Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Page 17

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Page 17
Afladraumar -Skipstjórar í Eyjaflotanum segja frá afladraumum og berdreymi. Afladraumar voru mjög algengir á árabátaöld. Nú í seinni tíð virðast íslenskir skipstjórar ekki vera eins berdreymnir og áður fyrr, ef marka má samtöl við kunna skip- stjóra í Eyjaflotanum. En þeir eru enn til, kunnir aflaskipstjórar, sem treysta á drauma sína, og fiska vel, þótt ekki fari hátt um þá. Kvik- mynd Þráins Bertelssonar, Nýtt líf, frá árinu 1982, gerði góðlátlegt grín á sínum tíma, að skipstjóra (sem Sveinn Tómasson lék) sem hafði ekki dregið bein úr sjó. l>egar landkrabbi sagði við skipstjórann að hann hefði dreymt fulla potta af skít (sem á að boða mikið fiskirí) var hann umsvifalaust ráðinn á bátinn og fékk að sofa allan túrinn í von um að hann dreymdi eitthvað meira. En svo fór nú ekki og hann var rekinn af bátnum. Alls konar hjátrú og kreddur tengjast sjó- mcnnsku, en ekki verður farið út í þá sálma hér. Það bíður betri tíma. En það eru afladraumar og ber- drcymni skipstjóra í Eyjaflotanum sem er viðfangsefnið hér. Ekki er vitað til þess að gerð hafi verið nákvæm úttekt á afladraumum, en blaðamaður fór á stúfana og spjall- aði við nokkra skipstjóra í Eyja- flotanum um afladrauma. Eru þeir eins berdreymnir og forfeðurnir? Sigmar Georgsson, kaupmaður í Vöruval, fékk skemmtilega heimsókn á dögunum. Voru það fulltrúar Landgræðslunnar ásamt Elíasi Baldvins- syni, forstöðumanni Áhaldahúss. Tilefni heimsóknarinnar var að þakka Sigmari fyrir það að gefa hálfvirði innkaupapokanna sem hánn selur í búð sinni til Pokasjóðs Landverndar. Mun Sigmar vera eini kaupmaður- inn í Vestmannaeyjum sem lætur hálfvirðið renna til Landverndar. Uppgræðslan í Eldfelli hefur fengið að njóta peninganna úr Pokasjóði og samdist svo um þegar Sigmar hóf þessi viðskipti að allir þeir peningar sem safnaðist hjá honum færu í uppgræðslu Eldfells. Sigmar sagði við þetta tækifæri að hann væri einungis að launa þeim greiðann því áður en uppgræðslan hófst hefði hann árlega þurft að moka sandi af blettinum við heimili sitt í Smáragötu vegna foks í Eldfelli, en það hefði hunn ekki þurft að gerasíðastliðin tvö ár. í bók Lúðvíks Kristjánssonar, ís- lenskir sjávarhættir (5), cru tíndir til draumar sem boða góðan feng úr sjó. Þar má nefna að dreyma bát sinn velkjast fullan í brimi. Að dreyma net eða önnur veiðarfæri, grautfúin og ónýt, einnig götótt sjóklæði. Að dreyma sig vera úti, horfa til lofts og sjá heiðbjartan himin. Að dreyma for- mann kyssa háseta. Að dreyma sig handfjalla síða hárlokka á konu og t.d. vefja þeim um höfuð hennar. Að dreyma mikið brim, því betra sem það gengur hærra á land. Að dreyma mjólk eöa mjólkurgraut. Að dreyma bjarta og fagra öngla og vera við moldarverk. Slæmir aflaboðar voru svo til ó- þekktir, en að dreyma bát settan á land eða að dreyma miklar fjörur var fyrir fiskleysi. Þá segir gamall sjó- maður úr Grindavík að mörgum hafi verið illa vió að dreyma kvenfólk áðuren þeir fóru út. En hvað segja skipstjóramir í Eyja- flotanum í dag? Sigurjón Oskarsson: Háhyrninga- vaðan S i g u r j ó n Óskarsson, hinn kunni aflaskip- stjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE 401, sagði blaðamanni frá einum afla- draumi. ■ „Við vorum á síld ‘85 fyrir austan. Þá dreymir mig menn í smókingfötum og með hvíta hanska, sem standa yfir opinni gröf. Daginn eftir erum við staddir á Norðfirði þegar við sjáum háhymingavöðu. Þegar ég sá þessa svörtu og hvítu háhyminga, kom draumurinn strax upp í hugann og ég ákvað að elta vöðuna. Eg elti hana alveg inn í botn á firðinum, kastaði þar og fyllti bátinn í einu kasti,“segir Sigurjón. Það eru ekki bara draumar sem sjómenn taka mark á, ýmiss önnur teikn geta spilað inn í. Lúða þykir alltaf happadráttur og þykir benda á kvenhylli. Óskar Þórarinsson: Aldrei verið berdreyminn Óskar Þórarins- son skipstjóri á Frá VE, frá Há- eyri, réri lengi með Ása í Bæ, og bjargaði honum reyndar í eitt skipti frá d r u k k - n u n , þegar Ási féll fyrir borð. Asi lýsir þessu í áðumefndri bók, en Óskar segir að karlinn lýsi þessu ekki alveg rétt, enda missti Asi meðvitund og það þurfti að blása líf í hann. Óskar segir að þegar Ási hafa vaknað til lífsins eftir að hann hafði náð honum upp úr sjónum, hafi hann opnað augun, litið í kringum sig og spurt: „Lóðar á mér“. Hafi þetta lýst vel húmomum í karlinum. „Asi var mjög bérdreyminn og það var eins og hann vissi nákvæmlega hvað hann átti að gera og hvert hann ætti að fara. Sjálfur hef ég aldrei verið berdreyminn, þrátt fyrir alla þessa hjátrú sem fylgir sjómennskunni. Reyndar er ég sannfærður um að um borð í hverjum einasta bát séu andar sem halda vemdarhendi yfir á- höfninni, og vekja menn ef á þarf að halda. Einu sinni man ég eftir því að gamall formaður, Ingibergur á Sand- felli, sagði fyrir eitt sumarið að nú fáum við hann, því hann hafði dreymt lestina fulla af skít, sem á að boða gott fiskirí. En það gekk hvorki né rak, ekki bein að fá úr sjó og að út- haldinu loknu, geröi einn hásetinn sér lítið fyrir að kúkaói í lestina á bátnum, til að stríða karlinum. Ekki rættist því draumur karlsins aó þessu sinni. En þetta er merkilegt rannsóknarefni," sagði Óskar á Há- eyri að lokum. Logi Snædal Jónsson: Draumráðninga- bókin hvarf undanfama daga og þar sem ég var ó- fullur í þetta sinn hafði ég ekki kjark í mér til að taka ráðin af skynseminni, fiskurinn virtist vera þama á stóru svæði og ólíklegt að hann hyrfi á einni nóttu. Svo við vomm með í halarófunni sem hélt vestur á miðin. En það er aldrei á vísan að róa, þar sem fiskur var í gær, er hann ekki í dag. Það er leitað vestar og vestar, dýpra og grynnra, en enginn bátur lendir í fiski. Og alltaf ær blessuó stjaman að ásækja mig". Um tíuleytið segi ég við Óla frænda: Héma, taktu við stjóminni og haltu austur með Sandi þangað til Bjamarey er komin austur undan Elliðaey, á fjörtíu föð- munum. Eg ætla að leggja mig. Þegar þangað kemur: ekki frekar en í hland- koppi. O jæja, ekki alltaf að marka stjömur. Ætli við fömm ekki heimar í það piltar, tökum því með stillingu. Eg ætla að stinga niður héma á Mannklakknum að gamni mínu, þar hefur ekki verið rennt færi síðan um aldamót. Og hvað gerist þá? Eg vissi nokkumveginn hvemig átti að leggja línu við þennan hraunfláka, en hafði ekki hugmynd um gamla færamiðið sem þar átti að vera. Nú stýri ég bátnum beina leió á þetta mið, sem reyndist vera hár standur uppúr hrauninu - og hann er kafloðinn utan af fiski. Stjaman í austri gaf okkur sjö tonn af þes'ttm fallega þorski. A heimleiðinni mættum við bátunum sem komu aó vestan. Þeir höfðu ekki orðið beins varir.“ Logi Snædal Jónsson, skip- stjóri á Smáey, segir að sig hafi aldrei dreymt nokkurn skap- aðan hlut, enda vilji hann ckki eyðileggja svefn- inn með ein- hverri draumavitleysu. „Ég segi alveg satt, ég hef aldrei dreymt neina afladrauma. Ég get hins vegar sagt frá því að í vetur, spurói ég strákana annað kastið hvort þá hefði ekki dreymt eitthvað. Jú, það kom í Ijós að þá var alltaf að dreyma hitt og þetta sem átti að boða hellings fiskerí, en það stóð samt eitthvað á því. Síðan ákvað kokkurinn, sem sér um bóka- safnsmálin hér um borð, að taka draumaráðningabók. Eftir að bókin kom um borð, hætti alla snögglega að dreyma,“ sagði Logi, sem gaf ekki mikið fyrir afla- drauma. I>orsteinn Gunnarsson. Hann segir að annars hafi hann lítið dreymt í gegnum tíðina og sé ekki mjög berdreyminn. Hins vegar sé hann sannfærður um að sumir hafi þessa hæfileika. „Það var einu sinni strákur um borð hjá mér, sem var þessum hæfileikum gæddur. Hann sagði méreinu sinni að fara noró-vestur því þar myndi aflast vel. En ég hlustaði ekkert á hann, en síðan frétti ég að þar hefði flskast einhver ósköp,“ sagði Sigurjón að lokum. Ási í Bæ: Stjarna í austur- himni Ási heitinn í Bæ, segir í bók sinni „Sá hlær bezt...“ að stun- dum hafi sig dreymt afla- drauma. Hann segir svo frá í bókinni: „Einhverju sinni dreymir mig, að ég sé bjarta stjömu á austurhimni. Á leiðinni niðrí bát þessa nótt minntist ég draumsins, því það var heiðskírt loft. Nú, við eigum að fara austur, hugsa ég. En við höfóum fiskað sæmilega vestur með sandinum inn við Þrídranga Bfll til sölu Til sölu Honda Accord EX árgerð, 1987. Ekinn 84 þúsund km.‘ Á sama stað er óskað eftir 12-13 ára stelpu til að passa eins árs gamals barns. Upplýsingar í síma 12193. Tapað fundið Tapast hefur svört hetta af gas- grilli, hugsanlega fokið vestur. Finnandi ef einhver er vinsam- lega hafi samband f síma 11661. Lundaháfur Óska að kaupa lundaháf. Upplýsingar í síma 12024 eða 11989.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.