Fréttablaðið - 03.03.2015, Page 2
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Einar, er allur vindur úr góða
veðrinu?
„Þar til fer að blása á ný.“
Byrjun ársins og fram yfir miðjan febrúar var
sú vindasamasta hér á landi í tuttugu ár sam-
kvæmt athugunum Einars Sveinbjörnssonar
á gögnum frá Garðaskagavita.
HEILBRIGÐISMÁL Ómskoðun verð-
andi mæðra er í uppnámi á Vest-
fjörðum eftir að eina ljósmóðirin
sem sinnti þeirri þjónustu á Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða sagði
upp um áramótin. Langan tíma
tekur að þjálfa upp starfsmann til
að sinna þessari þjónustu og eru
líkur á því að engar ómskoðanir
verði framkvæmdar á svæðinu það
sem eftir er þessa árs.
Þröstur Óskarsson, forstjóri
Heilbrigðisstofnunarinnar, segir
vilja til að þjálfa upp starfsmann
til að sinna þessari mikilvægu
þjónustu fyrir verðandi foreldra á
svæðinu. „Hjá stofnuninni starfa
tvær ljósmæður og við viljum að
þessi þjónusta sé til staðar á svæð-
inu,“ segir Þröstur. „Ljósmóðir
hefur komið til okkar frá Akranesi
upp á síðkastið en hún hefur hætt
störfum hjá okkur. Nú þurfum við
að þjálfa upp starfsmann en það
tekur tíma.“
Eina ómskoðun ársins á Vest-
fjörðum fór fram síðastliðinn
föstudag, 28. febrúar. Þá höfðu 108
dagar liðið frá síðustu ómskoðun.
Verðandi foreldrar hafa því allan
þennan tíma þurft að sækja þjón-
ustuna til höfuðborgarsvæðisins
með ærnum kostnaði.
Líklegt þykir að biðin gæti orðið
rúmlega ár eftir að nýr starfsmað-
ur með þjálfun í ómskoðun hefji
störf á Vestfjörðum ef þjálfa á
ljósmóður á svæðinu. Samkvæmt
Landspítalanum er ómskoðun
mjög sérhæfð og tæknileg vinna
og gert ráð fyrir að þjálfun taki
um tólf til átján mánuði.
Edda María Hagalín, verðandi
móðir á Ísafirði, segir ástand-
ið ótækt. „Ég hef í tvígang þurft
að fara suður til Reykjavíkur í
sónar skoðun með tilheyrandi
kostnaði og vinnutapi. Einnig hef
ég farið án maka í þessi skipti
þannig að þennan hluta meðgöng-
unnar höfum við ekki getað gert
þetta saman. Þetta ástand er óvið-
unandi og það verður að koma á
sónarskoðun á Vestfjörðum fyrir
barnshafandi mæður á svæðinu.
Við getum ekki farið suður þegar
okkur hentar því veðrið hefur nú
verið ansi erfitt síðustu vikur.“
Arna Lára Jónsdóttir, formaður
bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, telur
stöðuna sem upp er komin í þjón-
ustu við verðandi foreldra á Vest-
fjörðum óásættanlega og hamla
því að ungt fólk flytjist búferlum
inn á svæðið. „Það er algjörlega
óásættanlegt að ekki sé boðið upp
á sónarskoðun og hefur alvarleg
áhrif á búsetuskilyrði hér vestra,“
segir Arna Lára. „Við viljum gera
bæinn aðlaðandi fyrir ungt fólk
til búsetu og hvernig eigum við að
gera það þegar ríkisvaldið skerðir
grunnþjónustu sem þessa? Verð-
andi foreldrar munu ekki sætta sig
við að ekki sé boðið upp á sónar-
skoðun og eiga ekki að gera það.“
sveinn@frettabladid.is
Ekki boðið upp á
sónar á Vestfjörðum
Sónarskoðun verðandi mæðra á Vestfjörðum er í uppnámi. Þekkingin er ekki til
staðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Upp á síðkastið hefur ljósmóðir frá Akra-
nesi komið vestur. Hún hefur nú sagt upp og þarf að þjálfa upp ljósmóður í verkið.
HEILBRIGÐISSTOFNUN VESTFJARÐA 108 dagar liðu á milli sónarskoðana í vetur.
Sónarskoðað var 10. nóvember og svo aftur 28. febrúar. Nú hefur ljósmóðirin sagt
upp störfum og verður þjónustan því ekki veitt um sinn.
Það er
algjörlega
óásættanlegt
að ekki sé
boðið upp á
sónarskoðun
og hefur
alvarleg áhrif á búsetu-
skilyrði hér vestra.
Arna Lára Jónsdóttir,
formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar
SAMFÉLAG Verkefnisstjórn um endur-
mat á yfirfærslu á þjónustu við fatlað
fólk frá ríkinu til sveitar félaganna,
sem gerð var 2011 stefnir að því að
skila niðurstöðum fyrir lok apríl. Á
fundi stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga í síðustu viku segir í
bókun að náist ekki niðurstaða fyrir
mitt þetta ár um fullnægjandi fjár-
mögnun þjónustunnar til framtíðar,
að mati stjórnar sambandsins, verði
þegar hafist handa við að undirbúa
það að ríkið taki málaflokkinn aftur
til sín frá næstu áramótum.
Í minnisblaði sambandsins til
fjárlaganefndar síðastliðið haust
kom fram að ríkið þyrfti að leggja
til um 3 milljarða króna á þessu ári
til málaflokksins umfram það sem
verið hefur.
„Það var upphaflega ákveðið að
flytja 1,2 prósentustig af tekjuskatti
ríkisins yfir í útsvar. Við teljum að
það þurfi að fara upp í 1,33 prósentu-
stig. Það er mat okkar að það vanti
1,5 milljarða til að hægt sé að standa
undir þjónustunni. Það vantar einnig
um 150 milljónir króna á þessu ári
til tilraunaverkefnisins um notenda-
stýrða persónulega þjónustu og 160
milljónir vegna lengdrar viðveru
eftir skóla. Til að standa undir fram-
kvæmdaáætlun vegna breytinga á
húsnæðismálum vantar 1,3 millj-
arða,“ segir Karl Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Hann segir stöðu sveitarfélaga
misjafna. „Á Vestfjörðum hafa menn
hins vegar farið mjög hratt úr plús í
mínus.“
- ibs
Skila á endurmati á yfirfærslu á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok apríl:
Ríkið taki við á ný náist ekki niðurstaða
FRAMKVÆMDASTJÓRINN Karl Björns-
son, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir að flytja
þurfi 1,33 prósentustig af tekjuskatti
ríkisins yfir í útsvar.
SPURNING DAGSINS
Go Ahead
Kjarngóð ávaxtafylling í léttum
kexhjúp – gott á milli mála.
*Aðeins 57 kcal per kex
*
Létt í bragði
VEÐUR „Við hlökkum til sam-
starfsins, en fyrst og fremst er
þetta betri þjónusta við okkar
lesendur, hlustendur og áhorf-
endur,“ segir Kristín Þorsteins-
dóttir, aðalritstjóri 365, um nýjan
samning 365 við veðurfyrirtækið
Belging.
Belgingur mun sjá um veður-
fréttir á Stöð 2, í Fréttablaðinu
og á heimasíðu Vísis. Nýja fyrir-
komulagið, sem felur í sér ýmsar
nýjungar, verður tekið upp á
næstu vikum. Um er að ræða öfl-
ugri veðurþjónustu og betri fram-
setningu en verið hefur. Á sama
tíma hefur veðurfréttamönnum
á fréttastofu 365 verið sagt upp
störfum.
- ngy
Öflugri þjónusta væntanleg:
Belgingur sér
um veðurfréttir
SÚDAN, REUTERS Hundruðum ungra drengja var rænt í Suður-Súdan
fyrir tveimur vikum. Talið er að þeir verði notaðir í hernað en nú berj-
ast hátt í tólf þúsund börn í borgarastyrjöldinni sem þar ríkir. Frá þessu
greinir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem krefst þess að
börnunum verði sleppt.
Í fyrstu var talið að drengirnir væru 89 en nú liggur fyrir að þeir eru
mun fleiri. Vígasveit hliðholl stjórnvöldum er sögð hafa rænt börnunum
en stjórnvöld segjast ekki hafa tekið þátt í ráninu og hafna öllum ásök-
unum hvað það varðar. Vitni að ráninu segja mennina hafa farið hús úr
húsi og tekið alla drengi, tólf ára og eldri, með valdi. - ngy
Hátt í tólf þúsund börn berjast í borgarastyrjöld í Súdan:
Ungum drengjum rænt í hernað
BARNAHERMAÐUR UNICEF krefst þess að börnunum verði sleppt. NORDICPHOTOS/GETTY
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu leitar enn að öku-
manni sem ók á gangandi tólf ára
dreng og stakk svo af af vett-
vangi. Atburðurinn átti sér stað
á gatnamótum Stigahlíðar og
Bogahlíðar í Reykjavík síðastliðið
sunnudagskvöld.
Drengurinn kvaðst hafa komið
að gatnamótunum og þá hefði
fólksbíl verið ekið á hann með
þeim afleiðingum að hann kast-
aðist í götuna.
Drengurinn slasaðist ekki
alvarlega, en er tognaður á fæti og
marinn á mjöðm. Lögreglan segir
hann ekki geta gefið greinargóða
lýsingu á bílnum né ökumannin-
um. Engar vísbendingar hafa bor-
ist lögreglu. - ngy
Lögreglan leitar ökumanns:
Ók á dreng og
flúði vettvang
NEYTENDUR Íslandspóstur hefur
þurft að hafa samband við fjölda
fólks vegna þess að starfsmaður
fyrirtækisins brást starfsskyld-
um sínum og bar ekki út póst
til fólks. Þó nokkrir hafa fengið
afsökunarbeiðni frá Íslandspósti
ásamt langþráðum pósti. Jóla-
kort, tímarit og bréf eru meðal
þess sem hefur komið í leitirnar
og komist til skila. Íslandspóst-
ur gerði viðvart um atvikin um
miðjan febrúar og taldi eftir það
allan póst hafa komist til skila.
Annað hefur komið á daginn
og enn er fólki að berast póstur
vegna mistaka bréfberans.
Atvikin áttu sér stað í hluta
Hlíðahverf is og í þrem ur póst b-
urðar hverf um í Mos fells bæ og
Grafar vogi.
Hildur Helga Gísladóttir er
ein þeirra sem fengu afsökunar-
beiðni frá Íslandspósti ásamt
pósti sem henni barst ekki á til-
teknum tíma. „Ég hef reyndar
móttekið nokkur svona bréf og
veit um marga aðra sem hafa
gert það í gegnum árin. Í báðum
tilfellum tímarit, annað kom
tveimur mánuðum eftir útgáfu-
dag.“
Í afsökunarbeiðninni er tekið
fram að af óviðráðanlegum
orsökum hafi ekki verið hægt að
koma póstinum til skila. Þá er
tekið fram að umræddur starfs-
maður starfi ekki lengur hjá
fyrirtækinu og að viðeigandi
ráðstafanir hafi verið gerðar svo
hægt verði að koma í veg fyrir
að atvik sem þessi endurtaki sig
í framtíðinni.
- kbg
Íslandspóstur biðst innilega afsökunar vegna mistaka bréfbera:
Meira fannst af gömlum pósti
SÍÐBÚNAR PÓSTSENDINGAR Þess eru
dæmi að fólki berist jólakort nú í mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-3
6
2
0
1
3
F
B
-3
4
E
4
1
3
F
B
-3
3
A
8
1
3
F
B
-3
2
6
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K