Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.1991, Síða 4
Hringt á miðin:
Fimmtudaginn 24. janúar 1991 - FRÉTTIR
Ekki lítur björgulega út meö
loönuveiöar á þessari vertíö, niður-
staöa rannsóknarleiöangurs í upp-
hafi árs lofar ekki góðu en enn lifa
menn í voninni um aö úr rætist.
Loönuveiðar og vinnsla skipta miklu
máli fyrir Vestmannaeyjar, sjómenn
og útgeröir loönuskipa og loönu-
bræöslurnar og mannskapurinn í
þcim á allt sitt undir því að loðna
veiöist. Á síöasta ári var tæplega 90
þúsund tonnuni landaö hér í Eyjum
og fannst sumum of lítið. Áriö áöur
var aflinn rúm 100 þúsund tonn og
hefursjaldan veriö meiri.
En þetta kemur við fleiri og bitnar
í rauninni á öllu byggðarlaginu ef
engin loðnuveiði verður. Halldór
sjávarútvegsráðherra er með ein-
hverjar hugmyndir um að bæta
flotanum upp hugsanlegt tjón.
hvernig er ekki vitað en vonandi
verður það gert af myndarskap því
flest þessara skipa hafa látið af botn-
fiskkvóta sínum síðustu ár á meðan
loðnan var veidd í sem mestu magni.
Meðal hugmynda sem fram hafa
komið er að þessi rúmlega 40 loðnu-
skip fái aukinn botnfiskkvóta, rækju-
kvóta og heimild til síldveiða en í
hvaða magni á eítir að koma í Ijós.
Landanir
I síöustu viku var síld uppistaöa
aflans sem landaö var hér eins og
reyndar hefur veriö frá áramótum.
Þó lönduöu tveir togarar og einn
trollhátur auk þess sem smábátar
lögöu upp örfá tonn.
Lítum þá á landanir í síðustu viku
og byrjum á síldarbátunum.
Guðrún ....... 65 tonn I löndun
Styrmir.......llátonn 1 löndun
Kap ..........140 tonn 1 löndun
Guðmundur . . . 143 tonn 1 löndun
Þá landaði Bergey 61 tonni og var
uppistaða aflans karfi og ufsi. Halki-
on landaði 21 tonni, mcst þorsk og
ýsu og Álsey 28 tonnum sem voru að
uppistöðu til þorskur og ufsi.
Sjöfnin landaði 3 tonnum sem
fengust á línuna og nokkrir smábátar
lönduðu fáum tonnum sem við tíund-
um ekki hér.
En menn cru ekki búnir að gefa
upp ulla von um að loðnuveiðar
verði leyfðar í einhverju magni í
vetur. sérstaklega er horft til þess að
leyft verði að veiða í frystingu og til
hrognatöku því þar liggja mestu
verðmætin. Ef svo veráur gæti það
orðið lyftistöng fyrir útgerð, sjó-
menn og frystihúsin og fiskverkunar-
fólk, gæti skapað vinnu í nokkrar
vikur. Ef svo verður er eins gott að
Vestmannaeyingar standi fastir á
því að fá sem stærsta sneið af þeirri
köku. Við fáum að njóta þess að
vera frumkvöðlar á þessu sviði. Hér
eru tækin til að taka á móti og vinna
mikið magn á stuttum tíma og héðan
er styst á miðin.
Eftir því sem fleiri fá í hendur
upplýsingar um aflaheimildir sínar
fyrstu átta mánuði þessa árs þyngist
brúnin á mönnum. Áður hefur verið
tíundað hér í blaðinu hvað þetta
þýðir fyrir okkur í heild, lauslega
áætlað virðist þetta vera skerðing um
rúm 4000 tonn og fyrir suma er þetta
nánast dauðadómur. Hvernig sem á
því stendur virðast menn í sjávarút-
vegi vera einir um að hafa áhyggjur
af þessu því ekki hefur heyrst hósti
né stuna frá bæjaryfirvöldum vegna
þessa máls frá því niðurstööur lágu
fyrir. Væri full ástæða fyrir bæjar-
stjórn að taka á þessu máli því ekki
fer hjá því að tómahljóð verði í
bæjarkassanum þegar þetta kemur
ofan á loðnubrestinn.
Fátt var um fína drætti af miðun-
um á þriðjudaginn, komið þokkaleg-
asta veður við Eyjar eftir bræluna en
enn var leiðindaveður austur með
landi. Bestu fréttirnar voru af Bergey
VE sem landaði tæplega 100 tonnum
á mánudaginn eftirstuttan túr. Uppi-
staða aflans var karfi. Þá var ágætis
síldveiði fyrir helgina. Fjórir bátar
lönduðu samtals rúmum 462 tonnum
og Valdimar Sveinsson VE landaði
um 50 tonnum á Seyðisfirði. Annars
var lítið að frétta, sífelldar brælur og
enn er þorskurinn ekki farinn að láta
sjásig.
Bergþór Atlason á Vestmanna-
eyjaradíói vissi um 13 báta á sjó
þegar rætt var við hann á þriðjudags-
morguninn. Þá var ágætis veður við
Eyjar austan vindstig en þungur sjór.
Á mánudagsmorguninn voru átta
vindstig og sluppum við ágætlega við
stórviðrið sem gekk yfir landið og
olli víða tjóni.
Nýr (a la carte)
matseðill __Restaurcmi_
mmim
SKEMMTIDAGSKRÁ laugardagskvöld
í léttari kantinum meö háalvarlegu ívafi
og söng fyrir matargesti, í umsjón Fríðu,
Gústa og Helenu.
HUGINN PIZZERIA
HEIMSENDINGARÞJÓNUSTA
Föstudaga og laugardaga til kl. 23:00
Sunnudagatil kl. 21:00
S11422
Bjóöum upp á ódýra rétti dagsins
Fiskur frá kr. 750,-
Kjöt frá kr. 850,-
Súpa er innifalin í rétti dagsins
FJórtán tonn í
sjö róðrum
Rúnar Þórisson skipstjóri á Sjöfn
VE var að leggja línu austur á Vík
þegar haft var samband við hann.
Þeir fóru út rúmlega fjögur um
morguninn og voru búnir að leggja
átta stokka. „Ég segi ósköp lítið cnn
enda erum við að leggja ennþá.
Veðrið er þokkalegt, fjögur vindstig
en sunnan sjór.“ Þeir eru búnir að
fara sjö róðra frá áramótum og
aflinn kominn í 14 tonn, aulaþorsk-
ur, keila, langa ognokkrirsteinbítar.
„Það er ekki von að þetta gángi
betur, alltaf vitlaust veður vinur
minn.“ sagði Rúnar. „Alltaf vitlaust
veður en spáir þokkalega í dag.“
Aðspurður um aðra báta sagði
hann að Sigurvík VE væri að leggja
við Drangana í blanka logni en
haugasjó.
Þeir hafa tekið tæknina í sínar
hendur á Sjöfn, notast við beitninga-
vél og þar kemur skýringin á stokk-
unum. Nú er línan ekki mæld í
bjóðum eins og áður en tveir stokkar
gera u.þ.b. eitt bjóð. í lögninni
rennur línan í gegnum síló þar sem
beitan húkkast á krókana. I landi er
línan stokkuð upp. „Beitningakallar
eru að mestu liðin tíð nú væri frekar
að tala um uppstokkara," sagði
Rúnar.
Betra íllt að
gero en ekki
neítt
Ólafur Einarsson skipstjóri á Kap
VE var á siglingu austur með landi á
leið síldarmiðin. „Það er lítið að
frétta af síldarslóð. Guðmundur VE
er kominn eitthvað austar en þar er
leiðindaveður, en spáir þokkalega.“
Á föstudaginn lönduðu þeir um
140 tonnum af síld. Aðrir síldabátar
lönduðu á mánudag, afla sem þeir
fengu um helgina. Kap er í fjórða
túr, þcim næst síðasta að sinni. Þeir
hafa þurft að miða veiðarnar við
vinnslugetu í landi, það þarf að
hafast undan.
Ekki sagðist Óli vera búinn að
gefa upp alla von um loðnuna. „Ég
geri það ekki fyrr en í febrúar.
maður verður að vera bjartur á
þetta.“ Ekki vissi hann um fiskikvóta
til loönubáta. „Það verið að tala um
8000 tonn úr Hagræðingarsjóði og
eitthvað af síld, loðnu og rækju, en
maöur vcit ekkert ennþá. Vonar
bara það besta," sagði Óli.
Alltaf brjólad
vedur
Páll Sigurgeir Grétarsson mat-
sveinn á Huginn VE var að leysti
kallir^af í morgunmat og ekki var
hægt að segja að hann hrósaði veðr-
inu. „Alltaf brjálað veður. alveg
geggjað. Við fórum út á föstudnginn
og helminginn af túrnum höfum við
haldið upp í. Já þetta er alveg
hundleiðinlegt." Þeirbyrjuöu túrinn
í Hornafjarðardýpinu en voru á
vestuleið. Ekki var aflinn mikill.
kannski komið í einn gám. „Viö
erum einhvers staðar út af Alviör-
unni en ég veit ekki hvar við cndum.
en ég reikna með löndun á fimmtu-
dag eða föstudag.”
En Palli vildi ekki ræða meira um
sjó og sjómennsku. Hafði mestan
áhuga á að komast á Austfirðinga-
þorrablótið á laugardaginn. Var hon-
um bent á að besta ráðið væri að
# Núverandi stjórn Slysavarnardeildarinnar Eykyndiis. Stelpurnar í Eykyndli
hafa lönguni sýnt öryggismáluin sjómanna mikinn áhuga. Nú sídast gáfu þær
miöunarstöð í Stórhöfða og verður nánar sagt frá því í næsta blaði.
bjóða kallinum með, en hans upp-
áhaldsmatur eru svið og annar þorra-
matur.
Og svo í lokin gladdist hann yfir
góðu gengi IBV gegn Val í handbolt-
anum um helgina.
Ekkert aö
frétta af afla
Ég segi lítiði enda erum við ny-
komnir á sjó," sagði Páll Guðmunds-
son stýrimaður á Klakk V'E. „Við
erum að toga okkur austur og erum
nú á Öræfagrunni. Við tórum út á
mánudaginn og höfum ekkert fengið
ennþá. Mikill tími lör t festu í gær
þannig að þetta er hálfgert reiðu-
leysi."
Hann hafði lítið frétt af öðrum
skipum. Sindri VE var i næsta ná-
grenni og Vestmanney VE og Gide-
on VE voru lyrir austan í Bcrufjarð-
arál i vitlausu veðri. „En ég hcf ckki
frétt neitt al afla."
Átta mánaða kvóti Klakkser 1700
tonn með öllu. kiik og skít. eins og
sjómenn orða það. Á fyrstu átta
mánuðum síðasta árs fékk Klakkur
um 2200 tonn. þá á sóknarmarki.
„Miðaö við heilt ár sýnist mér að
skeröingin sé 800 til 1000 tonn,"
sagði Palli að lokum. og munar um
minna.
Aflinn ínnan
við 100 tonn
„Ég segi ekki neitt," sagði Sigmar
Magnússon stýrimaður á Sindra VE
og hló um leið. „Þetta eru alveg
hreinar línur. ekkert að hafa. Núna
erum við á Síðugrunninu í SV kalda
drullu." Þeir fóru út á miðvikudaginn
í síðustu viku og sagði Simmi að þeir
væru fáir klukkutímarnir sem ekki
væri búið að vera vitlaust veður. „En
það er skaplegt veður í augnablikinu
en það stendur sennilega ekki lengi."
Hvað eru þið komnir með mikinn
afla?
„Nú versnar i því. Það hef ég ekki
hugmvnd um en veit þó að hann er
innan \ið 100 tonn. Maður fvlgist
ekki með í svona reiðulevsi. mest er
þetta drasl fiskur. karfi og ufsi. Já
það er lítið um þorsk. Hann liggur
einhverstaðar í levni ef hann er þá
til. En vonandi lætur hann sjá sig
sem fýrst."
En þeir verða að fara sparlega
með karfann. „Megum ekki gelda
okkur alveg í karfanum."
Þeir eru rneð 1900 tonna kvóta til
1. september. Ekki man Simmi hvað
þeir fengu mikið fyrstu átta mánuð-
ina í fyrra, en þá voru þeir á
sóknarmarki. „Nú höfum við alla-
vega nóg af dögum til að ná í þetta,"
sagði Simmi.
Hann hafði litlar fréttir af öðrum
skipum. þó var einn og einn að reka
í ufsahol, sex til tíu tonn, en svo þarf
ekki að leysa frá í næsta holi.
Hvað er að
f rétta af
handboltanum
Þórarinn Ingi Ólafsson stýrimaður
á Gideon VE hafði litlar fréttir og
srnáar. Ekkert að hafa og alltaf
vitlaust veður. Þeir voru fyrir austan
land. Fóru út á fimmtudagskvöld.
„Þetta er einhver mesti ræfill sem ég
hef kynnst, 100 til 200 kíló í hali."
Þeir eru í sínum fyrsta túr og vonar
Þórarinn Ingi að fall sé faraheill.
Annars hafði hann miklu meiri
áhuga á handboltanum. enda gömul
hetja á þeim vettvangi. Gladdist
hann hjartanlega yfir góðu gengi
ÍBV unt helgina, bæði í karla og
kvenna.