Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 19
BÍLAR
E
vróputilskipun um að blanda líf-
rænum efnum, þar á meðal etan-
óli, saman við bílabensín gekk
í gildi í mars 2013. Frá 1. janú-
ar 2014 tók áhrifa þessarar laga-
setningar að gæta á þann veg að
skylt var orðið að blöndunarhlut-
fall lífræns eldsneytis skyldi vera 3,5%.
Frá og með nýliðnum áramótum skal þetta
hlutfall nú vera 5%. Ákvörðunin um lög-
leiðingu tilskipunarinnar helst einnig í
hendur við stefnumörkun yfirvalda á Ís-
landi um að auka hlutfall lífrænna efna í
eldsneyti fyrir samgöngur á landi. Seljend-
um eldsneytis er í sjálfsvald sett hvaða leið
þeir fara, þ.e. hvort þeir nota lífolíur í dísil
eða etanól í bensín eða hvort tveggja. Sam-
kvæmt upplýsingum frá FÍB virðist sem
etanól-íblöndun sé ekki hafin hér enn. Hins
vegar hafa íslensku olíufélögin, a.m.k. sum
þeirra, undirbúið sig fyrir hana, m.a. með
því að endurnýja birgðageyma með nokkr-
um tilkostnaði.
Íslensk olíufélög flytja inn dýra lífolíu
Tilgangur þessarar etanól-íblöndunar er sá
að hækka hlutfall endurnýjanlegs eldsneyt-
is í samgöngum á landi upp í 10 prósent
til ársins 2020. Samkvæmt lögunum hefði
hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í heild-
arsölu á bifreiðaeldsneyti átt að vera 5%
fyrir lok síðasta árs. En þótt etanólblöndun-
in sé ekki komin í gang hafa íslensku olíu-
félögin nú um nokkurt skeið flutt inn dýra
lífolíu og blandað saman við hefðbundna
dísilolíu og uppfyllt þannig kröfur laganna
um hækkað hlutfall lífræns eldsneytis.
Þegar kostað 700 milljónir króna
Glúmur Björnsson, efnafræðingur og
stjórnandi rannsóknastofunnar Fjölvers,
telur að þessi innflutningur hafi þegar
kostað Íslendinga um 700 milljónir króna í
auknum útgjöldum í erlendum gjaldeyri og
að væntanleg etanólblöndun í bensín eigi
eftir að auka hann enn. Alþingi geti reynd-
ar hæglega komið í veg fyrir frekara fjár-
hagstjón Íslendinga, bæði kostnað við inn-
kaup á dýrum lífolíum og etanóli og aukna
eyðslu í bílvélum, með því að breyta lögun-
um um endurnýjanlegt eldsneyti.
Vafasamur ávinningur af etanólblöndun
1 Etanól (vínandi) er ríflega þriðjungi
orkurýrara en bensín. Það þýðir að
eyðsla bíla sem ganga fyrir bensíni sem
útþynnt hefur verið með vínanda eykst
um 3-5 prósent eftir því hversu mikil
þynningin er.
2 Etanól er 20-25 prósent dýrara í innkaup-
um en bensín. Bæði verðið og aukið um-
stang og kostnaður við að flytja það,
geyma og blanda því saman við bensínið
til að skapa verra eldsneyti þýðir hærra
lítraverð auk þess sem eyðsla bílanna
eykst. Þessi aukni kostnaður leggst á
neytendur.
3 Etanólið er að meginhluta framleitt úr
maís. Framleiðsla etanóls sem íblöndun-
arefnis í bílabensín hefur þegar leitt til
verðhækkana á maís. „Etanólið er unnið
úr korni sem gæti nýst sem matur fyrir
þá sem búa við hungur væri það ekki
flutt til Íslands til að þynna út bensínið,“
segir Glúmur Björnsson.
4 Bílaframleiðendur hafa varað við íblönd-
un á eldsneyti á bíla þeirra og ábyrgjast
ekki skemmdir þeim. Sumir þeirra hafa
sagt að meiri en 0,5% íblöndun sé hættu-
leg bílvélum og að þær séu ekki gerðar
fyrir hærra hlutfall.
Tilskipunin miðast ekki við íslenskar aðstæður
ESB-tilskipunin umrædda er hluti áætl-
unar ESB um að hlutfall endurnýjanlegr-
ar orku í öllu jarðefnaeldsneyti hvort held-
ur því er brennt til samgangna á láði, í lofti
eða á legi eða til annarra nota, eins og til
húsahitunar/-kælingar eða í iðnaði, skuli
vera orðið 20% árið 2020. Tilskipunin mið-
ast þannig fyrst og fremst við þær aðstæð-
ur sem ríkja í Evrópu. Á Íslandi eru þær
hins vegar allt aðrar og algerlega ósam-
bærilegar við hinar evrópsku.
Hér á landi eru aðstæður nefnilega þær
að áratugir eru liðnir síðan Ísland náði
þessu heildarmarkmiði ESB um 20 pró-
senta hlutfall endurnýjanlegrar orku í
heildar-orkunotkunarpakkanum og það
margfaldlega. Hlutfall endurnýjanlegrar
orku á Íslandi er nefnilega ekki 20%, held-
ur 75%.
Varað við íblöndun á Alþingi
Það var ekki síst bandaríski umhverfis-
sinninn Al Gore sem á sínum tíma hvatti
mjög til þess að vinna etanól til eldsneytis
og til að blanda út í bensín og lækka þannig
koltvísýringsútblásturinn frá bílum. Hann
er greinilega ekki sama sinnis lengur og
segir að þetta hafi verið mistök hjá sér. Þá
er farið að gæta verulegra efasemda hjá
bandarísku umhverfisstofnunni með þessa
aðferð. Frosti Sigurjónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, hefur í mörgum
þingræðum varað við öllum ókostum þess-
arar lagasetningar hér og ekki síst þeim
kostnaði sem fellur á almenning. Það hefur
ekki enn orðið til breytinga á lögunum, eða
öllu heldur afnáms þeirra.
Í samtali við Erlu Sigríði Gestsdóttur hjá
atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu kom
fram að ekki stendur til að breyta lögunum.
ER ÍBLÖNDUNIN SÓUN ALMANNAFJÁR?
Evróputilskipun um íblöndun lífræns etanóls í bensín færir Íslendingum dýrara og verra bensín. Er ætlað þjóðum
sem ekki hafa náð 20% notkun endurnýjanlegrar orku, en hún er 75% á Íslandi. Íblöndun skemmir auk þess vélar.
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2015
VERÐLÆKKUN
Á EXIDE RAFGEYMUM
Nýjar birgðir á lager af áreiðanlegum og traustum rafgeymum, nú á lækkuðu
verði vegna niðurfellingar vörugjalds. Fáanlegir í öllum stærðum og gerðum.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
15
04
77
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
B
-6
7
8
0
1
3
F
B
-6
6
4
4
1
3
F
B
-6
5
0
8
1
3
F
B
-6
3
C
C
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K