Fréttablaðið - 03.03.2015, Page 20
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
N
ú þegar rætt er
um að Apple hygg-
ist framleiða bíla
er forvitnilegt að
skoða hvaða fram-
leiðendur sem ekki
hafa framleitt bíla
áður og eru þekktir fyrir aðra
framleiðslu hafa sett bíla á
markað og hvernig þeim vegn-
aði. Stóra vöruhúsið Sears í
Bandaríkjunum setti Kaiser-
Frazer-bílinn á markað snemma
á sjötta áratug síðustu aldar.
Ekki seldist hann vel og fram-
leiðslunni var hætt eftir aðeins
tvær árgerðir af bílnum. Kai-
ser-Frazer var reyndar bíla-
framleiðandi sem stofnaður var
upp úr seinna stríði og fram-
leiddi nokkrar gerðir bíla en
var seldur til American Motors
Corporation árið 1963 sem síðan
var keypt af Chrysler árið 1987.
Sears seldi hins vegar þennan
Kaiser-Frazer-bíl þessi 2 ár en
gekk lítið þrátt fyrir lágt verð.
Hunslet og Fuldamobil
Hunslet Engine Company fram-
leiddi einnig þriggja hjóla bíl
milli áranna 1957 og 1964, en
fyrirtækið framleiddi aðallega
lestir. Bíllinn var framleidd-
ur þar sem eiginkona eins af
stjórnendum fyrirtæksins vildi
eignast bíl sem væri auðveld-
ara að leggja en Jaguar-bíln-
um sem hún átti. Það leiddi til
fjöldaframleiðslu hans en að-
eins voru framleiddir um 1.000
bílar og er það til vitnis um eft-
irspurnina eftir bílnum knáa.
Fuldamobil var framleiddur af
Elektromaschinenbau Fulda
GmbH í Þýskalandi, sem var
þekkt fyrir framleiðslu raf-
geyma. Bíllinn var framleiddur
á árunum 1950 til 1969 en ekki
er ljóst hve margir slíkir bílar
voru framleiddir. Vafalaust eru
bílarnir miklu fleiri sem önnur
fyrirtæki en þau sem þekkt eru
fyrir bílaframleiðslu hafa sett
á markað, en þetta eru bara
örfá slík dæmi og ef til vill lýs-
andi fyrir hvernig þeim vegn-
aði.
BÍLAR FRÁ „EKKI-
BÍLAFRAMLEIÐENDUM“
Fáum fyrirtækjum sem ekki eru þekktir bílaframleiðendur hefur
tekist vel að selja bíla sína fram að þessu. Sjáum hvað Apple gerir.
G
ríðarlegur áhugi er
fyrir rafbílum í Nor-
egi. Auk mikillar vit-
undarvakningar um
umhverfisáhrif raf-
bíla eru ívilnanir
vegna rafbílakaupa
mjög hagstæðar, en eins og á Ís-
landi eru hvorki vörugjöld né
virðisaukaskattur lagður á raf-
bíla. Einnig hefur reynsla rafbíla-
eigenda verið mjög góð og er því
stundum haldið fram að rafbíla-
eigendur séu sjálfir bestu sölu-
menn rafbíla.
Sala rafbíla í Noregi er einstök
í Evrópu, en 1 af hverjum 3 rafbíl-
um sem seldust í Evrópu á árinu
2014 var seldur í Noregi. Á síð-
astliðnu ári tvöfaldaðist rafbíla-
salan í Noregi frá árinu á undan,
en seldir voru yfir 18.000 raf-
bílar til einkanota. Þetta jafngild-
ir 12,5% af heildarbílasölu ársins,
en til samanburðar var hlutfall
rafbíla 5,5% af seldum bílum árið
2013. Enn er þó nokkuð í land með
að markmið norsku ríkisstjórn-
arinnar um að 20-30% hluti bíla-
sölunnar séu rafbílar eða tvíorku-
bílar náist og Því má reikna með
áframhaldandi mikilli áherslu
næstu árin á að gera leið rafbíla
greiða inn á norskan bílamarkað.
Frábærar viðtökur e-Golf í Noregi
Árið 2014 varð einnig ár Volks-
wagen Golf Í Noregi, en þar seld-
ust tæplega 10.000 VW Golf, sem
er tæplega 7% af öllum seldum
bílum til einkanota. Hér hafði inn-
koma e-Golf sterk áhrif, en bíll-
inn hefur hlotið mjög góðar við-
tökur norskra bílakaupenda. Góð
sala e-Golf og e-up! varð til þess að
Volkswagen var söluhæsta vöru-
merkið með rafbíla til einkanota á
árinu 2014. Velgengni Volkswagen
heldur áfram árið 2015, en í janúar
var tæplega helmingur allra seldra
rafbíla e-Golf, en afhentir voru
tæplega 900 e-Golf í mánuðinum.
Það er því óhætt að segja að e-Golf
hafi tekið afgerandi forystu á raf-
bílamarkaðinum í Noregi.
e-Golf kominn til Íslands
Fyrstu Volkwagen e-Golf bílarn-
ir voru afhentir íslenskum kaup-
endum í síðasta mánuði. Árni
Þorsteinsson, sölustjóri Volkswa-
gen hjá Heklu, segir að fjölmarg-
ir hafi reynsluekið bílnum frá
því að hann var kynntur á Ís-
landi og viðtökurnar séu afar já-
kvæðar. Það sem komi fólki helst
á óvart sé snerpan, hljóðlátur
akstur, tæknin og þægindin í
VW e-Golf. Árni telur að marg-
ar ástæður séu fyrir vinsældum
e-Golf í Noregi. Bílinn byggir á
40 ára reynslu Volkswagen með
Golf. Helstu breytingarnar sem
e-Golf eigandi upplifir í akstri er
fullkomlega hljóðlátur akstur í
bíl með gríðarlegri snerpu og að-
eins einum drifgír. Rafhlaðan í
bílnum er sérlega endingargóð en
Volkswagen veitir 8 ára ábyrgð á
rafhlöðunni sem er hönnuð til að
taka sem minnst pláss. Aksturs-
drægni bílsins er allt að 190 km,
sem gerir e-Golf að bíl sem hent-
ar akstursþörfum langflestra.
Árni segir þetta henta Íslending-
um afar vel, enda sé meðalakst-
ur Íslendinga undir 40 km á dag.
Hægt er að reynsluaka Volkswa-
gen e-Golf og e-up! hjá Heklu og
minnir Árni á að ekkert jafnist á
við prófa sjálf/ur.
SLÆR Í GEGN Í NOREGI
Volkswagen með mest seldu rafbílana í Noregi 2014.
Samkvæmt fréttum frá Wall Street Journal er bíll frá tölvuframleiðand-
anum Apple á leiðinni og sagt er að mörg hundruð manns vinni að þessu
verkefni hjá Apple. Þessi bíll er, eins og eðlilegt gæti talist, rafmagns-
bíll og hefur verkefni kringum smíði hans fengið nafnið Project Titan.
Bíllinn er í laginu eins og smár sendibíll, eða „strumpastrætó“, eins og
gárungarnir myndu kalla hann. Ef að líkum lætur yrði hann þó örugg-
lega jafn frumlega hannaður og aðrar vörur frá Apple. Apple hefur
ráðið nokkra reynda menn úr bílageiranum til að leiða verkefnið og fer
verkfræðingurinn Steve Zadesky, sem áður vann hjá Ford, fyrir hópnum.
Apple réð einnig Johann Jungwirth frá Mercedes Benz til verksins.
Framleiðir Magna Steyr bílinn?
Apple hefur nú hafi ð viðræður við austurríska fyrirtækið Magna Steyr
um eiginlega smíði bílsins, en Magna Steyr er þekkt fyrir að hafa smíðað
margan bílinn fyrir þekkta bílaframleiðendur, ekki síst blæjubíla, sem fyr-
irtækið hefur sérhæft sig í. Sögusagnir herma að Apple hafi undanfarið tælt
nokkra af starfmönnum Tesla til sín með bæði tvöföldun launa og undir-
skriftarbónus upp á 250.000 dollara, eða ríflega 33 milljónir króna. Það eiga
nokkrir þeirra ekki að hafa staðist og því hefur nokkur straumur starfsfólks
verið frá Tesla til Apple undanfarið. Oft áður hafa fréttir verið færðar af
hugmyndum Apple um að smíða svokallaðan iCar, en nú virðist sem farið sé
að styttast í bíl frá Apple, hvort sem hann mun heita iCar eður ei.
Mörg hundruð manns
vinna að þróun Apple-bíls
Fram kemur hjá Bílabúð Benna, umboði Porsche á Íslandi, að Cayenne S
E-Hybrid hafi hlotið frábærar viðtökur hérlendis og að ljóst sé að þessi
umhverfi svæna útgáfa af sportjeppanum falli mönnum sérlega vel í geð.
Samkvæmt fregnum frá Bílabúð Benna hefur fyrirtækinu tekist að auka
kvóta sinn af rafmagnsútgáfu Porsche Cayenne. Ánægðir viðskipta-
vinir eru að taka á móti fyrstu bílunum þessa dagana. „Það er ljóst að
þessi magnaði bíll fullnægir öllum markmiðum Porsche um einstaka
sporteiginleika og akstursupplifun,“ segir Thomas Már Gregers, sölu-
stjóri Porsche á Íslandi. „Með Cayenne S E-Hybrid er fólk að tryggja sér
sportjeppa sem getur gengið eingöngu fyrir rafmagni, eingöngu fyrir
bensíni eða virkjað báða aflgjafana jöfnum höndum. Honum er stungið
í samband við heimilisrafmagn og hleðslustöð fylgir með. Tölurnar tala
sínu máli, bíllinn er 416 hö og togið er 590 Nm. Uppgefi n eyðsla bílsins
er ekki nema 3,4 l/100 km, en á sama tíma sver þessi bíll sig í ættina við
aðra sportbíla frá Porsche og er ekki nema 5,9 sek. frá 0-100 km/klst.,“
segir Thomas. Verð Porsche Cayenne S E-Hybrid er 13.490.000 kr. og
er hann þrjú hundrað þúsund krónum ódýrari en Cayenne með dísilvél,
þökk sé engum vörugjöldum á þessum magnaða bíl.
Rafdrifinn Porsche Cayenne
heldur innreið sína á Íslandi
Audi er nú að fara að kynna nýja
kynslóð sportbílsins Audi R8
og kemur hann fyrst fyrir sjónir
gesta á bílasýningunni í Genf
sem er um það bil að he ast.
Engu að síður hefur lekið út að
vélin í bílnum er 5,2 lítra V10-
bensínvél sem annars vegar
skilar 540 hestöflum og hins
vegar 610 hestöflum. Með þeim báðum skilar bíllinn sér í hundrað kíló-
metra hraða á innan við 3,5 sekúndum. Báðir eru þeir einnig með meiri
hámarkshraða en 320 km/klst. Núverandi Audi R8 má fá með V8-vél
sem skilar 430 hestöflum og V10-vél sem skilar 525 eða 550 hestöflum.
Sá nýi er sagður 40% stífari, 30 millimetrum lægri og vega aðeins 1.500
kíló. Ennfremur er komin í bílinn stilling fyrir grimmari akstur og nýtt
rafrænt kerfi fyrir stýringu bílsins. Bíllinn verður aðeins fáanlegur með 7
gíra sjálfskiptingu og ekki verður lengur hægt að fá hann beinskiptan.
Nýr Audi R8
með 540 eða 610 hestöfl
Kaiser-Frazer
Hunslet
Fuldamobil
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-6
2
9
0
1
3
F
B
-6
1
5
4
1
3
F
B
-6
0
1
8
1
3
F
B
-5
E
D
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K