Skessuhorn - 29.06.2011, Blaðsíða 24
Fjölbreytt dagskrá alla helgina m.a.:
Í gangi alla Írsku dagana - Gamli vitinn á Breiðinni - Ljósmyndasýning
Hin árlega ljósmyndasýning í Gamla vitanum á Breiðinni á Írskum dögum.
Á sýningunni verða ljósmyndir sem sýna stiklur úr sögu sjósóknar og
útgerðar á Akranesi.
30. júní til 3. júlí Húllum hæ hjá Model á Írskum dögum.
Tilboð á ýmsum vörum á Írskum dögum, t.d. flott Landmann grill, hverju
grilli fylgir að auki dýrindissteik fyrir götugrillið. Óvæntur glaðningur fylgir til
allra sem versla í Model á Írskum dögum. Laugardaginn 2. júlí býður Model
upp á grillaðar pylsur í hádeginu.
Fimmtudagur 30. júní
13:00-17:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.
16:00-17:30 Húsasmiðjan við Smiðjuvelli
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar á Akranesi á Írskum dögum!
20:00 Garðakaffi - Írsk vaka í Garðakaffi
Fróðlegir fyrirlestrar um keltnesk áhrif á Akranesi og nágrenni,
írska hljómsveitin „Na Draoithe“ leikur ekta írska tónlist o. fl.
21:00 Stúkuhúsið á Safnasvæðinu í Görðum
“Stúkurnar” flytja öll sín þekktustu Stúkulög og keltneska tónlist í bland.
Aðgangseyrir kr. 500.
Veitingahúsið Breiðin – Hjálmar
Föstudagur 1. júlí
10:00-11:00 Opnunarhátíð Írskra daga 2010
Leikskólabörn á Akranesi koma saman á Safnasvæðinu og opna hátíðina
- óvæntur gestur kíkir í heimsókn!
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
16:00 Lasertag og litboltavöllur (Paintball)
Götugrillin vinsælu um allan bæ um kvöldið!
22:00 Kvöldvaka í Miðbænum
Vinir Sjonna koma fram og syngja nokkur lög!
Veitingahúsið Breiðin - GusGus
Gamla Kaupfélagið - Vinir Sjonna
Laugardagur 2. júlí
Garðavöllur – Opna „Guinness“ mótið
Opið golfmót á Garðavelli, Akranesi. Keppnisfyrirkomulag er
Texas Scramble. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
10:00 Víkingar á Safnasvæðinu
Víkingahóparnir Hringhorni og Rimmugýgur sýna bardagalistir og víkingaleiki
á Safnasvæðinu á Akranesi og verða á svæðinu allan daginn.
10:00 Dorgveiðikeppni á „Stóru bryggjunni“
(Aðal-hafnargarði) í boði verslunarinnar Módel á Akranesi.
Glæsilegir vinningar í boði.
11:00 „Akrafjallsmótið“ í hjólreiðum.
Keppt í tveimur flokkum karla og kvenna og unglingaflokki. Ræst verður frá
Bónus og þar er einnig endamark keppninnar. Hjólað verður í kringum
Akrafjall. Grill, go-kart og hoppkastalar á planinu við Bónus en
„Akrafjallsmótinu“ lýkur á sama tíma.
11:00 Mýrarboltamót Írskra daga á svæðinu við Garðalund
Ævintýrafélagið stendur fyrir Mýrarboltamóti á Írskum dögum.
Mótið hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 18:00, og fer fram við Garðalund
(gömlu skólagörðunum). Veglegir vinningar eru í boði, þar á meðal eru
vinningar veittir fyrir flottasta búninginn, skítugustu manneskjuna,
hressasta liðið, besti leikmaðurinn auk þess sem sigurvegari mótsins ávinnur
sér rétt til þátttöku í Evrópumótinu í Mýrarbolta sem fram fer um verslunar-
mannahelgina á Ísafirði. Sjá nánar á www.irskirdagar.is.
12:00 Verslunin Model býður gestum og gangandi upp á grillaðar
pylsur í hádeginu.
12:00 - 16:00 Verslun Model og Vodafone á Akranesi - Keppt í tölvuleik-
num Angry Birds á Írskum dögum
Keppnin fer fram fyrir utan verslunina Model og er opin öllum. Að auki verður
risastór Angry Birds braut sett upp og geta áhugasamir spreytt sig á að
reyna að skjóta niður svín með stærstu teygjubyssu landsins.
13:00 Jaðarsbakkar – Kraftaáskorun á Akranesi
Keppnisgreinar eru Húsafellshelluburður, Sirkus handlóð og Atlassteinn.
Keppt verður bæði í 105 kg flokki og opnum flokki. Allir hvattir til að taka
þátt! Glæsileg verðlaun í boði! Stjórnandi Kraftaáskorunar á Akranesi er hinn
eini og sanni Hjalti „Úrsus“ Árnason! Skráning í gangi á netfanginu
hjaltiar@simnet.is og í síma 897 8626.
13:00 Lasertag og litboltavöllur (Paintball) á svæðinu við Sements-
verksmiðju.
13:00 Sandkastalakeppni á Langasandi – Ath. breytingu á tímasetningu!
Keppnin hefst kl. 13:00 en ekki kl. 10:00 eins og áður var auglýst!
Keppt er í eftirtöldum flokkum: Besti sandkastalinn - Fallegasta listaverkið -
Fjölskyldan saman - Yngsti keppandinn. Glæsileg verðlaun eru í boði
- allir þátttakendur fá verðlaunapeninga. Mætið á Langasand
(neðan við nýja pallinn) með skóflur, fötur.
13:00-17:00 Markaðsstemning í Akraneshöllinni!
Frábært tækifæri til að gera góð kaup. Handverk, listmunir, prjónavörur,
leikföng, fatnaður, margskonar góðgæti og fleira og fleira!
13:00-16:00 Bílasýning á planinu við Stjórnsýsluhúsið að Stillholti 16-18.
Krúser klúbburinn kemur í heimsókn og sýnir glæsivagna. Veltibíll Sjóvá
verður á staðnum fyrir gesti og gangandi og björgunarsveitarbílar verða til
sýnis.
13:00 -17:00 Kökuskreytingakeppni Írskra daga og mömmur.is í
Akraneshöllinni
13:00 - 17:00 Vélhjólasýning í Akraneshöllinni
13:00 - 17:00 Leikjaland á Jaðarsbökkum, neðan við Akraneshöll á vegum
Alltaf gaman! Fullt af skemmtilegum leikjum fyrir alla fjölskylduna!
13:00-17:00 Listasmiðja á Jaðarsbökkum, neðan við Akraneshöll
Írskir búálfar verðum við! Litum, klippum, málum og heftum og úr
verður búálfaGRÍMA! Fyrir alla fjölskylduna. Umsjón hugMYND
myndlistarmiðstöð.
13:00-17:00 Go Kart á planinu við Bónus
13:00 Tívolístemning við Akraneshöllina
14:00-15:00 AutoX aksturskeppni á planinu bak við Krónuna.
Það verður stutt braut þar allar gerðir bifreiða geta tekið þátt.
Hægt að skrá sig til 30.júní á bikrsport@gmail.com, þáttökugjald er
kr. 500,-. Upplýsingar á www.bikr.is. Verðlaun í boði frá OMNIS og
Guðmundi B. Hannah fyrir 3 efstu sætin.
14:00-16:00 „Hittnasta amman“ í körfu á Jaðarsbakkasvæðinu!
Einstakt tækifæri fyrir hittnar ömmur. Skráning á staðnum.
Glæsilegir vinningar í boði.
14:00-16:00 Gallerí Urmull, Kirkjubraut 54-56
Boðið verður upp á „írskar“ pönnukökur og vöfflur gegn vægu gjaldi.
Einnig verður boðið upp á skemmtilega afþreyingu fyrir börn á öllum
aldri.
15:00 Rauðhærðasti Íslendingurinn á Jaðarsbökkum!
Allir rauðhærðir hvattir til að mæta til keppni. Glæsilegir vinningar í boði!
Skráning með tölvupósti hjá tomas@akranes.is eða á staðnum.
15:30-17:00 „Mammúng“ á Jaðarsbökkum
Dagur Sigurðsson, sigurvegari í söngkeppni framhaldsskólanna,
Óskar Axel, Júlí Heiðar, Bjartur Elí, Kristmundur Axel, Mollý, MC Biggi,
Ragnheiður Erla!
20:30 Stúkuhúsið á Safnasvæðinu í Görðum
Rífandi írsk stemning, keltnesk tónlist og annað góðgæti útsett og flutt
af Stúkunum í boði Oran Mór. Aðgangseyrir kr. 500.
22:00 Írsk stemning í Garðakaffi – Írska hljómsveitin „Na Draoithe“
leikur ekta írska tónlist!
22:45 „Þyrlupallur“ við Akranesvöll - Brekkusöngur
Lopapeysan 2011
Stærsta og magnaðasta ball ársins á Íslandi!
Papar, Ingó & Veðurguðirnir, Björgvin Halldórsson, Hreimur ofl. halda
uppi stuðinu og spila fram undir morgun!
Gamla Kaupfélagið - Bogomil Font, Bjarni Ara og Milljónamæringarnir
Sunnudagur 3. júlí
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
10:00 Víkingar á Safnasvæðinu
Víkingahóparnir Hringhorni og Rimmugýgur sýna bardagalistir og
víkingaleiki á Safnasvæðinu á Akranesi.
13:00-17:00 Go Kart á planinu við Bónus.
14:00-16:00 Fjölskyldudagur á Jaðarsbökkum
– Lokahátíð Írskra daga 2011!
Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna! Listasmiðja og Leikjaland!
Krakkaþrautir - Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsufræðingur verður
með hreystiþrautir fyrir börn!
Aðgangur að dagskrá Írskra daga er ókeypis nema annað
sé tekið fram!
Sjá nánar á www.irskirdagar.is
Góða skemmtun á Írskum dögum 2011!
Reglur á tjaldsvæðinu í Kalmansvík
á Akranesi á Írskum dögum 2011
Tjaldsvæðið í Kalmansvík er fjölskyldutjaldsvæði á Írskum
dögum. Þetta þýðir að öllum unglingum og ungu fólki yngra
en 23 ára verður vísað frá tjaldstæðinu, nema um sé að ræða
fjölskyldufólk, þ.e. foreldra með börnin sín.
Sérstök verðskrá gildir á tjaldsvæðinu í Kalmansvík á Írskum
dögum. Allir gestir 14 ára og eldri greiða 2.000 kr. fyrir alla
helgina, einnig greiðast 2.000 kr. fyrir hvern gististað; tjald,
fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl. Innifalin í gjaldinu er aðgangur að
allri aðstöðu og þjónustu á svæðinu, m.a. þvottavél, þurrkara,
sturtum og rafmagni. Hver gestur fær armband til auðkennis
sem gildir sem aðgangur að tjaldsvæðinu þessa helgi.
Vinsamlegast athugið að Útilegukortið gildir ekki á tjald-
svæðinu í Kalmansvík þessa helgi. Að öðru leyti gilda
almennar umgengnisreglur á tjaldsvæðum sem gestir á
tjaldsvæðinu eru vinsamlegast beðnir að virða.
Góða skemmtun á Írskum dögum!
Akraneskaupstaður og starfsfólk tjaldsvæðisins
í Kalmansvík