Austurland - 27.11.2014, Qupperneq 3
www.velfag.is Vélfag ehf. // Múlavegur 18 / 625 Ólafsfjörður //// Njarðarnes 2 / 603 Akureyri /// 466 2635 // sales@velfag.is
Ánægðir notendur
Sjóvinnsla: Hundruð tonna í gegn og bara skipt um hnífa!
Heildstæð vélalína: M500 hausarar, M700 flökunarvél, M800 roðdráttarvélar
Marín vélasamstæðan frá Vélfagi ehf. hefur reynst okkur á Þerney RE sérstaklega vel. Þegar sótt er á fjarlæg fiskimið eins og Barentshafið
til að ná í mikið magn af fiski í hverri ferð eru Marín vélarnar þungamiðja vinnslunnar í skipinu. Rekstraröryggið er enn betur tryggt með
nýjungum í M700 og M800; 700 tonn af blönduðum þorski fara í gegn hjá okkur án þess að nokkuð þurfi að gera annað en skipta um
hnífa í M700.
Við í áhöfninni erum gríðarlega þakklátir fyrir að hafa fengið að taka virkan þátt með starfsmönnum Vélfags í því verkefni að hanna og þróa
fiskvinnsluvélar sem hafa náð þeim mikla og góða árangri eins og raun ber vitni.
M800 roðdráttarvél: 4 roðdráttareiningar!
Hægri og vinstri flök roðdregin sjálfstætt án truflana frá hinu.Tryggir hámarks flakagæði, nýtingu og afköst. Tvær aukaeiningar
ávallt klárar: skipt út á 3-5 mínútum. Hámarkar nýtingu og flakagæði mismunandi fisktegunda ásamt uppitíma vinnslunnar:
M800 roðvélar standa nú vaktina hér um borð í Þerney RE og nokkur þúsund tonn hafa þegar farið í gegnum þær. Á þeim tíma hefur varla
sést sporðklippt flak og frátafir vegna bilana eða þessháttar eru engar. Einstaklega þægilegt er að sinna reglubundnu viðhaldi;
roðdráttareiningin einfaldlega sett inn á vinnuborð og vinnan framkvæmd við bestu skilyrði á meðan M800 vinnur áfram með hinar.
Flækjustig M800 er ekkert. Einföld hönnun og meira rekstraröryggi
Marínmenn og vélstjórar á Þerney RE 1
M500 hausarar
Nýting jókst um 1-1,5%. Skurður á fiskinum beinni og fallegri. Betra og einfaldara að viðhalda og þrífa.
Marínmenn á Oddeyri EA-210
Landvinnsla: Afkastamikil og viðhaldslítil
M700 flökunarvélin frá Vélfagi ehf. er jafnan notuð mest af þeim vélum sem við erum með hér í fiskvinnslu Samherja á Dalvík.
Afköst vélarinnar eru góð sem og nýting og meðferð á flökum. Bilanatíðni er mjög lág og rekstrarkostnaður vélarinnar þar af leiðandi
líka. Auðvelt aðgengi gerir vélina mjög þægilega í viðhaldi, einfalt er að fjarlægja allar hlífar og bönd vélarinnar sem sparar einnig tíma til
stillinga og þrifa og góð vinnuaðstaða er við vélina. Í hönnun M700 vélarinnar hefur verið lagt upp úr því að velja efni sem er gott að
þrífa, sem er lykilatriði í matvælaframleiðslu.Varahlutaþjónusta Vélfags ehf. hefur verið til algjörrar fyrirmyndar, sem og öll önnur
samskipti við fyrirtækið vegna þjónustu við vélina.
Birgir Þór Gunnarsson, vélstjóri hjá Samherja Ísland ehf á Dalvík.