Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.1989, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.1989, Qupperneq 6
Fimmtudaginn 8. júní 1989 - FRÉTTIR Stemmnmgin og tilfinningin ú vera þarna staddur var ólýsanleg“ Ég hef verið beðinn um að skrifa ferðasögu úr Þýskalandsferð, sem farin var í tilefni úrslita- leiks Stuttgarts og Napolí í UEFA keppninni í knattspyrnu. Frá Vestmannaeyjum fóru eftir- taldir: Biggi og Siggi Sveins, Bói Pálma, Sigurður Ingi og Tryggvi sonur hans, Helgi Lása, Gaui Grétars, Jón Óli og Dóra. Til móts við hópinn í Leifsstöð komu þeir Guðmundur Sigurvinsson, hálfbróðir Ásgeirs og Óla og einnig Árni Johnsen. í Þýskalandi hittum við Friðfinn Finnbogason og Ingu konu hans, Óla Sigurvins, Guð- mund Fúsa og Jónas Sigurðsson. Þá eyddi Gísli Hjartar fyrstu dögunum með hópnum áður en hann hélt annað, en snúum okkur nú beint að ferðasögunni sjálfri. # Ásgeir átti ágætan leik móti Napoli, eins og hann á yfirleitt. Að miðvikudagsmorgni hinn 17. maí sl. hittistallurhópurinn kl. 16:00. Tíndust menn inn í stöðina hver af öðrum, en þar kynntumst við manni að nafni Guðmundur Sigurvinsson og mætti með sanni segja við mun- um seint sjá eftir því að hafa kynnst þeirri persónu, þó sér- staklega annar Múlapeyinn, en með þeim tókust órjúfanleg vináttubönd. Ekki var að því að spyrja að strax var byrjað á að lepja bjór, eða eins og við segjum á fagmáli „sulla í bjór“. Sumir drukku meira en aðrir og sváfu alla flugferðina, en engin nöfn, en sonur útgerðarstjórans mikla sem er tíður gestur hjá Landhelgisgæslunni var eitt- hvað slappur enda fékk hann á sig gælunafnið „Niðurfallið“, svo mikinn bjór drakk drengur- inn að elstu menn muna ekki annað eins. Loksins kom kallið, nú átti að ganga um borð í Frónfara og á leiðinni út í vél rákumst við á tvær frægar persónur, fyrst skal fræga telja Miss World, svona rétt til að ýta við hópnum. Sú síðari var ekki síðri, þar var mættur sjálf- ur Árni Johnsen að sjálfsögðu 0 Hinn fríði hópur ásamt íslendingafélaginu. Allar myndirnar sem fylgja þessari ferðasögu tók Guðmundur Sigfússon. á síðustu stundu, „var að koma af fundi.“.“ Afsakaði hann sig, en hvað um það þarna vr mikil gleði því nú skyldu teknir nokkrir Eyjaslagarar í Stuttgart. Til allrar hamingju fyrir þá sem voru þyrstir voru örfáir farþegar í vélinni svo bjórsala og önnur þjónusta gekk bæði fljótt og vel. Klukk- an 13:30 að staðartíma var lent í Frankurt í sól og 30 stiga hita, en nú var málið að koma sér af stað ekki áttum við að missa af leiknum og með Árna Johnsen sem fremsta mann var arkað í gegnum flugstöðina. Töskur okkar íslendinganna fengu al- gjöran forgang eftir að Guð- mundur hafði ráðgast aðeins við starfsmenn vallarins. Hald- ið var af stað, jáhá, nú skyldi ekkert klikka. Það átti ekkert að koma í veg fyrir að við fengjum að sjá okkar mann í Germany, (svona fyrir þá sem ekki fylgjast með fótbolta þá er það Ásgeir Sigurvinsson), leika sér að þessum Maradona, svona eins og hann lék sér að Einari Friðþjófs hér í „Den“. Einn lítill og pattaralegur fyrr- um kantmaður hjá I.P.U. kom- inn með smá ýstru sá til þess að að menn fengju nóg af þýskum bjór. Menn höfðu varla svolgr- að í sig síðasta sopann þegar að öðrum var skellt í fangið á manni (fínn náungi). þar hafði Ásgeir útvegað okkur borð. Tveim klukkustundum- um fyrir leik gengum við inn á hinn stórglæsilega leikvang Stuttgart liðsins „Neckar". Þegar höfðu safnast u.þ.b. 30 þús. manns á áhorfendapalla og stemmningin all rosaleg. En þetta var aðeins byrjunin því einum tíma fyrir leik var leik- vangurinn orðinn fullsetinn eða um 69.000 manns og stemmn- ingin og tilfinningin að vera þarna var í einu orði sagt ólýs- anleg. Það er greinilegt að okk- ar maður er dáður öðrum frem- ur í Stuttgart liðinu, því þegar hann hljóp inn á völlinn í upphitun brutust út geysileg fagnaðarlæti. Ekki ætla ég að lýsa leiknum sjálfum, nema þegar að Stuttgart jafnaði 1-1 eftir að Ásgeir hafði sent knött- inn úr hornspyrnu beint á # Maradona var primus motor Napoli liðsins. Stór dagur í Stuttgart Loksins var komið til Stutt- gart og greinilegt á öllu að þetta var stór dagur hjá þessari borg. Stórir fánar og auglýsing- ar blöktu alls staðar. Nú við byrjuðum á því að borða við hliðina á vellinum sjálfum, en • Tvcir heimsfrægir markaskorarar þeir Júrgen Klinsman frá Stuttgart og Sigmar Pálmason frá ÍBV stilla saman strengi sína fyrir næsta leik.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.