Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1990, Blaðsíða 11
FRÉTTIR - fimmtudaginn 13. desember 1990
11
í það minnsta
kertí og spíl
«
Oddurinn er orðinn yfirfullur af alls-
kyns gjafavörum og föndurdóti.
Nýju kaupmennirriir hafa aukið
vöruúrvalið til muna og má nú finna
flest það sem vantar í jólapakkann.
Svo má ekki gleyma að í Oddinum
er sérstakt „Skóhorn" þar sem jóla-
sveinarnir finna ýmislegt til að gefa
góðu börnunum í skóinn.
Á myndinni er Jóhanna Gunn-
laugsdóttir, afgreiðslustúlka, að að-
stoða Dröfn og Guðlaugu Gísladæt-
ur við val á jólakortum.
I
Jólakortin með „myndinni þinni"
fást í Foto. en Guðmundur og hanns
lið selja fleira en jólakort því allt sem
lýtur að Ijósmyndum fæst í búðinni.
Upplagðar gjafir fyrir unga sem
aldna og svo er einnig mikið úrval af
alls kyns myndum frá Eyjum til sölu
þar.
Á myndinni afgreiðir Selma Ragn-
arsdóttir, afgreiðslumær, Sigríði um
jólakortin sem hún átti í pöntun.
Jólafimleikamót!
Jólamót og sýning verður í íþróttahúsinu sunnudaginn
16. desember n.k. kl. 14:00.
Vestmannaeyingarfjölmennum í jólaskapi.
Fimleikafélagið Rán
DAS og SÍBS
Útborgun vinninga verður mánudaginn 17. desember
kl. 13:00- 17:00.
Endurnýjun hefst miðvikudaginn 2. janúar kl. 13:00.
Ég óska öllum Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og
þakka viðskiptin á árinu sem er að líða. Kær kveðja.
Anna Jóhannsdóttir
Jólatónleikar
Jólatónleikar kórs Landakirkju verða í Landakirkju
sunnudaginn 16. desember kl. 20:30. Einsöngvarar
verða Geir Jón Þórisson og Gunnar Guðbjörnsson.
Aðgangseyrir kr. 500,-
Kór Landakirkju
íbúð óskast
»
Það kentiir margra grasa á Kránni
við Boðaslóð, því auk hefðbundinn-
ar „sjoppuvöru“ eru ýmsar smávörur
sem gott getur verið að ná í eftir að
búið er að loka almennum matvöru-
verslunum. Selma og Jón Óli eiga
nægar birgðir af öli, gosdrykkjum og
konfekti svo þar er hægt að komast í
jólastemmingu eins og í öðrum versl-
unum bæjarins.
Á myndinni afgreiðir Selma tvo
ánægða viðskiptavini.
4
Mikið úrval snyrtivara er að Finna í
Ninju. Rakspíri og ilmvatn eru vin-
sælar jólagjafir og af því er nóg í
Ninju. Auk þess eru alls konar snyrt-
ivörur fyrir konur og karla. „Svo
megið þið ekki gleyma frábæru
undirfötunum. Ef eigninmaðurinn
vill gefa konunni gjöf sem gleður þau
bæði þá er tilvalið að gefa undirfötin
frá okkur. Ég sver að þau eru meir-
iháttar. Tomma finnst það líka,“
sagði Harpa kaupkona í Ninju.
Á myr.dinni afgreiðir hún tvo
ánægða viðskiptavini.
i
I Kósý er brjálað úrval af sjúklega
geggjuðum meiriháttar fötum fyrir
alla. Helga Dís hefur fyllt búðina af
fatnaði, jafnt á dömur sem herra, og
þau eru mergjuð, eins og hún orðaði
það sjáif. Það er óhætt fyrir strákana
að kíkja í Kósý og kaupa föt á
kærustuna því Helga Dís og hennar
lið aðstoða við valið „og máta og
allt“ ef með þarf.
Á myndinni aðstoðar Helga Dís
Gurru við valið.
Bergur - Huginn óskar eftir 3ja - 4ra herbergja íbúð, á
leigu, fyrir einn af væntanlegum starfsmönnum síntim.
Upplýsingar © 11444.