Austurland - 27.11.2014, Side 2
27. Nóvember 20142
Vertu viðbúinn
vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
Léttar • Sterkar • Traustar
Ísnet Húsavík • s. 5 200 555
Ísnet Akureyri • s. 5 200 550
Ísnet Sauðárkrókur • s. 5 200 560
Kristbjörg Ólafsfjörður • s. 5 200 565
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna
AUSTURlAnd 22. TBl. 3. ÁRGAnGUR 2014
ÚTGefAndi: Fótspor ehf., Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is,
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, Auglýsingasími: 578 1190, netfang:
auglysingar@fotspor.is, Ritstjóri: Halldóra Tómasdóttir, sími 471-3119 & 852-1911, netfang: ht@me.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun:
Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök, dreifing: Íslandspóstur. - Blaðið er aðgengilegt á Pdf sniði á vefnum www.fotspor.is.
FRÍblAðinu eR dReiFT Í 4.400 einTökum Á öll Heimili Á
AuSTuRlAndi OG HORnAFiRði Auk dReiFbÝliS. blAðið liGGuR
einniG FRAmmi Á HelSTu þéT TbÝliSSTöðum Á AuSTuRlAndi.
UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Ég er mjög myrkfælin manneskja. Ég hef búið uppi í sveit og lent í því að vera gangandi ein á ferð í svartamyrkri og var ég farin að hlaupa við fót síðasta spölinn til að ná inn í birtuna. Þegar ég var
ung var ég orðin svo hvekkt að ég tók meðvitaða ákvörðun um að hætta að
lesa draugasögur. Síðan þá hef ég alltaf talið mér trú um að draugasögur
séu eintóm ímyndun og uppspuni sem hafi grasserað í skjóli myrkurs og
einangrunar. Í síðasta tölublaði Austurlands birtust nokkrar austfirskar
draugasögur, þar á meðal Vélstjórinn frá Aberdeen. Í sögunni er nefnt að
tekin hafi verið mynd af sjóreknu líki vélstjórans og því líst nákvæmlega.
Með sögunni í síðasta tölublaði birtist sakleysisleg mynd af Seyðisfirði.
Vegna þessarar forsögu minnar brá mér því ekki lítið þegar ég fékk mynd
senda í pósthólf mitt daginn eftir að blaðið kom út og það var ekki hvaða
mynd sem er heldur myndin sem lýst er svo nákvæmlega í sögunni. Aldrei
hef ég augum litið svakalegri mynd og verð ég að viðurkenna að næstu
nætur voru fremur svefnlausar. Alltaf þóttist ég sjá vélstjórann. Ég held
að ég afskrifi ekki draugasögur aftur sem eintóma ímyndun en reyni að
vera sem minnst ein á ferð í myrkri.
Í þessu blaði er fjallað aðeins um nokkrar sýningar sem eru í gangi.
Þar á meðal er sýningin „Yfir hrundi askan dimm“ sem fjallar um áhrif
Öskjugossins árið 1875. Virkilega áhugaverð og fróðleg sýning sem sýnir
hvað náttúran getur haft mikil áhrif og kollvarpað framtíðardraumum
fólks á örskotsstundu. Engin aska hefur komið úr gosinu í Holuhrauni
en sýningin „Yfir hrundi askan dimm“ sýnir svo ekki verður um villst að
mjög mikilvægt er að vera með virka viðbragðsáætlun. Einnig er sagt frá
sýningu ungra austfirskra listanema og ljóst af þeirri hugmyndaauðgi og
þeim hæfileikum sem þeir búa yfir að framtíðin ætti að vera björt hjá ungu
fólki sem fer í lista- og verknám.
Í blaðinu að þessu sinni er einnig fjallað um tvær austfirskar bækur sem
hafa komið út nú fyrir jólin. Það er ljóðabókin Undir berjabrekku eftir
Ágústu Ósk Jónsdóttur og skáldsagan Árdagsblik eftir Hrönn Jónsdóttur.
Sagt verður frá fleiri bókum í næsta tölublaði enda af nógu að taka. Austfirsk
bókaútgáfa er mjög fjölbreytt og góð þetta árið og verður yndislegt að njóta
jólanna og bjartari daga með góða bók í hönd.
Halldóra Tómasdóttir
Leiðari
Bráðum birtir
Auglýsingasíminn er 578 1190
Leik-
skólabörn
koma
færandi
hendi
Í síðustu viku komu börn, fædd 2009 og 2010, af leikskólunum Skógarlandi og Tjarnarlandi, fær-
andi hendi í A4 á Egilsstöðum. Börnin
færðu Hafrúnu og Hebu yfir 70 jóla-
myndir sem þau höfðu teiknað, litað og
málað. Að því loknu sungu þau nokkur
lög fyrir gesti og gangandi og fengu svo
mandarínur að launum. Stöllurnar í
A4 höfðu lagt leikskólunum til karton
og pappír og fengu þessar fínu myndir
að launum. Í aðalnámskrá leikskóla er
nefnt að auka eigi samstarf leikskóla
og samfélagsins sem þeir eru hluti af
og var þetta verkefni einn liður í því.
Rithöfundalest(ur) á Austurlandi
- skáldin koma um helgina 28. -30. nóvember nk.
Árviss rithöfundalest fer um Austurland helgina 28. til 30. nóvember. Á ferð verða
kunnir höfundar með nýjustu verk sín.
Þórarinn Eldjárn les úr bókum sínum
Fuglaþrugl og naflakrafl og Tautar
og raular frá Vöku Helgafelli, Soffía
Bjarnadóttir les úr fyrstu skáldsögu
sinni, Segulskekkja, sem Mál og menn-
ing gefur út og Kristín Eiríksdóttir fer
með eigin ljóð úr KOK sem kemur út
hjá JPV. Austfirðingurinn Gyrðir Elí-
asson opnar bækur sínar, Koparakur
og Lungnafiskana, sem eru frá Dimmu
og Gísli Pálsson er á Austurlandi í bók
sinni Maðurinn sem stal sjálfum sér,
sem Mál og menning gefur út.
Auk ofangreindra rithöfunda
verða með í för 5 austfirsk skáld og
þýðendur: Stefán Bogi, Hrafnkell Lár-
usson, Kristian Guttesen, Sigga Lára
Sigurjónsdóttir og Ingunn Snædal.
Rithöfundalestin nýtur stuðnings
Alcoa Fjarðaáls, Flugfélags Íslands,
Síldarvinnslunnar og Bílaleigu Akur-
eyrar auk forlaganna. Að henni standa
Menningarmálanefnd Vopnafjarðar,
Gunnarsstofnun, Skaftfell menningar-
miðstöð og Umf. Egill Rauði.
Viðkomustaðir eru fjórir að þessu
sinni. Lesið verður í Miklagarði á
Vopnafirði föstudagskvöld 28. nóv-
ember kl. 20: 30. Laugardag 29. nóv-
ember kl. 14: 00 verða höfundarnir
á Skriðuklaustri í Fljótsdal og um
kvöldið lesa þeir í Skaftfelli á Seyðis-
firði kl. 20: 30. Á sunnudaginn verða
þeir síðan í Safnahúsinu í Neskaupstað
kl. 13: 00.