Austurland - 27.11.2014, Qupperneq 12
27. Nóvember 201412
Árdagsblik
eftir Hrönn Jónsdóttur
Út er komin bókin hjá Bókaút-gáfunni Hólum bókin Árdags-blik eftir Hrönn Jónsdóttur,
Djúpavogi.
Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar,
sem stendur nú á sjötugu, en eftir hana
hafa áður birst ýmis skrif s.s. í Glettingi
og Röddum að austan og fleiri ritum.
Bókin er óvenjuleg að því leyti að hún
gerist á Íslandi árið 700, talsvert fyrir
þann tíma sem landnám er talið hafa ha-
fist hér á landi og er hún að nokkru leyti
byggð á heimildum en að öðrum þræði
er farið frjálslega með staðreyndir.
Ritstjóri hafði samband við Hrönn
og spurði hana aðeins út í Árdagsblik.
Hrönn sagði að það væri löngu vitað og
sannað að hér á landi hafi verið byggð
löngu fyrir landnám. Ýmsir fræðimenn
svo sem Árni Óla, Sveinn Víkingur og
ýmsir menn tengdir háskólasamfélaginu
hefðu rannsakað og fært sönnur á það.
Einnig er vitað að Rómverji hafi siglt til
Íslands árið 300.
Í Árdagsbliki leiðir Hrönn saman
írska menn og norskar konur sem flúið
hafa frá Noregi. Þessir hópar ákveða að
byggja upp gott samfélag á Íslandi þótt
trúarbrögðin heiðni og kristni leiði til
einhverra átaka. Um er að ræða breiða
samfélagslýsingu en jafnframt ástarsögu
og segir Hrönn að sig hafi langað til að
skrifa bók sem væri laus við bölmóð og
styrjaldatal. Því megi segja að Árdagsblik
sé dálítið útópísk saga.
Það er ekki á hverjum degi sem
fyrsta bók sjötugs höfundar kemur út
en Hrönn segist ekki hafa haft tíma fyrr
því hún hafi alltaf verið að vasast í svo
mörgu. Hún er þegar byrjuð að vinna
að næstu bók, sem verður samtímasaga
sem gerist í litlu þorpi á Austurlandi.
Hún býst þó ekki við að verða jafn af-
kastamikil og Vilhjálmur Hjálmarsson.
Með hálfsmánaðar millibili voru
haldin tvö útgáfuteiti á Djúpavogi og
er það mjög óvenjulegt fyrir ekki stærri
stað.
Hrönn er byrjuð að kynna bókina
og hefur komið á nokkra staði. Alls
staðar hefur hún fengið höfðinglegar
móttökur og er hún innilega þakklát
fyrir það. Árdagsblik fæst í öllum helstu
verslunum landsins.
Undir berjabrekku
eftir Ágústu Ósk Jónsdóttur
Út er komin ljóðabókin Undir berjabrekku hjá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi.
Á bókarkápu kemur fram að Ágústa
Ósk Jónsdóttir er fædd árið 1940 að
Hrærekslæk í Hróarstungu á Fljóts-
dalshéraði. Hún missti móður sína
strax í frumbernsku og ólst upp hjá
föður sínum og systkinum. Eftir far-
skóla í heimabyggð stundaði hún nám
í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað
í tvo vetur og hóf síðan búskap á Jök-
uldal með manni sínum, Sigurjóni
Guðmundssyni, fyrst í Hnefilsdal en
lengst af bjuggu þau á Eiríksstöðum.
Þau fluttu til Egilsstaða árið 2001 þar
sem Ágústa vann við heimilishjálp
fyrst í stað. Hún var um þriggja ára
skeið formaður Félags eldri borgara
á Fljótsdalshéraði. Ágústa hefur ekki
flíkað kveðskap sínum en hefur þó birt
nokkur ljóð í blöðum og tímaritum og
í bókunum Raddir að austan (1999) og
Huldumál (2003).
Í bókinni eru rúmlega áttatíu ljóð
mismunandi að formi, lengd og efni.
Sum ljóðin fjalla um hversdagslega
iðju húsmóðurinnar eins og til dæmis
ljóðið Gömul haustvísa sem sýnir les-
andanum mynd af konu sem situr við
ljósið að haustlagi og saumar perlur í
svartan kjól á meðan barnið sefur vært
á hvítum útsaumuðum svæfli. Yndisleg
kyrrð fylgir þessari mynd. Einnig ljóðið
Óveður þar sem ljóðmælandi er því
feginn að eiga ekki lengur allt sitt undir
veðrinu og náttúrunni og getur notið
þess að vera inni í hlýjunni á meðan
óveðrið geysar fyrir utan.
Önnur ljóð eru svo nútímaleg að þau
fjalla um núvitund (gjörhygli) en það
er mikið tískuorð um þessar mundir.
Um mikilvægi þess að nema staðar og
njóta stundarinnar. Þannig er til dæmis
ljóðið Annríki sem lýkur svo: [. . . ]
Seinasta daginn
nemur þú staðar, örskotsstund
og spyrð út í bláinn:
Hvað hefur þú gefið mér, líf,
og hvað er orðið af því?
Ekki einu sinni þá
færðu skilið
að gleðin og hamingjan
voru alltaf á hælum þér
en náðu þér aldrei.
Ljóðabókin Undir berjabrekku er
yndisleg bók sem minnir lesandann á
að vera þakklátur fyrir að fá að njóta
íslenskrar náttúru, njóta hversdagsleik-
ans og stundarinnar. Manni líður vel
eftir að hafa lesið Undir berjabrekku.