Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1993, Side 15
Miðvikudagur 16. júní 1993 15 Coca Colamótið í golfi: Böðvar fór holu í höggi Mikið framundan í golfínu A morgun, 17. júní, vcrður Globus-kvennamót GV og hefst það klukkan 10. Leiknar verða 18 holur með forgjöf og verður skipt í flokka eftir forgjöf. Vcrðlaun verða veitt til forgjafarhópa upp að 28 og líka með 28 og yfir. A morgun hefst líka karlamót klukkan I. Um næstu helgi fer fram Minningarmót Arsæls Sveinssonar sem crcitt glæsilegasta mót ársins. Er það 36 holu punktakeppni með 7/8 forgjöf. Strákar eða stelpur? Magnús Bragason, framkvæmdastjóri Pæjumótsins, hafði í mörg hom að líta dagana fyrir mótið og var farinn að finna fyrir þreytu og sljóleika þcgar stóra stundin rann upp. Kom þctta bcrlega í Ijós þegar hann stóð og bcið eftir fyrstu hópununt sent væntanlegir voru með Herjólfi. I fyrsta hópnum sent stcig á land voru strákar sem hingað voru kontnir til að spila í Islandsmótinu cn fyrir þeint fór gerðarleg kona. Magnús vatt sér að hcnni og bauð hana velkomna á Pæjumótið. Hún leit hissa á hann og um leið var Magnúsi bent á að þama væru strákar á fcrð. En hann lct scr ekki segjast, horfðist í augu við konuna og sagði djúpri röddu, „þið eigið að fara í rútuna þama.“ Og enn jókst undrun konunnar sem ítrckað reyndi að benda Magnúsi á að hún væri mcð stráka cn ekki stclpur. I>á kviknaði loks á perunni hjá Magnúsi og cins og ekkcrt hcfði gcrst arkaði hann fram hjá konunni að fyrsta stclpuhópnum scnt stormaði upp úr Herjólfi. Ræðutíminn stuttur Guðjón bæjarstjóri, bór formaöur I'órs og Guðmundur Þ.B. á- vörpuðu keppcndur í upphafi Pæjumóts og voru þcir beðnir bcönir um að stytta mál sitt eins pg kostur var. Þcgar búið var aó kynna Guömund Þorlák Bjarna Ólafsson, íþrótta- og tómstundafulltrúa Vcstmannaeyja varó Guðjóni að oröi. „Nú hlýtur ræðutími hans vera búinn." Leikir næstu viku I kvöld ríða 2. Ilokks stelpur á vaðiö og spila gcgn Stjörnunni kl. 18:00 hcr í Vestmannaeyjum. Þá keppir 4. Ilokkur Þórs gegn Grindavík á útivclli kl. 14:00 á laugardag. Fimrnti flokkur Týs kcppir tvo lciki gcgn B.í. á útivelli sama dag. A sunnudag kcppir m.ll. ÍBV, karla, gegn K.R. kl. I7:00og fjórði flokkur Þórs, drengja, keppir gcgn H.K. á útivclli sama dag, cinnig keppir 5. flokkur karla gegn Njarðvík á útivelli. Mánudaginn 21. júní keppir 2. Ilokkur karla síðan gegn Stjörnunni á hcimavclli kl. 20:00. Miðvikudaginn 23. júní leikur m.fl. kvenna ÍBV gcgn Val kl. 20:00 á hcimavelli. Þá leikur m.fl. ÍBV karla við Þór Ak. fimmtudaginn 24. júní kl. 20:00 á hcimavclli. - Haraldur og Júlíus héldu upp heiðri ættarinnar. Hið árlega Coca Cola mót Golf- klúbbs Vestmannaeyja fór fram um síðustu hclgi og bar hæst afrek Böðvars Bergþórssonar sem fór holu í höggi. Samtals voru leiknar 36 holur og stóð mótið bæði laugar- dag og sunnudag. Þær frændur, Haraldur Júlíusson og Júlíus Hallgrímsson notfærðu sér fjar- veru Þorsteins frænda og bróður, og skipuðu sér í 1. og 2. sætið og héldu þar með uppi heiðri ætt- arinnar í keppni án forgjafar en með forgjöf vann ungur kylfingur, Gunnar Geir Gústafsson. Haraldur fór 36 holumar á samtals 148 höggum og Júlíus fór á 150 höggum en á hæla hans kom Sigþór Óskarsson á 151 höggi. I keppni með forgjöf röð- uðu þrír ungir kylfingar sér í efstu sætin. Gunnar Geir var ótvíræður sigur- vegari á 133 höggum. Andrés Sigmundsson var 2. á 135 höggum og Óskar Haralds- son var 3. á jafnmörgum höggum en betri árangur Andrésar á 9 síóustu holunum tryggði honum 2. sætið. Einnig var kcppt utn hverjir kæmust næst tilteknum holum og þar stóöu sig best þcir Júlíus, Sigþórog Sigurjóns Pálsson fyrri daginn. Scinni daginn voru það Sigurður Guðmundsson, Marteinn Guðjóns-r son, Gunnar B. Viktorsson og Haraldur sem komust næst holum. Böðvar Bergþórsson tekur við hcillaóskum frá Sigmari Pálmasyni, umboðsmanni Coke í Vestmannaeyjum. Sigurvegurvegarar í Coca - Cola móti Golfklúbbs Vestmannaeyja ásamt Sigmari Pálmasyni, umboðsmanni Coke í Vestmanneyjum. Motocross mót við Sandskeið Vélhjólaíþróttaklúbburinn Vík hélt fyrstu Motorcross kcppni sum- arsins, sem gefur stig til Islands- meistara sunnudaginn 6. júní. Keppnin var haldin við Sandskeið í ágætis veðri. 11 keppendur mættu til leiks og var keppnin jöfn og spennandi en núverandi Islandsmeistari, Helgi Valur Georgsson, hafði sigur úr bítum eftir harða keppni. Keppt var á léttum bifhjólum aftur eftir 12 ára hlé. Þar voru mættir 3 keppendur úr skelli- nöðruklúbbnum Nítró í Grafarvogi og skemmtu sér og áhorfcndum ekkert síður heldur en krossaramir. Hér koma úrslit úr báðum fiokkunt: Motorcross (125cc - 500cc) 1. Helgi ValurGeorgsson HondaCR 250, árg. 1993. 2. Reynir Jónsson Kawasaki KX 250, árg. 1989. 3. IngibergurSigurðsson Suzuki RM 250, árg. 1990. Létt bifhjól (50cc) 1. Grímur Rúnarsson Suzuki TS 50. 2. Olgcir Örlygsson Suzuki TS 50. 3. Sverrir Jóhannsson Suzuki TS 50. Þá kepptu tveir Eyjamenn á mótinu, þeir Sigurður B. Richardsson og Ómar Stefánsson. Siggi lenti í fjórða sæti og Ómar í því áttunda. STREETBALL Streetball keppnin hefst kl. 18:00 í dag og verður hún við Iþrótta- miðstöðina. Að sögn forráða- manna er áhuginn mikill og hefur fjöldi liða skráð sig til keppni. Síðustu forvöð að skrá sig í kepp- nina er til kl. 15:00 í dag og geta þeir sem að hafa áhuga hringt í síma 13268 eða litið við Skóverslun Axels Ó. Sigurður Richardsson í loftinu. Mynd: Sigfús Gunnar. Einar Friðþjófsson, þjálfari 3. flokks ÍBV í knattspyrnu 1992: Spiluðum til úrslita urn Islandsmeistaratitilinn Vegna ummæla Þórs Vil- hjálmssonar, formanns Iþrótta- félagsins Þórs, í síðasta blaði, þar sem hann tala um árangur 3. flokks vill Einar Friðþjófsson fyrrverandi þjálfari 3. flokks koma leiðrétt-ingu á framfæri. I viðtalinu við Þór er hann aö ræða um hugsanlega sameiningu í yngri flokkunum og hefur hann efa- semdir um kosti þess. Segir m.a.: „Eg hélt t.d. eftir sameiningu 3. flokks að þar yrói betri árangur en raun ber vitni.“ Vegna þessara orða Þórs vill Einar vekja athygli á því að 3. flokkur, sem síðasta sumar lék í fyrsta skipti undir merkjum ÍBV, spilaði til úrslita um Islandsmeist- aratitilinn við Fram í fyrra. „Við töpuóum 5 - 4 í framlengdum leik sem ég held að verði að teljast góð- ur árangur. Við lékum í A-riðli og skoruðum yfir 70 mörk en fengum á okkur 10 í riðlakeppninni. Við hefð- um aldrei náð þessum árangrí ef við hefðum spilað tvískiptir undir merkjum Þórs og Týs. Svo má ekki gleyma að 3. fiokkur í handbolt- anum náði góðum árangri . var í 3. sæti. Strákar í 3. fiokki í fyrra urðu svo bikarmeistarar með 2^-flokki í vetur. Þetta hlýtur að st^ja sína sögu,“ sagói Einar að lokui.i. Arnv setti Is- landsmet Arný Hreiðarsdóttir er sem fyrr iðinn við kolann í frjálsuni íþróttum og fyrir stuttu setti hún Islandsmet á vormóti öldunga í Reykjavík. I tveimur greinum var Amý í fyrsta sæti. I langstökki með at- rennu stökk hún 5,07 metra. Islandsmetið á hún sjálf og er það 5,11 metrar. í þrístökki setti hún íslandsmet, stökk Ámý 9,26 metra. Yngri flokkarnir í síðustu viku léku 2., 3., og 5. flokkar karla í fótbolta. 5. flokkur karla keppti við Umf. Þrótt á Vogavelli sl. laug- ardag og sigraði leikinn 3 - 2. Gunnar Heiðar Þon’aldsson, miójumaður, skoraði öll þrjú mörkin og sagði hann í samtali við FRÉTTIR að þetta hefði ekki verið svakalega auðvelt. Þór keppti einnig gegn Njarðvík og varð jafntefli í þeim leik 3 - 3. Mörkin skomðu þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, 1, og Leifur Kristinsson 2. Næsti leikur hjá þeim er 27. júní og eru þeir efstir í sínum riðli. 3. flokkur karla keppti tvo leiki og tapaði báðum. Fyrri leikurinn var gegn IA og hinn gegn Fram. Þorsteinn Gunnarsson, þjálfari strákanna sagði í samtali við FRÉ l'l'lR að strákamir væru enn án tveggja lykilmanna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.