Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Qupperneq 1
Leitid ekki langt yfir skammt. Allar byggingavörur áeinum stað.
HUSEY
rr
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYJA
Garöavegi 15 - sfmi 1115 1
þar sem fagmennirnir versla.
20. árgangur
Vestmannaeyjum, 16. júní 1993
24. tölublað
Sími: 98 - 13310
Verð:
Myndriti: 98 - 11293 100 kr.
LJppskiptum lokið
Þann 26. ágúst á síðasta ári
sendu Magnús Kristinsson og
Sigurður Einarsson frá sér
sameiginlega fréttatilkynningu um
að slitnað hefði upp úr samstarfi
þeirra í Isfélaginu. Síðan þá hafa
endurskoðcndur beggja eytt
miklum tíma í að finna út raun-
verulegan hlut hvors í Isfélagi
Vestmannaeyja hf. Samkvæmt
heimildum blaðsins liggur hún nú
fyrir. ,
Þegar Isfélagið og Hraöfrystistöóin
sameinuðust um áramótin 1991 til
1992 stóðu þeir saman við stjóm-
völinn; Magnús og Sigurður, en
tæpum níu mánuðum síðar skildu
þeir að skiptum. Gekk Magnú^ út
með frystitogarann Vestmannaey
VE, togbátinn Smáey VE, afla-
heimildir upp á 2800 þorskígildi. og
fasteignir í landi. Var ákveóið að
greiðslan yrði hluturTungu hf.,fyrir-
tæki Magnúsar og fjölskyldu; í
Isfélaginu sem var rúmur fjóróungur
hlutafjár í félaginu.
Sigurður staðfesti við FRÉTTIR á
mánudaginn að Magnús færi út með
Vestmannaey, Smáey, Geirseyrina og
nokkur hlutabréf í Éyjaís og yfirtaki
nálægt 600 milljónum af skuldum Is-
félagsins. Ekki vildi hann tjá sig
frekar um málið að svo komnu.
Magnús vildi hvorki neita né stað-
festa að hann hefði yfirtekið 600
milljóna skuldir þegar haft var sam-
band við hann.
Enn á eftir að skrifa undir og
veróur það gert fyrir vikulok.
Sveinn Hjörleifssón hefur frá því um gos beitt fé sínu á Haugasvæðið.
Púttað á Coka Cola móti.
Það eru ekki kindurnar
mínar sem eyðileggja svæðið
-segir hann og fullyrðir að Sveinn Runólfsson vilji hefna gamalla harma.
„Ég hef ekkert við þessu bréfi
Sveins Runólftsonar, landgræðslu-
stjóra, að segja. Ég ætla bara að
bíða og sjá hvernig málið þróast en
ég ætla að standa á mínum rétti.
Minn réttur er 15 ára gamalt plagg
sem veitir mér rétt til að nýta
Haugasvæðið og það ætla ég að
gera, sama hvað hver segir,“ segir
Sveinn Hjörleifsson, fjárbóndi, sem
nýtt hefur Haugasvæðið fyrir
kindur sínar undanfarin ár.
Eins og kom fram í síðasta blaði
hótar Sveinn, landgræðslustjóri, að
stööva fjárframlög til uppgræóslu
Haugasvæðisins ef fjárbeit þar verður
ekki hætt strax. Bæjarráð er sammála
Sveini og var Jóhanni Péturssyni lög-
manni og Georg Kr. Lárussyni falið
að fylgja því eftir. En nú er hætt við
að mætist stálin stinn því Sveinn
Hjörleifsson er ákveðinn í að mæta
nafna sínum fyrir dómsstólunum ef
nauðsyn krefur.
„Plaggið sem ég hef undir höndum
sker ótvírætt úr um það að ég hef
allan rétt á að nýta svæðjp en innihald
þess fær enginn að vita nema þeir
vilji fara í hart. Ég er með lögfræðing
á mínurn snærum og er til í hvað sem
ertil verja rétt minn.“
Sveinn segist hafa í mörg ár átt í
stríði við nafna sinn Runólfsson.
„Þetta er algjört rugl í honum að ég sé
aó eyóileggja Haugasvæðið. Fyrir
nokkrum áruin varég með 100 rollur
sem ég beitti á svæðið. Þá sagði
enginn neitt, en núna er ég með 35.
Ég girti svæðið af og er reyndar ný-
búinn að endumýja girðingarnar.
Þetta kostaði mig mörg hundruó
þúsund krónur og þegar krakkamir
voru að brenna sinu um alla eyju
vaktaði ég svæðið þannig að jjað
slaþp við þann ófögnuð."
Sveinn segir að hann hafi ekki
setið einn að Haugasvæðinu. Fyrir
nokkrum áruni voru settir upp fisk-
hjallar sem þekja stórt svæði. „Þá var
keyrt mörg hundruð tonnum af möl á
svæðið sem stöðvamar áttu að græða
upp þegar hætt yrði að nota hjallana
en þaó var ekki gert. En einhvers
staðar urðu vondir að vera með
fiskinn sinn og sambúðin var ágæt.
Til dæmis var búið til rimlahlið sem
kom sér mjög vel fyrir mig.“
Sveinn er því algjörlega ósammála
að fé skaði gróður í Vestmanna-
eyjum. Telur hann hæfil'ega beit
halda aftur af njóla og Baldursbrá
sem kæfi allt gras og nefndi hann
dæmi máli sínu til sönnunar. Það
hefur t.d. sýnt sig að af Smáeyjum er
ástand gróðurs best í Hana að mati
Sveins, en þar eru nokkrar kindur.
„Annars hefur Sveinn ekki látið
mig í friði frá því ég flutti féð til Éyja
eftir gos. Þá vildi hann velja úr fall-
egustu gripina en ég og Maggi á
Skansinum áttum að hirða ruslið,'1
sagði Sveinn sem er ákveðinn í að
láta hart mæta hörðu. „En ætli maður
hætti þessu ekki smátt og smátt. I dag
er ég með 35 kindur en þær fara að
tína tölunni. Ég má ekki selja kjötiö
og verð því að éta kjötið sjálfur."
Sveinn Hjörleifsson fjárbóndi ætlar ekki að gefa eftir Haugana fyrr en í fulla hnefana
ísfélagið:
Jón Pétursson sál-
fræðingur ræðir um
sálarlíf Eyjamanna
-sjá bls. 8 - 9
Pæjumótið heppn-
aðist mjög vel
-sjá bls. 11
TRYGGINGA
IV1IÐSTÖÐIN HF.
FJOLSKYLDU-
TRYGGING
FASTEIGNA-
TRYGGING
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20-Sími 11535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græóisbraut 1 - sími 13235
FAX13331
Kynning á keppend-
um númer 3 og 4
-sjá bls. 13
1993
GiMirfrá 6. maí til 6. september
i daga víkunnar:
AAA
‘--- Frá Vesimannacyjum kl,/)8:15
i-■ FráÞorlákshöfn kl. 12:00
Aukaferðir fostudaga og sunnudaga:
Frá Vestmannaeyjum kl. 15:30
nJt Frá Þoriákshöfn kl. 19:00
~ Auk þess á fimmtud. í júní og júlí:
^ trv FráVestmannaeyjum kl. 15:30
BRUAR BILIÐ Frá Þorlákshöfn kl. 19:00