Austurland - 16.05.2013, Síða 4

Austurland - 16.05.2013, Síða 4
4 4. októBer 2012 Sveitahótelið Silfurberg í Breiðdal Heimsókn á Silfurberg til Guðrúnar og Jóns að Þorgrímsstöðum í Breiðdal. Reykvíkingarnir Guðrún Sveinsdóttir og Jón B. Stefánsson festu kaup á jörðinni Þorgrímsstöðum í Breiðdal í nóvember árið 2003 en þá höfðu þau um skeið leitað að jörð til kaups víða á landinu og þá frekar nálægt Reykjavík. Þau áttu alls ekki von á að falla fyrir jörðinni en ákváðu engu að síður að skoða hana fyrir áeggjan tengdasonar síns en hann ólst upp á Egilsstöðum. Snyrtimennskan á býlinu, andinn í húsinu og stórbrotin náttúran heillaði þau og nokkrum mínútum eftir komuna á Þorgrímsstaði vissu þau bæði að þetta var rétta jörðin. Hugmyndin um að byggja upp ferðaþjónustu fæddist síðar og hafa þau nú breytt hlöðunni í hótel. Jörðin Þorgrímsstaðir er innst í Breiðdalnum við þjóðveg 1 og fyrsti bærinn sem maður kemur að eftir að hafa ekið Breiðdalsheiði frá Egilsstöðum. Þegar þau hjónin keyptu jörðina var þar sauðfjárbú með um 230 kindur. Það stóð aldrei til hjá þeim að vera með búskap en þar sem þau fengu jörðina afhenta um vetur var ákveðið að bíða með að skera féð niður að minnsta kosti fram á næsta haust. Þau fengu nágranna til þess að sjá um gegningar fyrsta veturinn og hafði hann jafnframt það hlutverk að fylgjast með heimarafstöðinni sem sá bænum fyrir rafmagni. Eftir fyrsta veturinn ákváðu hjónin að tengja býlið við rafkerfi RARIK til að tryggja öruggt rafmagn og losna við umstangið í kringum rekstur rafstöðvarinnar. Í framtíðinni horfa þau þó til þess að nýta heimarafstöðina aftur og gæla við þá hugmynd að lýsa upp bæjargilið á veturna. Vorið eftir kaupin tóku þau fullan þátt í sauðburðinum og komust að því að það var mjög gaman að stunda sauðfjárbúskap. Fyrir tveimur árum voru þau með 190 kindur á fóðrum en hafa nú aðeins tæplega 30 kindur eftir að hótelið tók til starfa. Kindurnar gegna líka hlutverki á hótelinu þar sem útsýni er inn í fjárhúsið úr borðstofunni og eldhúsinu. Einnig eru kindur áberandi í innbúi hótelsins, svo sem kindaskúlptúrar úr tré eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur í herbergisálmu hótelsins. Jón og Guðrún: Jón er byggingarverkfræðingur og rak eigin verkfræðistofu þar til hann ákvað að láta drauminn um að flytja í sveitina verða að veruleika. Hann hefur hannað og haldið utan um endurbæturnar með dyggri aðstoð Guðrúnar sem starfaði sem lögfræðingur hjá Íslandsbanka en hætti störfum fljótlega eftir jarðakaupin til að einbeita sér að uppbyggingunni á Þorgrímsstöðum. Strax eftir jarðakaupin byrjaði Guðrún að kaupa ýmiskonar tuskudýr af stærri gerðinni til að hafa í sveitinni. Þessi dýr mynda nú athyglisverðan tuskudýragarð í setustofu hótelsins (sjá mynd) en þarna má sjá dýrin sem fylgdu landnámsmönnum í upphafi en kúna vantar þó enn. Þarna má einnig finna álft úr lambaskinni og laxaroði eftir Bryndísi Bolladóttur. Gantast var með tuskudýrin í vinahópnum og talið líklegt að þau yrðu einu dýrin á jörðinni en tuskudýragarðurinn vekur í dag verðskuldaða athygli gesta. Aðstaða er fyrir allt að 12 manns á hótelinu í fjórum tveggja manna herbergjum og stúdíóíbúð auk þess sem hægt er að bjóða upp á gistingu í íbúðarhúsinu fyrir um 8 manns. Æskileg stærð á hópum er 8-10 manns. Í veislusal hótelsins er unnt að taka á móti stærri hópum. Í salnum er búið að setja upp hundruðir ljósþráða í loftið sem birtast sem stjörnubjartur himinn og ef vel er að gáð má finna þar stjörnumerkið Karlsvagninn og Pólstjörnuna. Leitast hefur verið við að nýta gamlan efnivið og hráefni sem var til á bænum. Til dæmis eru gamlir tunnustafir notaðir sem hluti veggklæðninga innanhúss og ryðgað bárujárn einnig. Í veitingasalnum eru til sýnis tveir erfðagripir sem nú fá nýtt hlutverk: skautbúningur af ömmu Jóns og upphlutur frá móðurfjölskyldu Guðrúnar. Öll aðstaða á hótelinu er hin glæsilegasta og hugað að öllum smáatriðum. Gott útsýni er úr herbergjunum og frábært útsýni úr stúdíóíbúðinni yfir Breiðdalinn en þar geta gestir notið stjörnubjarts himins og norðurljósa á veturna. Heitur pottur og gufubað er fyrir utan húsið þar sem hægt er að láta líða úr sér eftir góðan göngutúr með bæjargilið í baksýn. Hverjir munu njóta sveitasælunnar í framtíðinni? Unnt er að bóka herbergi með morgunverði á Silfurbergi á heimasíðu hótelsins. Veitingasala er einungis til gesta hótelsins. Silfurberg er aðili að Ferðaþjónustu bænda en ýmsir aðrir ferðaþjónustuaðilar sjá einnig um bókanir. Mjög hefur verið vandað til allra endurbóta og markmiðið er að veita góða og persónulega þjónustu. Horft er til þess að hótelið henti vel fyrir minni hópa sem vilja dvelja í að minnsta kosti 3 nætur á hótelinu, slappa af og hlaða batteríin. Verð á gistingu verður í hærri kantinum þannig að líklegt er að markhópurinn verði erlendir ferðamenn sem leita eftir endurnæringu og náttúrufegurð. Dætur þeirra hjóna hafa tekið virkan þátt í ævintýrinu en Helga, elsta dóttir þeirra Guðrúnar og Jóns, er hótelstýra. Systurnar hyggjast standa fyrir heilsuvikum á hótelinu þar sem lögð verður áhersla á heilnæma fæðu, slökun og hreyfingu. Boðið verður upp á jóga- og pilatestíma, heilsubótargöngur og fyrirlestra um heilsutengd málefni. Þá verða læknir og heilsumarkþjálfi á staðnum sem munu fara heildstætt yfir heilsufar og lífsstíl þeirra þátttakenda sem þess óska. Einnig er horft til þess að hópar veiðimanna sem koma austur, svo sem rjúpna- og hreindýraveiðimenn, geti gist á hótelinu og notið þess að slaka á, vera útaf fyrir sig og njóta persónulegrar þjónustu. Af hverju Silfurberg? Sveitahótelið Silfurberg dregur nafn sitt af íslenska kristalnum silfurbergi sem finnst á nokkrum stöðum á landinu og var áður meðal annars notað í smásjár. Talið er að silfurberg hafi verið notað af víkingum til að finna staðsetningu sólarinnar á skýjuðum degi. Silfurbergsnámur má finna víða á Austurlandi til dæmis í Breiðdal en frægasta náman er Helgustaðanáman í Eskifirði. Auk silfurbergsnámunnar í Breiðdal er dalurinn þekktur fyrir ýmis jarðfræðileg fyrirbæri svo sem kulnaða megineldstöð og gott aðgengi að jarðlögum frá fornsögulegum tímum samanber jarðfræðisýningu í Breiðdalssetri á Breiðdalsvík. Heiðarvatn efst á Breiðdalsheiði tilheyrir Þorgrímsstöðum en þar veiðist bæði bleikja og urriði. Í Breiðdal er fjölbreytt fuglalíf auk þess sem stórar hjarðir hreindýra halda þar til á veturna og vorin. Opið verður á sveitahótelinu Silfurbergi frá 15. apríl til 15. nóvember ár hvert en nánari upplýsingar um aðstöðu, bókanir og þjónustu hótelsins má finna á heimasíðunni www. silfurberg.com. Það er óhætt að mæla með þessu glæsilega sveitahóteli fyrir minni hópa og aðila sem vilja veita sér ákveðinn munað og hvíla sig frá amstri hversdagsins SGK Útsýni eru úr matsal í fjárhúsin tuskudýrin kindur á svefnherbergisgangi

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.