Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.1989, Page 10
Fimmtudaginn 8. júní 1989 - FRÉTTIR
Á sjómannadaginn fór fram
hin árlega skákkeppni milli
landmanna og sjómanna. Teflt
var á 10 borðum, 2x15 mín.
skákir, og nú til úrslita um
bikar þann sem Bergvin Odds-
son og Co gáfu fyrir þrem
árum.
Parna voru hörkulið á báða
bóga og illt að spá fyrirfram um
úrslit. f fyrri umferð fóru leikar
þannig, að landmenn unnu 6
1/2 v . móti 3 1/2 v. en í seinni
með 6 gegn 4 og höfðu þá
sjómenn orð á því að ef um-
ferðir hefðu verið fleiri þá
hefði nú komið að því að þeir
hefðu jafnað leikinn og jafnvel
unnið. Einhver sagði líka að
ekkert vit væri í því að tefla á
sunnudeginum þar sem allir
sjómenn væru vanir að fara út
og skemmta sér kvöldið áður,
og væru varla vaknaðir til ann-
ars en fara bara á ballið.
Maður hafði það svona á
tilfinningunni að þeir sem í
landi eru, væru allir í Gutem-
plarareglunni, en því miður
mun svo ekki vera.
Þá hafði landmaður það ein-
nig á orði, að það hefði alls
ekki borgað sig að vinna því nú
yrðu þeir að kaupa annan bikar
til þess að keppa um. Allt þetta
verður nú athugað i ljósi sög-
unar og reynt að komast að
réttri niðurstöðu.
Þetta var skemmtileg og hörð
keppni og setti svip á daginn.
Þess má líka geta að einn sterk-
asti skákmaður þeirra sjó-
manna, Þórarinn Ingi Ólafs-
son stýrimaður á Þórunm
Sveinsdóttur VE 401 gat ekki
verið með þar sem hann var að
taka á móti „Heimsmetsverð-
launum“ niðri á Stakkagerðis-
túni á sama tíma.
Úrslit fóru þannig:
LANDMENN:
1. Sigurjón Þorkelsson . . .... 1-0
2. Arnar Sigurmundsson . .... 1-1
3. ÆgirÓ. Hallgrímsson . .... 1-1
4. Páll Árnason .... 0-1
5. Hafsteinn Gunnarsson . .... 0-0
6. Ágúst Ó. Einarsson . . . .... 0-0
7. Hallgrímur Óskarsson . . . . 1/2-1.
8. Sigmundur Andrésson . .... 1-1
9. Friðrik Vigfússon .... .... 1-1
10. Bjarki Guðnason .... .... 1-0
SAMTALS 12 1/2 vinningur
SJÓMENN:
1. Jónas Jónasson . . . 0-1
2. Einar Sigurðsson . . 0-0
3. Haraldur Sverrisson .... . . 0-0
4. Hrafn Oddsson . . 1-0
5. Arthur Bogason . . 1-1
6. Stefán Gíslason . . 1-1
7. Lúðvík Bergvinsson .... . 1/2-0
8. Daníel Lee . . 0-0
9. Jón Ragnarsson . . 0-0
10. Sigmundur Sigurðsson . . . . . 0-1
SAMTALS 7 1/2 vinningur.
Kristni-
boðsátak
Þessa viku verður kristni-
boðsátak í Vestmannaeyjum á
vegum Betels safnaðarins. Efnt
verður til boðunar á trúnni
bæði á vinnustöðum, í Bárugöt-
unni og Landakirkju. Með
þessu trúboðsátaki verður hóp-
ur fólks frá Kanada, hljómsveit
spilar þá tegund tónlistar, sem
fellur ungu fólki best.
Samkomurnar verða í
Landakirkju þar sem meira
sætarými er og eftir samkom-
urnar bjóðum við samkomu-
gestum í kaffi í Betel.
Vonandi verður þessu
kristniboði vel tekið af bæjar-
búum.
(Frétt frá Betel).
Könnun Tómstundaráðs:
Um áfengisnotkun
unglinganna í Evjum
Spurt var í könnuninni um
áfengisnotkun unginganna og
svöruðu 22% þeirra því játandi
að þeir hefðu neytt áfengis
nýliðna helgi, þegar könnunin
var gerð í byrjun mars.
Þess má geta að umrædd
helgi er sú fyrsta eftir að bjór-
inn var leyfður.
Hvort niðurstöður varðandi
áfengisneyslu sé einhver algild-
ur sannleikur skal ósagt látið,
en rétt er að hafa alla fyrirvara
á og verður hér enginn dómur
lagður á hvort þessar tölur gefi
vísbendingu um ástandið al-
mennt um helgar, sérstaklega
hvað varðar þessa fyrstu „bjór-
helgi".
Búast má við að niðurstöð-
urnar séu trúverðugri þegar
Drekk aldrei
Sjaldan
1-2 í mánuði
Oftaren 5 sinnum
Alls
spurt er um áfengisnotkun
almennt.
Þar kemur fram að fleiri
stúlkur en piltar drekka áfengi,
eins og sést á eftirfarandi töflu.
Piltar StúlkurAlls
Drekk aldrei 72 61 68
Sjaldnaren 1 sinni í mán. 13 18 16
l-2ímánuði 6 13 8
3-4ímánuði 8 6 7
0ftaren5sinnum 1 2 1
Alls 100 100 100
Áfengisneysla eykst mikið
milli árganga eins og sést á
næstu töflu. 13% stúlknanna í
7. bekk eru byrjaðar að smakka
áfengi. Einnig virðast margir
piltanna í 8. bekk vera byrjaðir
að nota áfengi. Áfengisneysla
er orðin mjög almenn í 9. bekk.
kk. kvk kk. kvk. kk. kvk. alls
39 36 60 74 98 87 68
27 21 20 22 2 13 16
12 28 10 0 0 8
2 2 0 0 0 0 1
100 100 100 100 100 100 100
Tómstunda og íþróttafulltrúi.
Þjónustuauglýsingar
SMÍÐUM BÍLLYKLA
Allt fyrir skóna.
Skóvinnuvinnustofa
Stefáns
Brekastíg 1 sími 12396
Hárgreiðslustofa
Þórsteinu
Opið alla virka daga
Öll hársnyrting
Hársnyrtivörur. Góð merki
Sími11778
Tek að mér trésmíðar
úti og inni
Þór Valtýsson
Ssími12386.
■
jggg
Bílasími 985- 22136 4 Simí 11136 rrv iiAðiftMAilU.
TEIKNA OG SMÍÐA: Útihurðir - Glugga
- Sólhús - Bílskúra - og hvers konar
nýsmíði, breytingar og viðgerðir.
Ágúst Hreggviðsson Húsasmíðameistari
Sími 11684 - Brimhólabraut 35
Sendi- og hópferðabíll
HENRÝERLENDSSON
innanbæjar
sem utan
sími 12217
■ :
Si§
:
PALL & EGILL
Trésmíðaverkstæði 0 12564 & 11233
10 ára þjónusta - Alhliða trésmíða-
vinna. Þú nefnir það - Við smíðum það
Fasteignamarkaðurinn
Nýr sölulisti vikulega
Skrifstofa i Vestmannaeyjum aö Heimagötu 22, götu-
haeð. Viðtalstimi 15,30-19.00 þriöjudaga til fostudaga.
sími 11847 Skrifst. í Rvk. Garðastræti 13. Viötalstimi
15.30-19.00 mánudaga. Simi 13945.
Jón Hjaltason, hrl.
Arsæll Arnason
húsasmíðameistari
Bessahrauni 2 © 12169
ALHLIÐA TRÉSMÍÐI
EX7ARADIO
Flötum 31
S 98-12182 i
985-22191
Rateindaþjónusta
Jóns og Stefnis
Málningarvinna
Tek að mér að mála úti og inni.
Upplýsingar í síma 12815.
Ámundi málari.
Hljómsveitin
7-UKTD
sími 12647
Hlöðver
Skrifstofan Áshamri 3f er opin milli
kl. 13.00-17.00 alla virka daga.
Símatími, milli kl. 13.00-15.00 dag-
lega
Neytendafélag Vestmannaeyja
NOVA - Billjardstofa
Munið einnig ísinn okkar góða!
Opið alla daga frá kl. 09 til 23:30
Veitingar - Billjardstofa
01
Bílaverkstæðið Bragginn
Flötum 20 - sími 11535
Nnr. 7948-6515