Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.1991, Blaðsíða 1
-F-
'R-
-E-
-T-
-T-.
-h
'R-
~F-i
'R-
-E^
'T-i
~T-i
'1-i
'R^
~F-i
-R-
r
Ær
'T-
-T-
-I-
-R-
-F-i
-R-
r
-E-
^T-
rT-
-h
rR'
rF-
-R'
r
rE-
rT-
rT-
r í '
-R'
-F-
-R'
-É-
-T-
-T-
-I-
-R'
-F-
-R-
r
-E -
-T-
rT-
-I-
-R'
-F-
-R-
r
-E-
rT-
rT-
r I -
-R'
• Lenei býr að fyrstu gerð. Þessi myndarlegu börn voru með mæðrum sínum á fundi hjá Áhugafélagi um brjóstagjöf
í gær. I miðopnu blaðsins er fjallað um Áhugafélagið og brjóstagjöf.
Brqðabirgðqtöiur Fiskiffélagsins:
Vestmannaeyjar stœrsta
verstöð landsins
1990
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands komu á land í
Vestmannaeyjum 159.145 tonn á
síðasta ári, en árið áður var hann
175.488 tonn og munar þar mestu
um minni loðnuafla. Mismunurinn
milli áranna 1989 og 1990 er 16.344
tonn, eða 9,32%, en þrátt fyrir
þennan samdrátt eru Vestmannaeyj-
ar stærsta verstöð landsins og á það
við flestar tegundir, að mestu magni
er landað hér.
Þorskafli dróst saman sem næst
10% og er það í samræmi við 10%
skerðingu á þorskveiðum á síðasta
ári. Árið 1990 var landað hér 20.854
tonnum en 19.890 tonnum árið 1990,
sem er mesti afli í einni verstöð.
Næst kemur Akureyri með 18.377
sem er einn fárra staða þar sem
þorskafli er meiri en árið á undan og
munar þar um 500 tonnum, en á
flestum stöðum er minni þorskafli og
munar í mörgum tilfellum er unt
verulegan samdrátt að ræða.
Ýsuaflinn var 11.118 tonn árið
1989 en 11.456 á síðasta ári og er það
langmesta á landinu, eða tæplega
fimmtungur af ýsuafla landsmanna.
Næst koma Hafnarfjörður með 4.378
tonn og Þorlákshöfn 4.107 tonn.
Lítilsháttar aukning er í ufsaafla
milli áranna. Árið 1989 komu á land
14.423 tonn en 14.776 tonn árið 1990
og er aukningin 363 tonn. Mest er
aukningin í karfanum, hann fór úr
5.124 tonnum árið 1989 í 8.100 tonn
1990. Þarna skáka Hafnarfjörður og
Reykjavík Vestmannaeyingum all
verulega, Hafnarfjörður með 13.561
tonn og Reykjavík með 11.307.
Grálúðuaflinn á síðasta ári var ekki
nema tæpur fjórðungur þess sem
hann var árið á undan. Fór úr 1.670
tonnum 1989 í 400 tonn 1990. Á
síðasta ári var landað hér 1.204
tonnum af skarkola og hefur hann
minnkað um 250 tonn.
Samdráttur varð í síldveiðum,
fóru úr 11.438 tonnum í 10.230 tonn
1990, en á móti kemur að enn er
verið að veiða síld þannig að þegar á
tímabilið er litið í heild verður senni-
lega um aukningu að ræða, þó það
fari yfir áramótin.
Stóri skellurinn er loðnan. Árið
1989 var landað 102.735 tonnum af
loðnu í Vestmannaeyjum og hefur
sjaldan verið meiri, en á síðasta ári
var loðnuafli í Vestmannaeyjum
88.636 tonn og munar 14.101 tonni.
Bólusetning
gegn heila-
himnubólgu
Ekki um faraldur að
rœða, segja lœknar.
Prekar gerttil öryggis.
Undanfarið ár hefur heilahimnu-
bólga í börnum verið að stinga sér
niður í Vestmannaeyjum og hefur
þess vegna verið ákveðið að bólu
setja alla á aldrinum tveggja til
tuttugu ára.
Guðbrandur Þorkelsson yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar vildi leggja
áherslu á í viðtali við blaðið að ekki
er um faraldur að ræða. „Á u.þ.b.
einu ári hafa komið upp fimm sýking-
artilfelli, sem í flestum tilfellum
leiddu til heilahimnubólgu, og það
finnst okkur einfaldlega of mikið.
Við höfum því í samráði við land-
lækni og sýkladeild Landspítalans
ákveðið að bólusetja alla Vestmanna-
eyinga á aldrinum tveggja til tuttugu
ára,“ sagði Guðbrandur. „Er þetta
gert í öryggisskyni og engin ástæða
til óróa.“
Síðustu ár hafa 15 til 17 tilfelli
komið upp af þessari sýkingu á
landinu árlega. „Nú hafa fimm tilfelli
stungið sér niður hér og það finnst
okkur einfaldlega of mikið, en þetta
er alls ekki faraldur."
Bóluefnið sem notað er dugar við
tveimur af þremur stofnum þeirrar
bakteríu sem um ræðir. Er það
einmitt C-stofn sem hér er að stinga
sér niður og dugar bóluenfið á hann.
Fyrir um 15 árum síðan komu hér
upp nokkur heilahimnubólgutifelli í
börnum og þá var bólusett með
góðum árangri.
Nánar er sagt frá bólusetningunni
á bls. 8 í blaðinu í dag.
Atli Elíasson í Steypustöðinni var heldur
kluntsa þegar hann opnaði bréf sem honum
barst í vikunni. Þegar hann reif upp umslagið
kom í Ijós autt blað, samanbrotið. En innan
í því voru tveir fimm þúsund krónu seðlar.
Atli vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið, en
svo rifjaðist upp fyrir honum að Lilla,
konan hans hafði týnt peningaveski á
Þrettándagleði Týs í Týsheimilinu. Eftir
mikla leit fannst veskið á klósettinu og í því
allt nema tiu þúsund krónur sem einhver
hafði tekið ófrjálsri hendi. Hvort hinn sami
hafði fengið eftirþanka og verið að skila
peningunum er ekki vitað, en þó fannst
Atla það sennileg skýring.
Atvinnuleysisdagar voru 8574 ó siðasta óri
Atvinnuleysisdögum hefur Ijölgað
verulega í Vestmannaeyjum þrjú síð-
ustu árin og er það í samræmi við
þróun annarstaðar á landinu. En sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
skrifstofu Félagsmálaráðuneytisins
og Þjóðhagsstofnun er atvinnuleysi
hér undir landsmeðaltali og langt
undir meðaltali á landsbyggðinni.
Árið 1988 voru atvinnuleysisdagar
í Vestmannaeyjum 3.345. Árið eftir
rúmlega tvöfaldast fjöldi atvinnu-
leysisdaga, voru þeir 7.853, eða að
meðaltali 30 manns á atvinnuleysis-
skrá allt árið. Á síðasta ári voru
atvinnuleysisdagar 8.574 og þá voru
atvinulausir 33 að meðaltali. eða
1.45% atvinnubærra ntanna.
Atvinnuleysi á öllu landinu var
1,7%, þannig að hér atvinnuleysi
talsvert undir landsmeðaltali. At-
hyglisvert er að Vestmannaeyjar eru
taldar rneð Suðurlandi í tölum Fél-
agsmálaráðuneýtisins, en þar var at-
vinnuleysi 2,6% á árinu 1990, sem
segir að atvinnuleysi á fastalandinu
er mun meira en hér. Annað sem
einnig stingur í augu er að atvinnu-
leysi á landsbyggðinni er mun meira
cn á Reykjavíkursvæðinu. Þar var
atvinnuleysi 1,2%, en meira en
helmingi meira á landsbyggðinni eða
2,6%, sem er verulegt umhugsuna-
refni og kannski ekki skrýtið þó fólk
sæki á höfðuborgarsvæðið.
FJÖLSKYLDUTRYGGING
FASTEIGNATRYGGING
©
GLER
4 mm. einfalt
PLEXIGLER
3-6-1 Omm. þykkar
18. árgangur Vestmannaeyjum, 24. janúar 1991 4. tölublað
SKIPAVIÐGERÐIR H.F.
v/Friðarhöfn Vestmannaeyjum S11821
\\\$
Mikið úrval af
hirslum undir
geisladiska
vídeóspólur
og kassettur
Munið
greiðsluk örin á
hljómtækjum
og sjónvörpum
Herra jakkaföt
og dömudragtir
Fatnaðinn fyrir
þorrablót og
árshátíðir
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN HF
Umboö í Vestmannaeyjum, Strandvegi 63 S 11862
geisladiskar
plöturog
kassettur í
hverri viku