Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Blaðsíða 2
Tjaldstæðið hér Ferðamenn yfir sig hrifnir að fá að gista þessa náttúruperlu sem Herjólfsdalur er -og Vestmannaeyingar eiga að vera stoltir af því að geta boðið upp á jafn góða aðstöðu og boðið er í Dalnum segir Auróra Friðriksdóttir eftirlitsmaður. Auróra segir að þó auövitað megi ailtai gcra betur sé aðstaða fyrir tjaldgesti í Herjólfsdal til fyrirmyndar. Tjaldsvæðið í Herjólfsdal hefur verið talsvert til umræðu síðustu vikur þar sem því er haldið fram að það sé ekki nógu gott, aðstaða sc ófullnægjandi og það standist cngan veginn samanburð við tjald- stæði annarstaðar á landinu. Þessu er hér með vísað á bug eftir skoðun á því sem upp á er boðið fyrir ferðamcnn í Dalnum. l»ar býðst þeim sem Ilcrjólfsdal gista öll sú þjónusta scm hægt er að krcfjast á tjaldstæðum og svo gerir um- hverfið það að cinu því athyglisvcrðasta á öllu landinu. Skátafélagið Faxi hefur haft um- sjón með tjaldstæðinu í Herjólfsdal í mörg undanfarin ár og er svo enn. Auróra Friðriksdóttir, sem starfar við tjaldsvæðið, segir að skrif um tjald- stæðið og tilllöguflutningur um að gerð verði úttekt á því sé út í hött þó alltaf megi gera betur. Staðreyndin sé að tjaldstæðið í Herjólfsdal sé með þeim bcstu á landinu. Þar er boðið upp á aðstöðu sem ekki er víða aó finna á tjaldstæðum, hvorki hér á landi eða í nágrannalöndunum. Mið- stöð tjaldstæðisins er í gamla golfskálanum og hafa verió gerðar gagngerar endurbætur á honum undanfarin ár og er hann mjög snyrti- legur. Þar eru m.a. vaskar með heitu og köldu vatni, sturturog klósett fyrir karla og konur, eldunaraðstaða og setustofa. „Svo þegar stærri hópar koma, opnum vió þjóðhátíðarklósett- in, sem eru hituð upp og einnig heitt og kalt vatn, þannig að allir fá inni á snyrtingu," sagði Auróra. En Auróra leggur líka áherslu á að umhverfið og náttúran geri tjald- stæðið með þeim sérstæðari á landinu. „Fólk sem hingað kemur er undantekningalaust yfir sig hrifið, bæði af aðstöðunni og finnst frábært að fá tækifæri til þess að gista í þeirri náttúruperlu sem Dalurinn er. Um- lukinn fallegum fjöllum og fuglalífiö allt um kring. Þetta er upplifun sem bæði íslendingar og erlendir ferða- menn segjast ekki hafa kynnst annarstaðar. Það gerist líka mjög oft að þeir sem hingað koma framlengi dvölina, jafnvel um marga daga. Það á bæði við um útlendinga og Is- lendinga, sem fjölmenna hingað eftir að nýi Herjólfur kom. Á kvöldin er hliðinu að tjaldstæðinu lokað og það er virt af bæjarbúum þannig að fólk hér fær að vera í friði.“ Auróra segir að allir sem gista á tjaldstæðinu fái upplýsingar um um- hverfið og Eyjamar og hvað hægi er að gera. „Svo þegar óveður er í vændum er fólk varað við og ef nauðsyn krefur er því komið í hús. Held ég að sama hvar tjaldað væri í 10 til 12 vindstigum hér á Eyjunni, tjöldin myndu fjúka eða gefa sig. Að öllu þessu samanlögðu Finnst mér að Vestmannaeyingareigi að vera stoltir af tjaldstæðinu í Herjólfsdal, sem er ekki aðeins með þeim bestu á landinu líka eitt af þeim ódýrari. Algengt er að nóttin kosti um 800 krónur fyrir tvo en hér kostar nóttin 480 krónur, 160 krónur fyrir manninn og 160 fyrir tjaldið og frítt fyrir böm,“ sagði Aur- óra að lokum. Mirelaz frá Sviss o}> Cristina frá Frakklandi: Stórkostlegur staður . Blaðamaður FRÉTTA hitti tvær konur, Mirelaz frá Sviss og Cristina frá Frakklandi og voru þær sammála um að fallegra tjald- stæði höfðu þær ekki gist og voru ákvcðnar í að framlengja dvölina. Cristina er blaðamaður og var til- gangur ferða hennar að skrifa um Surtsey. Hafði hún orð fyrir þeim. „Tjaldstæðið hér er mjög gott, um- hverfið dásamlegt og mótttökumar sem við höfum fengið eru alveg dásamlegar. Það besta er að geta tjaldaó í skjóli stórra steina og finna að maður sé eins og heima hjá sér,“ sagði hún. Hér hefur okkur liðið vel og Finnst við vera eins og hcima hjá okkur. S UMARÞANKAR Teygjustökk Mikið rosalega er gaman að því þegar fólk leikur sér að því að storka ör- lögunum með því aó henda sér úr krana í 30-40 m. hæð, og treystir teygju fyrir lífi sínu. Teygjustökk heitir þetta nýjasta tískufyrirbrigði og virðist vera eins konar ný- tísku bjargsig, nema nú er teygja (komin í stað kaðals. Nú er ekki verið aó fikra sig niður bjargið með lærvaði og félagamir uppi á bjargbrún sjá um að láta mann síga. Nei, nú er bara látið sig gossa úr krananum með teygju um lappimar svo maður verður stjarfur af hræðslu, æðamar í höfðinu þenjast ýt vegna þrýstings og springa, sjóntmflanir gera vart við sig og svo á maður á hættu að hengja sig í þokkabót. Þetta kallar maður fjör. Svo-gengur maður rogg- inn um bæinn á eftir, eins og maður sé með eldspýtu undir hökunni, orðinn maður með mönnum. Það em ekki bara unglingar sem finnst þetta svona æðislegt heldur menn og konur á besta aldri. Mætti ég biðja um meira svona, helst. um hverja einustu helgi. Þá verður gaman að fara niður á bryggju með popp og kók og sjá hvort einhver drepur sig fyrir fjögur þúsund krónur, og allt „beint 1 æð“. Og eins og einn góður maður, benti réttilega á: Hvað em íþróttafélögin eiginlega að leggja allt þetta Þjóðhátíðarbrölt á sig fyrir hagnað upp á 30- 40 milljónir á ári, þegar þessi gullnáma, teygju- stökk, er annars vegar. í viðtali um daginn mátti ekki skilja höfuðpaur teygjustökksins öðmvísi en svo að sl. tvö ár hefðu teygjustökkin verið um 130 þúsund. Þaö gerir hvorki meira né minna en um 400 milljónir króna í hagnað. Kannski ætti bæjarfélagið einfaldlega að gera út á þetta. Meira af svona löguðu, takk fyrir! Sköpunarverkið Nú stendur lundaveiði- tímabilio sem hæst en veiði hefur verið frekar dræm hingað til. A meðan Eyjamenn dingla í háloftunum í teygju, em úteyingamir að príla í þverhníptum björgunum með lúnda- háfana, blótandi blíð- viðrinu því þá er ekkert flug og engin veiði. I úteyjunum ríkir mikið karlasamfélag og þar er mikið grín og glens. Það er svo yndislegt og af- slappandi að komast út í eyju frá skarkala heimsins og dvelja þar í faðmi nátt- úmnnar. Þar er sköpunarverkið í allri sinni dýrð, lundalýs og fugladrit, háfurinn og talstöðin. Astæðan fyrir því að ég set hér á blað nokkur orð um lundaveiði, er sú að ég var beðinn um aó koma því á framfæri. að það er betra að hafa vaðinn fyrir neðan sig (eins og út- eyingar orða það) og verða sér tímanlega úti um Þjóðhátíðarlundann sökum mjög dræmrar .lundaveiði. Þorsteinn Gunnarsson

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.