Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Qupperneq 6
6 Miðvikudagur 16. júní 1993 -segir Sighvatur Bjarnason í Vinnslustöðinni sem sér ekki eftir því að hafa hætt við að hætta. Sighvatur Bjarnason. I>egar eitt og hálft er frá því Fiskiðjan og Vinnslustöðin samein- uðust undir merki Vinnslustöðvar- innar hf. sér loksins fyrir endann á þcim aögcrðum sem stjórnendur fyrirtækisins ákváðu að grípa til. Skuldastaðan var hrikalcg en Is- landsbanki lofaði öllu fögru um að þeim stæðu allar dyr opnar ef sameinað yrði. En það var ekki nóg að sameina, því skuldirnar voru enn til staðar og þurfti því að grípa til sársaukafullra aðgerða sem snertu marga. Skuldir eru enn miklar og verða til staðar næstu árin en það sem skiptir mcstu máli er að bjartsýni hefur tekið við af þeirri svartsýni sem ríkti, ekki bara í Vinnslustöðinni, heldur í bæjarfélaginu öllu. Fyrir áramótin 1991 til 1992 var útlitið ekki bjart í bænum, margir óttuðust um at- vinnuna og fólk sem hafði unnið allan sinn starfsaldur í stöðvunum Ijórum fannst grundvellinum kippt undan sér. Svartar skýrslur. Fyrir skömmu var haft eftir Sig- hvati Bjamasyni, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, að fyrirtækið hefði skilað 88 milljón króna hagnaði fyrstu fjóra mánuði þessa árs. Þessi frétt er á skjön við það sem almennt er að gerast í íslenskum sjávarútvegi þegar nánast öll fyrirtæki í greininni em rekin með meira og minna tapi. Og ekki hafa nýjustu fréttir, um minni aflaheimildir á næsta fiskveiði- ári, orðið til að létta mönnum lundina. Skelli þær á af fullum þunga verður það banabiti margra sjávarútvegs- fyrirtækja sem þegar standa illa. Ef ekki hefði komið til sameiningar sjávarútvegsfyrirtækjanna hér undir merkjum Isfélagsins og Vinnslu- stöðvarinnar er spumingin hvort Vestmannaeyingar væru ekki í sömu stöðu núna og Homfirðingar, sem róa lífróður til bjargar Borgey og Bol- víkingar sem þessa dagana eiga það undir velvilja Landsbankans hvort þeim tekst að halda tveimur togurum og kvóta þeirra í plássinu. Yestmannaeyjar eiga allt undir því að ísfélagið og Vinnslustöðin styrícist og dafni í framtíðinni og þó óvissu- þættimir séu all nokkrir er ekki annað að sjá en bæði fyrirtæki séu að komast fyrir vind. Aukin velta. Velta Vinnslustöðvarinnar var á síðasta ári 2440 milljónir. Hún var 1010 milljónir fyrstu fjóra mánuði 1992 en 1130 milljónir króna á sama tíma í ár og er aukningin um 12%. „Samanburðurinn á hagnaði fyrstu fjóra mánuði þessa árs, sem var 88 milljónir og á fyrstu fjórum mán- uðum síðasta árs segir líka sína sögu. Inn í hagnaðinn núna fléttast sölu- hagnaður en hagnaður af rekstri núna er 31 milljón á móti 125 milljón króna tapi í fyrra og það sýnir kannski best að við erum á réttri leið,“ segirSighvatur. Ekki er hægt að segja að það hafi blásið byrlega í sjávarútvegi þann tíma sem Sighvatur hefur setið við stjómvölinn í Vinnslustöðinni. Verð á afurðum hefur lækkað og er enn að lækka. Tillögur fiskifræðinga um 150 þúsund tonna hámarksafla á þorski á næsta fiskveiðiári dekkja myndina enn frekar. Sjávarútvegsráðherra stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun en hann hefur lýst því yfir að ekki verði hjá því komist að taka fullt tillit til tillagna fiskifræðinga. Sighvatur er sammála Þorsteini. „Eg get ekki séð hvemig Þorsteinn Pálsson á að leggja til annað en að farið verði að tillögum fiskifræðinganna," segir Sighvatur en viðurkennir að það verði ekki þrautalaust. „Við erum að fara yfir stöðuna eins og hún snýr að okkur en við verðum eins og aörir að reyna vinna okkur út vandanum, sem er fyrirsjáanlegur. “ Vantar alvöru loðnubát. Sighvatur segir að auóvitað komi aukinn loðnukvóti til með að létta þeim róðurinn. „En það sem gerist er að afkastageta í loðnunni er tak mörkuð og það eina sem hægt er ac gera er að lengja loðnutímabilið.' Kap VE fer á loðnu strax í júlí og Sighvatur VE þegar hann lýkur rækjuveiðum í haust. Báðir þessir bátar hafa skilað sínu á loðnuver- tíðum þó þeir í dag séu með minnstu loðnubátunum og henta illa þega sækja þarf loðnuna norður fyrir land „Það sem okkur vantar er alvön loðnubát," sagði Sighvatur og mátti skilja á honum að ýmislegt sé í deigl unni til að hagkvæmara verði að sækja loðnuna norður fyrir land, bæði bátakaup, aukning á þróarrými og fleira. Vantar fólk. Þrátt fyrir minni aflaheimildir segist Sighvatur ekki sjá annað en að skortur á fólki verði einn helsti þröskuldurinn í þróun fiskvinnsl- unnar í Eyjum. „Það þarf að auka afkastagetuna. Það verður ekki gert nema komið verði á vöktum. Sam- dráttur verður til þess að þétta einingamar og þá verða menn að kaupa kvóta. Eg get tekið sem dæmi að núna höfum við til umráða 130 tonna kvóta af humri og fyrstu tvær vikumar unnum við 42 tonn en í fyrra var kvótinn 80 tonn. Og ef vel ætti að vera vantar fleiri báta því eins og er anna þeir ekki vinnslunni. Við erum með mjög gott fyrirkomulag á humarvinnslunni. krakkamir sem eru hjá okkur vinna á tveimur sex tíma vöktum. Fyrri vaktin byrjar klukkan 6 á morgnana og vinnur til hádegis. Þá mætir seinni vaktin og vinnur til klukkan sex.“ Vel á 2. hundrað krakkar vinna við humarvinnsluna og vaktafyrirkomu- lagið gerir það að verkum aó fleiri fá vinnu, afköst og velta aukast og fjár- festing nýtist betur. Þetta vill Sig- hvatur sjá gerast í fiskvinnslunni. „Viö verðum að nýta betur hús og vélar og það kallar á vaktavinnu. Þá verða til fleiri atvinnutækifæri og við þurfum fólk í bæinn. Mörgum er það þymir í augum að núverandi fiskveiðistjómun leiði til þess að fyrirtækjum fækkar og upp rísi stærri einingar sem í gegnum kvótaeign hafi ekki aðeins öll völd í sjávarútvegi í hendi sér heldur líka kverkatak á þjóðfélaginu öllu. „Það eru mörg fyrirtæki þegar í miklum erfiðleikum og minni afla- heimildir eru dauðadómur fyrir mörg þeirra. Eg sé ekki hvemig einingin; einn togari og eitt frystihús á að geta gengið lengur. Það verða stór sjávar- útvegsfyrirtæki eins og Vinnslustöðin og minni fjölskyldufyrirtæki sem eiga framtíðina fyrir sér,“ segir Sighvatur og er því ekki bjart framundan í þeim byggðarlögum sem byggja afkomu sína á einum togara og frystihúsi og er þegar komin upp sú staóa að líf þessara byggðarlaga hangir á blá- þræði. Allt í neytenda- pakkningar. Samkvæmt skilgreiningu Sighvatar er bjart framundan í Vestmanna- eyjum, með tvö stór sjávarútvegs- fyrirtæki og fjölda einstaklinga í út- gerð og nokkra í fiskverkun. „Eg held að Vinnslustöóin muni örugg- lega lifa þetta af . Við erum að ná okkur á strik en næstu tvö ár verða erfið. Það sem vantar er frekari vinnsla á þeim fiski sem fæst. Is- lenska kerfið hefur brugðist bæði hvað varðar fullvinnslu á sjávarfangi og dreifingu. Héðan ætti allt að fara í neytendapakkningum. Eins skiptir það ekki síður máli að menn meti stöðuna eins og hún er og vinni út frá því. Það þýðir ekkert aó allir leggist í kuðung og aumingjaskap." Að stjóma sjávarútvegsfyrirtæki í dag er ekki dans á rósum og á hverj- um degi þarf að leita leiða til að ná fram sem mestri hagræðingu. Það getur liðið nokkur tími áður en árang- ur fer að mælast en þegar er ljóst aó stjómunarkostnaður hefur lækkaö um 20%. Og þó það vegi ekki þungt munar um allt. Eitt stærsta verkefni Sighvats síðustu mánuði hefur verió endur- skipulagning á fiskiskipaflota Vinnslustöðvarinnar sem lauk, í bili a.m.k., með kaupunum á Guðmundu Torfadóttur VE, sem stendur í 250 milljónum með 2000 þorskígilda kvóta. Nú á fyrirtækið sjö skip í stað tíu fyrireinu ári síðan. „Tekjuraf út- gerðinni eru nánast óbreyttar þrátt fyrir færri skip og aó fiskverð hefur lækkaðum 16% til vinnslunnar. Með því að selja skip og aðrar eignir, eins og Tangaverslunina, er bæði lausa- fjár- og greiðslustaða fyrirtækisins betri.“ Mogginn fór með fleipur. Ekki hefur þó allt gengið að óskum. Síldin var þeim dýr s.l. haust og nú er unnió að því að finna leiðir til að tryggja stöðugri hráefnisöflun á síldinni og er m.a. ætlunin að Sighvatur Bjamason VE fari á síldar- og loðnutroll sem gafst mjög vel í fyrra. Sérstaklega gafst það vel á síldinni. I forystugrein Morgunblaðsins fyrir skömmu var rætt um vanda sjávarútvegsins. Þar voru Isfélag og Vinnslustöð sett á sama snaga og E.G. á Bolungarvík og Borgey á Höfn í Homafirði. Þetta segir Sighvatur að hafi orðið kveikjan að því að hann gaf út að hagnaður varð á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Fannst honum Morgunblaðið hafa tekið ansi stórt upp í sig. „Það má ekki koma til að lánadrottnar okkar missi trú á því sem við erum að gera en svona skrif geta leitt til þess. Þó eignastaóan sé dökk er hún jákvæð og veltan er meiri en skuldimar. Verður það aó teljast jákvætt þegar tekið er mið af því að skuldir í ís- lenskum sjávarútvegi eru nálægt 110 milljörðum en veltan er ekki nema um 65 milljarðar. Gull í djúpið Miklum lánum fylgja háar vaxta- greiðslur og þar segir Sighvatur nauðsynlegt aó gripið verði inn í með einhverjum hætti en þaó þarf líka að leita leióa til að auka tekjurnar og finna nýjar leiðir til að nýta betur fjár- festingu í íslenskum sjávarútvegi nú þegar fyrirsjáanlegur samdráttur verður í þorski. „Við veróum að finna leiðir til að rannsaka betur djúp- miðin og einbeita okkur að meiri fullvinnslu á fiski. Eg er ekki að gagnrýna ferskfiskútflutninginn en sjálfir höfum við ekkert flutt út af ferskum þorski og ýsu á þessu ári. Það er einfaldlega hagstæðara aó vinna þessar tegundir hcr heima. Annað gildir með karfann og því miöur er ufsinn orðinn nánast verðlaus. “ Þrátt fyrir að hagnaður sé fyrstu fjóra mánuði ársins er ekki þar með sagt að bjöminn sé unninn. Lægra af- urðaveró geti á skömmum tíma étið upp hagnaóinn en svo geti það iíka farið upp á við og þá verður dæmið fljótt að snúast til hins betra.. „En ég er samt bjartsýnn. ÖIl skipin okkar eru í fullri drift, umsvif hafa aukist og í síðustu viku voru 520 manns á launaskrá hjá okkur. Allt er þetta jákvætt og sýnir að við erum á réttri leið,“ sagði Sighvatur Bjamason sem fyrir rúmi ári síðan var tvístígandi hvort hann ætti að taka að sér stjóm Vinnslustöðvarinnar. þá var ljóst hverjar skuldir fyrirtækið tók í arf frá Fiskiðju og Vinnslustöð, en hann sló tilog sérekki eftir því. Guðmunda Torfadóttir VE, nýjasta skip Vinnslustöðvarinnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.