Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1990, Side 12
Fímmtudaginn 13. desember 1990 • FRÉTTIR
• Afmælisbörnin fengu blóm i tilefni dagsins.
Afmœlisveisla
í Áhaldahúsinu
TIPP
ÞÁTT-
URINN
Siguröur hornamaöur varö aö
lúta í lægra haldi fyrir Bjössa
Ella, sem nú hefur tekiö stefnuna
á áriö 1993 í tippinu. Ætlar að slá
Lalla Koba út svo um munar, en
eins og einhverjir muna þá lafði
hann á tippinu í einar 19 vikur.
Björn Elíasson
Þetta var nokkuð gott hjá Sigga.
Hann setti víst persónulegt met
(hafði tvo rétta). Þetta er allt í lagi
Siggi minn, ekki gráta, þú færð
aö keppa við mig aftur áriö 1993.
Næst ætla ég aö skora á
Liverpoolmann, sem er búinn aö
væla mikið í mér. Hann heldurað
hann sé undramaður í tippinu.
Ragnar Hilmarsson, velkom-
inn til leiks, ég vona að það fari
ekki eins og fyrir mér og Sigga
litla.
1. Arsenal - Wimbledon b y ■. x.
2. Coventry - Manch Umted B 'r
3. Derby Counly - Chelsea E
: 4. Manch. City - Tottenham . B * ' . _2J
5. Q.P.R. - Notth. Forest D T Zl
6. Southampton - Aston Villa B / a C3
7: Sunderland - Norwich City B / T: Xj-
8. Blackburn - Bri6tol City D ESI G3.
9. Bnqhton - Barnsley D CZI
10. Oldham - Wolves m s : x;ca
11. Sheff. Wed. 7 Ipswict) Towr) m [xj'CEi
12. West Ham - Middiesbro m :a [xj m
Ragnar Hilmarsson
Bjössi er samviskusamur maöur
og leggur sig í hlutina. Hann
liggur yfir hlutunum frá mánudegi
til miövikudags. Honum fannst
fara of mikill í þetta hjá sér og
talaði um aö koma sér út úr
tippþættinum, því ákvað hann aö
skora á mig. Hann veit sem er aö
það stríðir honum enginn, þar
sem þaö þykir ekki skömm aö
tapa fyrir mér. Skynsamur maður
Björn!
1. Arsenal - Wimbledon B 0 E C3
2. Coventry - Manch. Umted B CD Gð E
; 3. DerbyCounty-Chelsea________BQ_00
4 Manch City - Tottenham B ® t3 H
5. O.P.R. - Notth. Forest B ŒJ S ffl
6. Southampton - Aston Villa__B [Z1 S [13
7. Sunderland - Norwich City BSIMI
8. Blackburn - Bristol City . B [3 [Z1 S3 .
9. Brighton-Barnsley__________BQ_00
10. Oldham - Wolves ÐGÐ El CE)
.11. Sheft. Wed. - Ipswich Town B \Z\ E1C3
12. West Ham - Middlesbro_____PLZl GD [jl1|
í heljurmikilli afniælisveislu ■
Áhaldahúsinu l'yrir skömniu var
mikið um dýrðir enda áttu tveir
merkismenn afmæli, Kjartan
Bjarnasnn í Djúpadal og Birgir Sím-
onarson. Kjartan fyllti sjötíu árin og
Birgir náði þeim áfanga að verða
fimmtugur en báðir hafa þcir verið
starfsmenn hæjarins í áratugi.
I kaffistofu Áhaldahússins voru
samankomnir flestir samstarfsmenn
þeirra sem vildu gera þeim glaðan
dag í tilefni dagsins. Kristinn V.
Pálsson flutti þeim ávarp þar sem
hann rakti æviferil þeirra á léttu
nótunum og var gerður góður rómur
að því. f niðurlagi sagði hann:
„Heiðruðu afmælisbörn og Birgir
Símonarson! Þar sem ég veit, að
ykkur hefur ekki orðið fótaskortur á
hinum hálu brautum mannlífsins og
lagt af mörkum eitt og annað í hinni
ánægjulegu tilveru okkar. Þá vil ég
biðja félaga mína að skála fyrir ferli
ykkar á lífsleiðinni."
J. Hinriksson hf.
Selur tog
hlera um
víða veröld
I fréttatilkynningu frá J. Hinriks-
son hf. kemur fram að fyrir stuttu
seldi fyrirtækið rétt tæp 100 þús. kíló
af toghlerum á einni viku.
Um er að ræða hlera af gerðinni
Poly-Ice, sem hafa selst ótrúlega vel
undanfarið eftir því sem segir í
fréttatilkynningunni. Þessa viku
voru seld fjögur stór pör í íslenska
togara og þrettán pör af minni stærð-
um til Bandaríkjanna. Til Grænlands
voru seld fjögur stór pör fyrir frysti-
togara og rækjuskip og auk þess
mikið magn af vara slitskóm. Öll
voru þau seld með lásum og bak-
stroffubúnaði. Einnig voru afgreidd-
ir varatoghleraskórskór fyrir „Polar
princess". Eitt par var selt til danska
rækjutogarans Ocean Prawns og er
þetta f fimmta skipti sem fyrirtækið
selur toghlera í þennan stærsta og
glæsilegasta rækjutogara veraldar.
Þá voru seldir hlerar til Englands,
Noregs og Færeyja og samtals eru
þetta 98.105 kg. og þar af 84.355 kg.
erlendis, allt á einni viku.
Á sama tíma bárust fyrirtækinu
pantanir víða að.
Firmakeppni
ÍBV
Ákveðið hefur verið að Firmakeppni
ÍB V fari fram 28., 29. og 30. desemb-
er n.k.
14 lið hafa skráð sig til keppninnar
nú þegar og enn er mögyleiki á að
vera með.
Guðni Agústsson skriffor:
HöfnumaðildaðEB
Framsóknarflokkurinn hafnar
aðild að EB, flokkurinn kýs lýð-
ræði og frelsi íslensku þjóðarinn-
ar áfram. Það er ekkert sem
styður það að fslendingar eigi að
sækja um aðild að EB eins og
sumir stjórnmálamenn hér á
landi hafa Iýst yfir.
Við eigum alla möguleika að
ná hagstæðum samningum annað
hvort með EFTA-ríkjunum eða
einir, annars verðum við að horfa
til annarra átta. Stundarhags-
munir verja ekki missir frelsis, ef
inn er gengið eigum við enga
útgönguíeið.
Hlutverk EB
Engin íslendingur myndi vilja
að auðlindum íslands yrði stjórn-
að af erlendu valdi frá Brussel.
Landhelgisbaráttan yrði að engu
gerð, útlendingar tækju á ný að
sækja inn að 12 mílum. Erlendir
menn eignuðust landið og auð-
lindir þess, hvað myndi auðkýf-
ingum muna um að kaupa heilu
sveitirnar.
Draumur auðkýfinga hefur
alltaf verið að eignast ósnortið og
fagurt land, það dreymir íslenska
menn um en ekki síður erlenda
auðjöfra. Eignast Hornstrandir,
Vatnsdal, Svarfaðadal, Skaftár-
hrepp eða Grímsnesið góða, nei
auðæfunum miklu fórnum við
ekki á altari þess að ganga i EB
eins og skammsýnir undansláttar-
menn hafa því miður ýjað að á
síðustu misserum hér á landi.
Hlutverk og markmið Evrópu-
bandalagsins er að gera mörg
þjóðríki að einum hindrunarlaus-
um heimamarkaði fyrir evrópsk
stórfyrirtæki.
Að setja evrópsk lög og koma
á fót yfirþjóðlegum stofnunum til
að takmarka möguleika stjórn-
málamanna, þjóðþinga og
launamunna í aðildarríkjunum
og auka olnbogarými fjármagns
og peningavalds.
Að skapa iðnvarningi EB-ríkja
markað í öðrum löndum gegn
aðgangi að mikilvægum hráefn-
um og auðlindum.
Gegn slíkri áhættu munu allir
þjóðhollir menn berjast. Sig-
mundur Guðbjarnarson háskóla-
rektor orðaði andstöðu sína skýrt
á flokksþingi framsóknarmanna
á dögunum. Það gerði einnig
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, en hann sagðist
leggja áherslu á að ísland mætti
ekki einangrast og það yrði að
taka þátt í evrópskri samvinnu.
Enginn vafi léki á því að það væri
okkar hagur að vera innan toll-
múranna og að sama skapi okkur
í óhag að vera utan þeirra. En
þetta þýðir ekki að við eigum að
fleygja okur fyrir fætur Evrópu-
bandalagsins.
Sigmundur Guðbjarnarson
sagði: Það er engin hætta á að
íslendingar einangrist á sviði
menningar og mennta. Hann
sagði ennfremur: Áætlaðir tollar
á íslenskar sjávarafurðir greiddir
Evrópubandalaginu, eru um einn
Nú þarf þjóðin
á sterkum
Pramsóknar-
flokki ad halda
eins og í land-
helgisdeilunni
víð breska
heímsveldið
forðum.
milljarður króna eða um 4 þús-
und krónur á mann á ári. Þetta er
kostnaðurinn, þetta er verðið á
sjálfstæði íslands í dag.
Nú er mikilvægt að allir fslend-
ingar kynni sér um hvað þessi
umræða snýst og láti ekki blekkj-
ast af skammsýnu fólki. Nú þarf
þjóðin á sterkum Framsóknar-
flokki að halda eins og í landhelg-
insbaráttunni við breska heim-
sveidið forðum.
ÞJódarsútt
ófram
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar hefur unnið þrek-
virki á 2 árum. Nú ríkir þjóðar-
sátt og hefur verið framlengd út
allt næsta ár. Þrátt fyrir olíu-
verðshækkanir er því spáð að
verðbólga verði á bilinu 7-8% á
næsta ári, sem er sú lægsta um
árabil.
Ríkisstjórnin hefur rétt af með
tvennum hætti eða þrennum
stöðu fyrirtækjanna. Með
skuldbreytingu. Með að skrá
gengi krónunnar í samræmi við
þarfir útflutningsfyrirtækjanna
og samkeppnisiðnaðarins. Með
þjóðarsátt og lágri verðbólgu.
Hvaða fyrirtækji kýs yfir sig
óðaverðbólgu og ósamkomulag
á ný. Rekstrarreikningurinnsýnir
þá breyttu stefnu sem nú ríkir
eða var í ríkisstjórnartíð Þor-
steins Pálssonar. Unga fólkið
skuldar margt mikið, það finnur
hið breytta umhverfi. Ungur
maður sagði við mig á dögunum,
engin verkalýðshreyfing hefði
skilað mér þeim kjarabótum sem
þessi ríkisstjórn hefur gert.
Vaxtalækkunin þýðir fyrir veskið
mitt 20-25 þús. á mánuði og
loksins er höfuðstóllinn farinn að
lækka.
Fyrirtækin og fókið er sem
betur fer farið að finna rekstrar-
bata. Ríkisstjórninni hefur tekist
að vinna þjóðina út úr þeim
mikla vanda sem allt var að
leggja í rúst sumari og haustið
1988.
Guðni Ágústsson