Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 23.01.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Síð ustu árin hafa lands menn gert sér grein fyr ir því að stór vá er fyr­ ir dyr um, ekki ein ung is af völd um jarð skjálfta, ham fara veðra eða snjó­ flóða, held ur einnig vegna gróð­ ur elda. Lík lega voru Mýra eld­ arn ir vor ið 2006 til að opna augu manna fyr ir þessu, en þó ekki meira en svo að síð an hef ur ó sköp lít ið gerst. Lík lega er það réttasta lýs­ ing in á þessu við bragða leysi sem Bjarni Þor steins son slökkvi liðs­ stjóri í Borg ar byggð við hafði á mál þingi um gróð ur elda sem hald­ ið var í Hjálma kletti sl. fimmtu­ dag. Bjarni sagði menn enn þá spó­ landi í sama far inu, einu úr bæt urn­ ar sem orð ið hefðu vegna reynsl­ unn ar af Mýra eld um væru 200 lítra slökkvi poki sem keypt ur hafði ver­ ið fyr ir þyrlu Land helg is gæsl unn­ ar. Bjarni var reynd ar sjálf ur upp­ hafs mað ur að mál þing inu, en hann kom þeirri upp á stungu á fram færi við Hall dór Hall dórs son for mann stjórn ar Sam bands ís lenskra sveit­ ar fé laga sem stóð fyr ir mál þing inu í sam vinnu við Mann virkja stofn un. Um eitt hund rað manns var mætt á mál þing ið og komu fund ar gest­ ir víða að, svo sem aust an af Fljóts­ dals hér aði og vest an af fjörð um. Fag að il ar, svo sem for svars menn slökkvi liða voru fjöl menn ir í þess­ um hópi, en hins veg ar var sveit ar­ stjórn ar manna sakn að, þeir hefðu mátt vera fleiri á mál þing inu, enda eru sveita stjórn ir í leið andi hlut­ verki í bar átt unni gegn gróð ur eld­ um. Brýnt skref í þeim mál um eru við brags­ og að gerða á ætl an ir sem sveita stjórn ir og al manna varna­ nefnd ir sveit ar fé laga vinna í sam­ vinnu við al manna varna deild Rík is­ lög reglu stjóra. Fimmt án fyr ir lest ar voru haldn ir á mál þing inu, en því stýrði Páll S. Brynjars son sveit ar­ stjóri Borg ar byggð ar. Fyr ir lestr­ arn ir eru að gengi leg ir inni á vefn­ um www.samband.is Tif andi tíma sprengja Rauði þráð ur inn í máli frum mæl­ enda, þar á með al Bjarna Karls son­ ar for stjóra Mann virkja stofn un ar, var að marg ir sam verk andi þætt ir seinni árin, svo sem breytt veð ur far, gróð ur far, breyt ing ar í bú skap ar­ hátt um og lands notk un, hefðu haft þau á hrif að gróð ur eld ar væru orð in stór kost leg vá. Að vör un ar bjöll urn ar hefðu klingt ræki lega síð ustu árin, eins og tif andi tíma sprengja. Bjarni Þor steins son slökkvi liðs stjóri sagði það ekki spurn ingu hvort held ur hvenær stór kost legt slys og ham far­ ir yrðu vegna gróð ur elda á Ís landi. Bjarni sagði mikla reynslu hægt að draga af Mýra eld um, en hún hefði samt ekki orð ið sú op in bera hvatn­ ing sem til efni hefði ver ið til. Bjarni sagði fulla á stæðu til að Ís lend ing­ ar kynntu sér reynslu ann arra þjóða gagn vart gróð ur eld um og yrði sér úti um þann bún að sem þar hef­ ur reynst best ur. Allt kost aði þetta pen inga og finna yrði tekju stofn til að standa und ir því. Bjarni ræddi um nauð syn þess að kveða skýrt um það í skipu lagi sveit ar fé laga, að bruna hólf væru í skóg rækt ar­, frí stunda­ og sum ar bú staða svæð­ um, með vatns ból um og vatns töku­ svæð um. Þá væri líka mjög mik il­ vægt að um þessi svæði lægju veg ir með lág marks burð ar þoli. Víða væri það vanda mál, að slík ir veg ir væru byggð ir á mokstri upp úr skurð um þar sem mold væri stráð í hjólfar ið og burð ur inn því eng inn. Yrði skil greint sem nátt úru vá Með al frum mæl enda á fund in um var Hulda Guð munds dótt ir land­ eig andi og skóg ar eig andi á Fitj um í Skorra dal. Segja má að Hulda sé frum herji í hópi skóg ar bænda hér á landi í bar átt unni gegn gróð ur­ eld um og hún hef ur þar not ið lið­ sinn is Guð mund ar Hall gríms son­ ar á Hvann eyri, sem hef ur hann að og smíð að slökkvi bún að til að beita gegn gróð ur eld um í af mörk uð­ um hólf um. Hulda og Guð mund­ ur hafa kom ið upp einni slíkri línu á Fitj um, en Hulda á form ar að bæta við þrem ur slík um til við bót ar. Það er bar átta Huldu sem hef ur skil að því að nú er að verða til bú in fyrsta við bragðs á ætl un vegna gróð ur elda á Ís landi. Hún er fyr ir Skorra dals­ hrepp og hef ur ver ið unn in í sam­ vinnu við Al manna varn ir. Hulda lagði fram sam þykkt ir á mál þing inu sem á kveð ið var að senda til Sam bands sveit ar fé laga. Í þeim er skor að á Al þingi að beita sér fyr ir end ur skoð un laga nr. 55/1992 um Við laga trygg ingu Ís lands, þess efn is að gróð ur eld ar verði hluti af þeim nátt úru ham för um sem tryggt er gegn, enda liggi fyr ir við bragðs­ á ætl un fyr ir við kom andi svæði og við ur kennd um for vörn um beitt. „Það er mik il vægt að ná gróð ur­ eld um úr því skipu lags­ og trygg­ inga lega tóma rúmi sem þeir nú eru í. Þeg ar kem ur að allri á ætl ana gerð um land not og land nýt ingu er mik­ il vægt að skýr laga leg ur hvati sé til þess að hættu mat sé fram kvæmt og for vörn um gróð ur elda sinnt. Það er því gríð ar lega mik il vægt að fá gróð ur elda sam þykkta sem nátt­ úru vá," seg ir í þess ari á skor un til Al þing is. Lífs hætta Hulda tal aði á mál þing inu sem land eig andi, skóg ar bóndi og sveit­ ar stjórn ar mað ur. Hún seg ir að það sé nauð syn legt fyr ir menn að vakna og vitn aði þar í orð Bjarna Þor­ steins son ar slökkvi liðs stjóra að þeir væru marg ir strúts rass arn ir sem styngju hausn um í sand inn gagn­ vart þess um mál um. Hulda sagði að mik il vinna væri framund an og all ir yrðu að taka hönd um sam an í for­ vörn um og gerð við bragðs á ætl ana gegn skóg ar eld um. Land eig end ur og skóg ar bænd ur yrðu að upp fylla ýmis skil yrði sem þeir hefðu ver­ ið marg ir sein ir til fram að þessu, breyta þyrfti skipu lags lög um svo unnt yrði að vinna til hins ýtrasta að mála flokkn um. Hulda sagði á stand ið fyr ir löngu orð ið gjör sam­ lega ó við un andi, stór kost leg hætta á mann skaða þar sem m.a. sum ar­ húsa byggð á Ís landi teldi um ell­ efu þús und hús mörg í skóg lendi og gróð ur sæl um svæð um. Skóg ar­ og land eig end ur gætu ekki feng­ ið trygg ing ar hjá trygg inga fé lög um né við laga trygg ingu og gætu þess vegna misst allt sitt á einni nóttu. Gróð ur eld ar og flóð í Evr ópu Víð ir Reyn is son hjá Al manna vörn­ um rík is ins sagði að víða í Evr ópu væru gróð ur­ og skóg ar eld ar skil­ greind ir sem nátt úru vá og því al­ manna varna mál, en ekki alls stað­ ar. Víð ir sagði að alls stað ar væru þeir skil greind ir sem ham far ir og í mörg um lönd um væru skóg ar eld­ ar stærstu mál in sem al manna varn­ ir feng ust við, al geng ari en flóð. Víð ir hvatti til að gerða og að fólk setti sér raun hæf mark mið í þess­ um mál um. Í á hættu skoð un sem Al manna varna deild rík is lög reglu­ stjóra lét fram kvæma í öll um 15 lög reglu um dæm um lands ins, kom í ljós að gróð ur eld ar voru efst á blaði í fjór um þeirra og næstefst í öðr um fjór um. Á mál þing inu var all mik­ ið rætt um ham fara­ og for varna­ sjóð sem starfs hóp ur um ham far ir og nátt úru vá lagði til að yrði stofn­ að ur. Í til lög um þar um er gert ráð fyr ir að þessi sjóð ur bæti það tjón sem ekki fell ur und ir við laga trygg­ ingu og veiti fé til for varna. Hóp­ ur inn var stofn að ur af for sæt is ráðu­ neyt inu og skil aði skýrslu í lok síð­ asta árs. Í lok mál þings ins fór Hall dór Hall dórs son for mað ur Sam bands sveit ar fé laga yfir helstu á herslu­ punkta sem fram hefðu kom ið á mál þing inu. Þau væru m.a. skýr­ ari á kvæði í skipu lags lög in vegna bruna hólfa og fleira tengt bruna­ vörn um, sem og að huga að lagaum hverf inu. Mynd un að gerð­ ar hóps með öll um fag að il um, sem tæku til hend inni og ynnu eins og Bjarni Þor steins son slökkvi liðs­ stjóri Borg ar byggð ar hefði orð að það og lagt til. þá Úr bóta leit að á mál þingi gegn þeirri miklu vá sem gróð ur eld ar eru Vatns pok an um í þyrlu var beitt á gróð ur eldana í landi Rauð kolls staða sl. sum ar. Ljósm. hlh. Barist við eld í þétt um skógi við sum ar húsa hverfi í Borg ar hreppi í júní á síð asta ári. Ljósm. mm. Svip mynd frá Mýra eld um 2006. Ljósm. mm Bjarni Þor steins son slökkvi liðs stjóri. Ljósm. mm. Eld ur í jarð vegi við Borg ar nes.Elds voð ar í ná grenni sum ar bú staða hafa í seinni tíð ver ið nokkr ir á sumri hér á Vest ur landi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.