Austurland - 16.05.2013, Page 8

Austurland - 16.05.2013, Page 8
8 16. MAÍ 2013 Austfirskar krásir á Matvæladeginum á Hótel Héraði Matvæladagur Austfirskra krása Austfirskar krásir standa fyrir Matvæladegi fimmtudaginn 16. maí næstkomandi á Hótel Héraði. Í tilefni þess tók ritstjóri viðtal við Eygló Björk Guðmundsdóttur, formann stjórnar Austfirskra krása um daginn, starfsemi og markmið Krásanna. Hvaða hópur stendur á bak við Austfirskar krásir? Aust f i rskar krás ir er samstarfsvettvangur eða klasi matvælaframleiðenda og veitingahúsa á Austurlandi. Þetta er félag sem vill efla matvælaframleiðslu og matarmenningu á svæðinu. Getur þú lýst fyrir lesendum í stuttu máli starfsemi og helstu markmiðum Austfirskra krása? Starfsemin felst að mestu í þátttöku í ýmsum viðburðum, s.s. þátttaka í sýningum en einnig gefum við út bækling fyrir ferðamenn sem vilja upplifa staðbundinn mat. Við höfum haldið úti heimasíðu og látum til okkar taka með ýmsum hætti til að vekja athygli á viðfangsefninu. Markmiðið er að efla matvælaframleiðslu sem atvinnugrein á svæðinu og í því teljum við tækifæri felast fyrir svæðið en það hefur mjög margt að bjóða á þessu sviði, sterk einkenni og sérstöðu sem halda má enn frekar á lofti. Fyrirhugað er að halda Matvæladag Austfirskra krása þann 16. maí. Til hvaða markhópa eruð þið að höfða með deginum og hver eru helstu markmið hans? Markmiðið með Matvæladeginum er að efla viðskipti og heimamarkað með austfirskar afurðir og búa til aðdráttarafl fyrir svæðið í gegnum matinn. Margir áhugaverðir framleiðendur eru á svæðinu og mikil nýsköpun hefur átt sér stað undanfarin ár. Öflugur heimamarkaður er forsenda þess að þessi fyrirtæki geti stækkað og Matvæladagurinn er viðleitni til þess að vekja athygli stofnana ríkis og sveitarfélaga, verslana og fyrirtækja almennt á því að beina innkaupum í nærumhverfið. Það er að detta úr tísku að flytja sama hráefnið fram og til baka um hnöttinn því umhverfislega séð er mun heilbrigðara að framleiða hráefni nær þeim stað sem þess er neytt. Þetta er ein megin áskorunin til framtíðarinnar þegar kemur að umhverfismálum til að minnka fótspor við vöruflutninga sem veldur hitnun andrúmsloftsins. Hvers vegna að flytja lambakjöt inn til Íslands frá Nýja-Sjálandi ef við eigum jafnvel betra hráefni sjálf, svo að ég nefni dæmi. Hvað hefur Matvæladagurinn verið haldinn oft og hver hefur ávinningurinn verið af honum hingað til ? Við héldum daginn í fyrsta skipti í fyrra og þótti okkur hann takast vel. Ég held að það hafi komið flestum á óvart hvað flóra framleiðenda er í raun fjölbreytileg á Austurlandi.Þetta eru ekki endilega stór fyrirtæki en þau eru sérhæfð og bjóða upp á mikil gæði. Við viljum draga þetta allt fram í dagsljósið og skapa vettvang fyrir framleiðendur til að sýna hvað þeir eru að fást við. Margt hefur bæst við úrvalið á einu ári þannig að það verður alltaf eitthvað nýtt að sjá. Þetta verður skemmtilegur dagur, enda er matur skemmtilegt viðfangsefni og við leggjum áherslu á að þátttakendur hafi gaman af því að koma, fræðist en fái auk þess eitthvað til að bragða á. Eru einhverjar nýjar áherslur með deginum í ár? Það má segja að matur í ferðamennsku sé í ákveðnum fókus í ár. Nýsköpunarmiðstöð er með okkur og þeirra fólk ætlar að halda erindi um mat í upplifun ferðamannsins. Veitingahús finna fyrir miklum áhuga ferðamanna á „local“ matvælum og nokkur veitingahús munu bjóða upp á sérstakan matseðil í nafni Krásanna sem á örugglega eftir að vekja áhuga hjá fólki. Hvernig hefur starfsemi Austfirskra krása þróast á síðustu árum og hvernig sjáið þið samstarfið þróast í framtíðinni? Krásirnar eru frekar ungt félag, var stofnað 2009, þannig að það má kannski segja að félagsstarfið sé enn í mótun. Þetta félag hefur frá upphafi verið býsna virkt og meðlimir eru áhugasamir og leggja mikið upp úr samstarfi innan félagsins. Ég held að það verði meira af því, veitingahúsin geta t.a.m. tekið sig saman um þema og þjappað sér saman um viðburði eða áherslur. Lykilorð okkar verða samvinna og samtal, því vissulega verðum við að gera kröfur til okkar og samseinast um ákveðin atriði ef við eigum að ná árangri. Í dag einbeitum við okkur að viðburðum sem snúa að því að auka viðskipti með matvælin okkar því þegar allt kemur til alls eru það viðskiptin sem skapa störf og koma hlutunum á hreyfingu. Austf irskar krásir fengu nýverið frumkvöðlaverðlaun Ferðamálasamtaka Austurlands – hvaða tækifæri sjá Krásirnar í auknum ferðamannastraumi til Íslands og Austurlands? Við eigum að geta búið til fleiri viðfangsefni og afþreyingu fyrir ferðamenn í kringum mat. Ferðamenn sem heimsækja Ísland eru upplýst fólk sem gjarnan er að leita að náttúruupplifun, þetta er fólk sem ferðast langt og hefur þá væntanlega farið víða. Það er spennandi að tengja matarupplifun og náttúruupplifun og svo má ekki gleyma því að matur er menning. Í gegnum matinn getum við lýst skilyrðum svæðisins, landslagi og sagt sögur. Það er mjög áhugavert og gaman fyrir ferðamanninn að taka þátt í þessu. Á Austurlandi eru mörg mjög góð veitingahús, við eigum þó nokkur það sem ég myndi vilja kalla úrvals veitingahús sem bjóða upp á mikil gæði í mat og umhverfi. Svo eigum við líka mjög skemmtileg „bistro“. Það skiptir mjög miklu máli fyrir svæðið að þessum aðilum standi hráefni í hæsta gæðaflokki úr fjórðungnum og annar efniviður í hvers konar jákvæða upplifun af svæðinu til boða. Eitthvað að lokum sem þú vilt taka fram? Ég vona bara að sem flestir láti sjá sig á Matvæladeginum á Hótel Héraði fimmtudaginn 16. maí! Húsið opnar kl 16.00 en formleg dagskrá hefst kl 17.00. Gestum gefst kostur á að spjalla við framleiðendur og smakka á ýmsum kræsingum í framhaldinu. SGK Nýr veitingastaður í Kleinunni Þráinn Lárusson, veitingamaður, skólastjóri og hóteleigandi með meiru, opnaði nýjan veitingastað „Salt - cafe & bistro“ í Kleinunni (Miðvangi 2-4) á Egilsstöðum nú um helgina. Ritstjóri tók Þráin tali. Af hverju Salt? Salt er gott alþjóðlegt nafn sem allir þekkja og vita hvað þýðir. Salt er okkur nauðsynlegt, Væri líf án salts. Hvaða áherslur verða á matseðlinum? Þetta er bístro og getur því boðið upp á hvað sem er og það er í rauninni það sem við ætlum að gera en reyna að vera í heilsusamlegri kantinum - með allt svona alls konar Verður boðið upp á Austfirskar krásir? Við munum setja okkur markmið um að nota slíkt þegar það á við. Hvenær verður opið? Opnunartíminn á eftir að koma í ljós Við ætlum að hafa opið núna í maí frá 10 -21 og í sumar frá 8 – 23. Svo sjáum við til í haust. Fyrir hverja? Fyrst og fremst heimamenn og síðan auðvitað afþreying fyrir ferðamenn. Lífga upp á bæinn. Hádegið er síðan hugsað fyrir vinnandi fólk. Framtíð ferðaþjónustu á Austurlandi? Það má segja að sóknarfærin séu hvað mest hér en við erum rétt að leggja af stað. Aðrir landshlutar hafa forskot og við eigum að geta nýtt okkur reynslu þeirra í okkar uppbyggingu. Samkeppni er á milli svæða og við þurfum að standa betur saman hér til að geta staðist kröfur nútíma ferðamennsku. Annað sem þú vilt taka fram? Ég vona bara að Héraðsmenn og aðrir Austfirðingar taki þessu framtaki vel og styðji við okkur með því að hafa við okkur viðskipti. Það er jú það sem gerir okkur kleift að gera eitthvað gott og skemmtilegt fyrir þá í staðinn. Staðurinn er og verður að mótast og þroskast á næstu vikum og á eftir að bjóða upp á miklar nýjungar á næstu vikum og með haustinu. SGK

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.