Fréttablaðið - 03.03.2015, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 03.03.2015, Blaðsíða 19
BÍLAR E vróputilskipun um að blanda líf- rænum efnum, þar á meðal etan- óli, saman við bílabensín gekk í gildi í mars 2013. Frá 1. janú- ar 2014 tók áhrifa þessarar laga- setningar að gæta á þann veg að skylt var orðið að blöndunarhlut- fall lífræns eldsneytis skyldi vera 3,5%. Frá og með nýliðnum áramótum skal þetta hlutfall nú vera 5%. Ákvörðunin um lög- leiðingu tilskipunarinnar helst einnig í hendur við stefnumörkun yfirvalda á Ís- landi um að auka hlutfall lífrænna efna í eldsneyti fyrir samgöngur á landi. Seljend- um eldsneytis er í sjálfsvald sett hvaða leið þeir fara, þ.e. hvort þeir nota lífolíur í dísil eða etanól í bensín eða hvort tveggja. Sam- kvæmt upplýsingum frá FÍB virðist sem etanól-íblöndun sé ekki hafin hér enn. Hins vegar hafa íslensku olíufélögin, a.m.k. sum þeirra, undirbúið sig fyrir hana, m.a. með því að endurnýja birgðageyma með nokkr- um tilkostnaði. Íslensk olíufélög flytja inn dýra lífolíu Tilgangur þessarar etanól-íblöndunar er sá að hækka hlutfall endurnýjanlegs eldsneyt- is í samgöngum á landi upp í 10 prósent til ársins 2020. Samkvæmt lögunum hefði hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í heild- arsölu á bifreiðaeldsneyti átt að vera 5% fyrir lok síðasta árs. En þótt etanólblöndun- in sé ekki komin í gang hafa íslensku olíu- félögin nú um nokkurt skeið flutt inn dýra lífolíu og blandað saman við hefðbundna dísilolíu og uppfyllt þannig kröfur laganna um hækkað hlutfall lífræns eldsneytis. Þegar kostað 700 milljónir króna Glúmur Björnsson, efnafræðingur og stjórnandi rannsóknastofunnar Fjölvers, telur að þessi innflutningur hafi þegar kostað Íslendinga um 700 milljónir króna í auknum útgjöldum í erlendum gjaldeyri og að væntanleg etanólblöndun í bensín eigi eftir að auka hann enn. Alþingi geti reynd- ar hæglega komið í veg fyrir frekara fjár- hagstjón Íslendinga, bæði kostnað við inn- kaup á dýrum lífolíum og etanóli og aukna eyðslu í bílvélum, með því að breyta lögun- um um endurnýjanlegt eldsneyti. Vafasamur ávinningur af etanólblöndun 1 Etanól (vínandi) er ríflega þriðjungi orkurýrara en bensín. Það þýðir að eyðsla bíla sem ganga fyrir bensíni sem útþynnt hefur verið með vínanda eykst um 3-5 prósent eftir því hversu mikil þynningin er. 2 Etanól er 20-25 prósent dýrara í innkaup- um en bensín. Bæði verðið og aukið um- stang og kostnaður við að flytja það, geyma og blanda því saman við bensínið til að skapa verra eldsneyti þýðir hærra lítraverð auk þess sem eyðsla bílanna eykst. Þessi aukni kostnaður leggst á neytendur. 3 Etanólið er að meginhluta framleitt úr maís. Framleiðsla etanóls sem íblöndun- arefnis í bílabensín hefur þegar leitt til verðhækkana á maís. „Etanólið er unnið úr korni sem gæti nýst sem matur fyrir þá sem búa við hungur væri það ekki flutt til Íslands til að þynna út bensínið,“ segir Glúmur Björnsson. 4 Bílaframleiðendur hafa varað við íblönd- un á eldsneyti á bíla þeirra og ábyrgjast ekki skemmdir þeim. Sumir þeirra hafa sagt að meiri en 0,5% íblöndun sé hættu- leg bílvélum og að þær séu ekki gerðar fyrir hærra hlutfall. Tilskipunin miðast ekki við íslenskar aðstæður ESB-tilskipunin umrædda er hluti áætl- unar ESB um að hlutfall endurnýjanlegr- ar orku í öllu jarðefnaeldsneyti hvort held- ur því er brennt til samgangna á láði, í lofti eða á legi eða til annarra nota, eins og til húsahitunar/-kælingar eða í iðnaði, skuli vera orðið 20% árið 2020. Tilskipunin mið- ast þannig fyrst og fremst við þær aðstæð- ur sem ríkja í Evrópu. Á Íslandi eru þær hins vegar allt aðrar og algerlega ósam- bærilegar við hinar evrópsku. Hér á landi eru aðstæður nefnilega þær að áratugir eru liðnir síðan Ísland náði þessu heildarmarkmiði ESB um 20 pró- senta hlutfall endurnýjanlegrar orku í heildar-orkunotkunarpakkanum og það margfaldlega. Hlutfall endurnýjanlegrar orku á Íslandi er nefnilega ekki 20%, held- ur 75%. Varað við íblöndun á Alþingi Það var ekki síst bandaríski umhverfis- sinninn Al Gore sem á sínum tíma hvatti mjög til þess að vinna etanól til eldsneytis og til að blanda út í bensín og lækka þannig koltvísýringsútblásturinn frá bílum. Hann er greinilega ekki sama sinnis lengur og segir að þetta hafi verið mistök hjá sér. Þá er farið að gæta verulegra efasemda hjá bandarísku umhverfisstofnunni með þessa aðferð. Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur í mörgum þingræðum varað við öllum ókostum þess- arar lagasetningar hér og ekki síst þeim kostnaði sem fellur á almenning. Það hefur ekki enn orðið til breytinga á lögunum, eða öllu heldur afnáms þeirra. Í samtali við Erlu Sigríði Gestsdóttur hjá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu kom fram að ekki stendur til að breyta lögunum. ER ÍBLÖNDUNIN SÓUN ALMANNAFJÁR? Evróputilskipun um íblöndun lífræns etanóls í bensín færir Íslendingum dýrara og verra bensín. Er ætlað þjóðum sem ekki hafa náð 20% notkun endurnýjanlegrar orku, en hún er 75% á Íslandi. Íblöndun skemmir auk þess vélar. ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2015 VERÐLÆKKUN Á EXIDE RAFGEYMUM Nýjar birgðir á lager af áreiðanlegum og traustum rafgeymum, nú á lækkuðu verði vegna niðurfellingar vörugjalds. Fáanlegir í öllum stærðum og gerðum. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 15 04 77 0 2 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F B -6 7 8 0 1 3 F B -6 6 4 4 1 3 F B -6 5 0 8 1 3 F B -6 3 C C 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.