virkjað lýðræðið samanber svigrúm í tillögum að nýrri
stjórnarskrá. Kannski hefur hinn nýi meirihluti til að bera þá víðsýni sem
þarf til að ræða og prófa einhverjar þessara hugmynda á næsta kjörtímabili?
Stefanía G. Kristinsdóttir, ritstjóri
Tveir stórir
Leiðari
AUSTURlAnd 6. TBl. 2. ÁRGAnGUR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. auglýsingasími: 578 1190,
netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Stefanía G. Kristinsdóttir, sími 891 6677, netfang: stefania@einurd.
is Blaðamenn: Bryndís Skúladóttir og Halldóra Tómasdóttir Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök.
dreifing: Íslandspóstur. - Blaðið er aðgengilegt á PDF sniði á vefnum www.fotspor.is.
Fríblaðinu er dreiFt í 4.400 eintökum Á öll Heimili Á auSturlandi OG HOrnaFirði auk dreiFbÝliS.
blaðið liGGur einniG Frammi Á HelStu þéttbÝliSStöðum Á auSturlandi.
Fjarðabyggð sigrar Útsvar
Fjarðabyggð sigraði lið Reykjavíkur í úrslitum Útsvars föstudaginn
4. maí sl. „Gáfaðasta sveitarfélag á
Íslandi“ er fyrirsögn á heimasíðu
sveitarfélagsins en þar kemur fram
að sigurinn hafi verið sannfærandi en
Fjarðabyggð sigraði með 98 stigum
gegn 56 stigum hjá liði Reykjavíkur.
Jón Svanur, Kjartan Bragi og Sigrún
Birna létu forystuna, sem þau náðu
strax í byrjun, aldrei af hendi.
Skemmst er að minnast þess að á
síðasta ári komst Fljótsdalshérað
nærri því að vinna en tapaði gegn
liði Grindavíkur í úrslitunum. Það
er því ljóst að mikil gáfumenni búa á
Austurlandi.
SGK
Harmleikur á Egilsstöðum
Maður á þrítugsaldri var úrskurðaður í tveggja vikna
gæsluvarðhald þriðjudagskvöldið
8. maí sl. grunaður um morð á
Karli Jónssyni. Morðið átti sér stað
aðfaranótt mánudagsins 7. maí að
Blómvangi á Egilsstöðum. Hinn
myrti fannst á svölum íbúðar sinnar á
mánudagsmorgun og grunur beindist
fljótlega að nágranna hans en lögreglan
hafði þurft að hafa afskipti af honum
kvöldið áður vegna hávaða og ónæðis.
Í umfjöllun Fréttablaðsins kemur fram
að lögreglan efist ekki um sekt hins
handtekna, aðstæður á vettvangi og
föt sem fundust heima hjá manninum
bendi allt til sektar hans. Rannsókn
málsins er á lokastigi.
Byggt umfjöllun
Gunnars Gunnarssonar á
www.austurfrett.is
Fyrsti útlendingurinn skipaður lögreglufulltrúi í
alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
Aleksandra Wójtowicz, var nýlega skipuð í stöðu lögreglufulltrúa
við alþjóðadeild embættis
ríkislögreglustjóra. Alexandra hóf
störf við alþjóðadeild árið 2012 en hafði
áður starfað hjá lögreglunni á Eskifirði
og Seyðisfirði í 4 ár. Aleksandra er
lærður sjúkraflutningamaður og
starfaði við sjúkraflutninga áður en
leiðin lá í lögregluna. Hún byrjaði í
afleysingum í lögreglunni árið 2008 og
fór í Lögregluskólann árið 2009.
Aleksandra Wójtowicz er Íslendingur
af pólskum uppruna og kom hingað
til lands sem au-pair 18 ára gömul frá
Gdansk í Póllandi. Hún á íslenskan
eiginmann og þrjú börn.
Byggt á frétt á www.mbl.is 9. maí
Bílaverkstæði
Hjólbarðaverkstæði
Pústverkstæði
Smurþjónusta
Gleðilega páska
Lokað laugardaginn 30.mars
opið mán-fös: kl.8-18
lau: kl.11-15
Gleðilega páska
opið mán-fös: kl.10-18
lau: kl.11-15
Lokað laugardaginn 30.mars
Sími: 471-3002
netf. topphlutir@simnet.is
Sólvangur 5, 700 Egilsstaðir
neyðarsími 861-4260
opið mán-fös: kl.8-18
lau: kl.11-15
Gleðilega páska
opið mán-fös: kl.10-18
lau: kl.11-15
Lokað laugardaginn 30.mars
Sími: 471-3002
netf. topphlutir@simnet.is
Sólvangur 5, 700 Egilsstaðir
Lið Fjarðabyggðar og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri á sigurkvöldinu
Fjölbýlishúsið að Blómvangi 2