Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Page 19

Fréttir - Eyjafréttir - 22.07.1993, Page 19
Góður árangur Kyjastelpna á Gull oj» sUturmótinu: 5. flokkur Týs í fyrsta sæti -í keppni A-liða og Þór varð í 2. sæti og alls komust 4 Eyjalið á verðlaiinapall. A-Iið Týs í 5. flokki ásamt þjálfurunum Stefaníu og Ernu. Gull og Silfurmótsmeistarar þetta árið. Annar flokkur kvenna ÍBV tók ekki þátt í mótinu þó þeim stæöi þaö til boða. Þriðji flokkur Týs og Þórs tók þátt í A. liðum og komst Týr í úr- slit um 1. til 6. sæti og endaði í því sjötta sæti. Af tölunum úr leikjunum að dæma þá hefðu þær getað komist mun ofar því þær töpuðu tveim leikjum með einu marki og gerðu eitt jafntefli. Einungis vantaði herslu- muninn á betri árangur þar. Þórsstelpur komust hinsvegar ekki í úrslit og enduðu í níunda sæti. Fjórði flokkurTýs og Þórs keppti í A. liðum og náðu Týsstelpur að krækja sér í 6 stig og var í fjórða sæti á eftir Val með 12 stig, Stjömunni með 9 stig og KR með 6 stig. Það sem réði úrslitum um hvort þriðja eða fjórða sætið yrði þeirra var aó inn- byrðisleikurinn gegn KR tapaðist 4 - 1. Þórsstelpur töpuðu öllum sínum leikjum í þessum flokki. Hjá fimmta flokki leit besti árang- urinn ljós. A. og B. lið Týs og Þórs unnu sér öll inn verðlaunapeninga, þ.e.a.s. urðu í þremur efstu sætum og var árangur Týs í A. liðum glæsi- legur. Þær kepptu alla sína leiki án þess að fá á sig mark og þegar seinasti leikurinn var eftir þá voru þær orðnar öruggar um sigur. Þess má einnig geta að þessi flokkur hefur ekki fengið á sig mark í allt sumar. Ema Þorleifsdóttir, þjálfari stúlkn- anna sagði að stelpumar væru allar rosalega góðar. „Þær spila góða vöm, eru alla mjög góðar og aftasta mann- eskjan hjá okkur, Elfa Ásdís Olafsdóttir, fyrirliði, er alveg einstök þegar hún er að hreinsa frá marki. 5. flokkur Þórs í A. liðum varð síðan í öóru sæti, aðeins þremur stigum á eftir Týsstelpum. I 5. flokki B. liða varð árangurinn ekki síður glæsilegur því Týs stúlkur urðu í öðru sæti með sjö stig aðeins tveimur stigum á eftir UBK sem sigraði. Þórsstelpur urðu síöan í þriðja sæti með 6 stig. Að endingu spilaði landslið gegn pressuliði í 3. flokki og sigraði lands- liðið, 2 - 1 fneð öðru marki Rögnu Ragnarsdóttur. Mark pressuliðsins gerði einnig ung Eyjastúlka, Bára Karlsdóttir, Tý. Hinar knáu Þórsstelpur í 5. flokki B-Iiða. Um síðustu helgi fór fram Gull og Silfurmót Breiðabliks í Kópa- vogi. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og léku stelpurnar knattspyrnu frá föstudegi til sunnudags í góðu yfirlæti. Árangur A. liðs 5. flokks Týs var bestur en þær sigruðu sinn riðil og urðu því Sigurlið A. liðs Týs í fimmta flokki. Efri röð frá vinstri: Stefanía Guðjónsdóttir, liðsstjóri, Rakel Rut Stefánsdóttir, Aldís Grímsdóttir, Rakel Gísladóttir, Elfa Ásdis Ólafs- dóttir og Ema Þorleifsdóttir, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Bjartey, Gylfadóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Andrea Gísladóttir og Sunna Sigurjónsdóttir. Fylkir og ÍBV í getraunadeildinni í kvöld: Þurfum að bæta varnarleikinn -segir Friðrik Friðriksson, markvörður ÍBV. ÍBV mætir Fylkir í Árbænum í kvöld í Getraunadeildinni. Þetta er gífurlega mikilvægur Ieikur fyrir bæði liðin. Þau eru með 9 stig og berjast hatrammri baráttu fyrir lífi sínu í deildmni. Hins vegar er markatala IBV mun betri _en Fylkismanna og því eru Ár- bæingarnir í fallsætinu. Friórik Friðrikssön, markvörður ÍBV, segir aó þetta sé lykilleikur. „Það má segja að ef við töpum leiknum, verðum við í sömu stöðu og fyrir Víkingsleikinn, einum leik á eftir hinum liðunum. Ef vió vinnum er staða okkar öll mun vænlegri enda stutt í liðin fyrir ofan. Dagsskipunin er því að tapa ekki leiknum. En vió þurfum þá aó bæta vamarleikinn frá því í síðustu leikjum. Við höfum fengið of mörg mörk á okkur og auðvitað þurfum við einnig að nýta betur okkar eigin marktækifæri. Eg er ekki alveg sáttur við franimistöðu okkar í sumar en þetta er allt á réttri Ieið,“ sagði Friðrik að lokum. Leikur ÍBV og Fylkis er síðasti leikur Eyjamanna í fyrri umferðinni og því er íslandsmótið hálfnað eftir leikinn í kvöld. Til gamans má geta þess að þegar þrjár umferðir voru eftir af íslandsmótinu í fyrra, hafói IBV 7 stig, en tókst samt að halda sér uppi. Staðan í Getraunadeildinni fyrir leiki kvöldsins, er þessi: Akranes 8 7 0 1 27-8 21 FH 8 5 2 1 18-10 17 KR 8 4 13 18-10 13 Fram 8 4 0 4 19-15 12 Valur 8 4 0 4 14-11 12 Þór 8 3 2 3 8-9 11 Keflavík 8 31411-18 10 ÍBV 8 2 3 3 13-14 9 Fylkir 8 3 0 5 8-17 9 Víkingur 8 0 1 7 7-31 1 — mm ui tTT TTt ttt ''Xe\\un ÍBV-strákarnir fagna marki sínu í lciknum gegn KR á mánudaginn. Mjólkurbikarinn 8-liða úrslit: Bikardraumur á enda runninn Bikardraumur Eyjamanna varð að engu þegar KR-ingar sigruðu IBV í Frostaskjóli sl. mánudagskvöld í 8 liða úrslitum bikarkcppninnar, með þrcmur mörkum gcgn einu. Urslitin voru engan vegin í sam- ræmi við gang lciksins því Eyjamenn voru síst verri aðilinn í lciknum og áttu miklu betra skilið en að tapa með tveggja marka mun. Eyjamenn hófu leikinn af miklum krafti og náðu forystu með marki Bjarna Sveinbjörssonar. Var sérlcga vel að markinu staðið en Bjami rak endahnútinn á fallega sókn. En Adam varekki lengi í paradís og KR-ingar jöfnuöu metin skömmu síðar eftir ótrúlegan sofandahátt í vörninni, og minnti þetta mark ó- neitanlega á mark sem Víkingar skoruðu í síðasta leik hjá IBV. Tekin var snögg aukaspyma á meðan vamarmenn ÍBV voru að koma sér fyrir og eftirleikurinn var auöveldur. Eftir jöfnunarmarkiðóðu Eyjamcnn í marktækifærum. Steingrímur fékk tvö góð færi einn á móti markvcrði KR og Martin brenndi einnig af cinn á auðum sjó. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að fara svona illa með marktækifæri og KR-ingar náði forystunni strax á fyrstu mínútu mcó marki Eyjamannsins Tómasar I. Tómassonar. Þetta var það eina scm Tómas gcrði í leiknum því Jón Bragi" Arnarsson hafði hann í vasanum allan Icikinn. Þrátt fyrir góða tilburði okkar manna tókst þeim ckki að jafna og KR-ingar bættu við þriðja mark- inu á lokamínútu lciksins og var þar Hcimir Guðjónsson að verki. Lokatölur urðu því 3-1 fyrir KR og komust þcir í undanúrslit. Þrátt l'yrir að þaó sé aldrei ásættan- lcgt að tapa lcik, verður að segjast cins og er að Eyjamcnn sýndu cinn sinn bcsta lcik í sumar. Boltinn gckk mjög vcl á miójunni með Nökkva og Anton Björn scm bestu mcnn. Þá var Martin mjög sprækur og Jón Bragi stcrkur í vöminni. Fyrir lcikmenn ÍBV er um að gera að glcyma bikarkeppninni í ár og snúa sér að I. dcildinni, sem hlýtur að vcra forgangsverkefni liðsins. Næsti lcikur cr þcgar í kvöld, hálfgeröur úr- slitaleikur í fallbaráttunni gegn Fylki í Árbænum. Ynj»ri flokkarnir 2. flokkur IBV fékk skell gegn Blikum Annar flokkur ÍBV keppti í fyrra- dag gegn Breiðablik og tapaði 6 - 3 eftir að hafa haft yfirhöndina í hálf- leik, 2' : 1. Að sögn Magnúsar Sigurðssonar, fyrirliða, var áran- urinn mjög slakur. Þeim hafði gengið mjög vel í fyrri hálfleik en þegar seinni hálfleikur hófst þá vildu allir taka málin í sínar eigin hendur og klára dæmió þannig, sem að sjálf- sögðu gekk ekki til lengdar. Þriðji flokkur ÍBV keppti á mánudag og tapaði enn einu sinni, 13 - I gegn Val. Ekki er öll nótt úti enn um að þeir geti snúið dæminu við og reynt að halda sér upp í deildinni þrátt fyrir lélegan árangur undan- farið. Þá hefur fjórði flokkur Þórs keppt sinn fyrsta leik á Gothia Cup mótinu í Svíþjóð og sigruðu þeir þann lcik. Áður en þeir fóru út kepptu þeir við Þrótt og Keflavík og töpuðu báðum leikjunum, 3 - 2 og 7 - 1. Með þcssum töpum klúöruðu þcir því að komast í úrslit en þcim hefði nægt cinn sigur. Fimmti flokkur Týs kcppti gcgn Ungmcnnafélaginu Þrótti í A. liðum og sigraði þann leik, I - 0. I Vestmannaeyjamótinu hafa verið leiknir tvcir leikir hjá 3. flokki kvenna. Aðeins er einn lcikur cftir og hcfur honum verið frestað hvað eftir annað þrátt fyrir að Týs stelpur hafi unnið báða leikina og séu öruggur með titilinn. Vestmannaeyjamótinu í 5. flokki cr lokið og vann Týr í A. og B. tiðum og Þór í C. Sjöundi flokkur keppti í Vestmannaeyjamótinu og í næstseinustu umferð sigruðu Týrarar í A. og C. liðum en Þór í B. I seinustu umferð sigraði Þór í B. liðum og er því Vestmannaeyjameistari eftir fjóra sigra og tvö töp. A. liði Týs varð Vestmannaeyjameistari og einnig varð Týr Vestmannaeyjameistari í C. liðum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.