Skessuhorn


Skessuhorn - 11.12.2013, Qupperneq 14

Skessuhorn - 11.12.2013, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Fyrsti sunnudagur í aðventu var haldinn hátíðlegur í Grundar- firði. Dagurinn hófst á guðsþjón- ustu í Grundarfjarðarkirkju. Kven- félagið Gleym mér ei hélt sinn ár- lega jólamarkað og fjölskyldudag í Samkomuhúsinu. Þar var einn- ig tilkynnt um íþróttamann ársins 2013. Í ár voru fjórir íþróttamenn tilnefndir: Aldís Ásgeirsdóttir fyrir blak, Hermann Geir Þórsson fyrir golf, Ragnar Smári Guðmundsson fyrir fótbolta og Unnsteinn Guð- mundsson fyrir skotfimi. Ragnar Smári Guðmundsson hlaut titilinn íþróttamaður ársins 2013. Klukkan 16:00 var boðið til veislu í Fellaskjóli, en dvalarheimil- ið fagnaði 25 ára afmæli 1. desemb- er. Það var margt um manninn og hátt í 200 manns komu til að hlýða á hátíðardagskrá og gæða sér á veit- ingum. Samkvæmt hefðinni var tendr- að á jólatrénu kl. 18:00. Skógrækt- arfélag Eyrarsveitar gefur tréð en það er tekið úr skógarreit ofan við bæinn. Bæjarbúar létu rigningu og rok ekki á sig fá og voru fjölmarg- ir mættir til að syngja og ganga í kringum jólatréð undir forsöng kirkjukórs Grundarfjarðarkirkju. Dagurinn var svo kórónaður með algjörlega frábærum tónleik- um Stórsveitar Snæfellsness. Flutt var glæsileg dagskrá þar sem karla- kórinn Kári kom fram ásamt fjölda einsöngvara. Umgjörð tónleikanna var hin glæsilegasta og gestir á einu máli um að þarna hefði stórkost- legur menningarviðburður átt sér stað. Við höldum með gott veganesti inn í aðventuna sem er anna tími hjá mörgum. Við skulum muna að jólin eru tími ljóss og friðar, gleði og samveru. Njótum að- ventunnar með kærleika og þakk- læti í huga. Alda Hlín Karlsdóttir Menningar- og markaðsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar Ljósin voru tendruð á jólatrénu við Akratorg á Akranesi sl. laugar- dag og safnaðist fjöldi fólks á torg- ið af því tilefni. Dagskráin var með nokkuð hefðbundnu móti. Í upp- hafi spilaði Skólahljómsveit Akra- ness nokkur jólalög undir stjórn Halldórs Sighvatssonar. Meðlim- ir í Litlu Lúðró komu þá fram með Skólahljómsveitinni undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur og Rythmastelpurnar úr Brekkubæj- arskóla fluttu frumsamið atriði sem Dætur Grýlu. Bræðurnir Mar- inó Ísak og Aron Elvar Dagssynir tendruðu jólaljósin og Regína Ás- valdsdóttir bæjarstjóri flutti ávarp. Jólasveinarnir komu að vanda í heimsókn og voru sérlega hressir og skemmtilegir. Hljómsveit þeirra söng og spilaði fjölmörg jólalög við mikinn fögnuð yngstu kynslóðar- innar. Veðurspáin leit ekki vel út fyr- ir laugardaginn og voru starfs- menn Akraneskaupstaðara tilbúnir að færa dagskrána inn í hús ef hún gengi eftir. Þess þurfti þó ekki því veður var með allra besta móti á meðan hátíðin stóð yfir en logn var og fremur milt í veðri. Fólk gat ylj- að sér á heitu kakói og piparkökum sem félagar úr Skátafélagi Akraness veittu í boði Akraneskaupstaðar. grþ/ Ljósm. Kolla Ingvars. Mikið var um dýrðir í hjarta Stykk- ishólmsbæjar á laugardaginn. Þá opnaði Ingibjörg H. Ágústsdóttir nýja vinnustofu sína í gamla versl- unarhúsnæði Tang & Riis við Að- algötu 1 í Stykkishólmi og á sama tíma var ljósmyndasýning Önnu Sigríðar Melsteð opnuð í kjall- ara hússins. Sýning Önnu Sigríðar nefnist Smáræði og er um að ræða hennar fyrstu sýningu. Sjálf hefur hún fengist við ljósmyndun í mörg ár og einnig unnið sjálfstætt á vett- vangi margmiðlunar. Myndefni sýningarinnar er frá síðustu fjór- um árum og bera mjög keim af því sem ber fyrir sjónir á Snæfellsnesi og á Breiðafirði. Sýningin stendur yfir fram til 30. desember og er hún opin frá miðvikudögum til sunnu- daga frá kl. 13-17. Nánari upplýs- ingar má opnunartíma má finna á heimasíðu Ingibjargar, www.bibi.is. hlh Síðastliðinn mánudag var hinn svo- kallaði Malaví markaður haldinn í Grundaskóla á Akranesi. Þar var hægt að versla ýmsar vörur sem nemendur skólans hafa unnið undir leiðsögn kennara síðastliðnar vikur. Fjölmargir litu við í Grundaskóla og styrktu málefnið. Vörurnar á mark- aðnum seldust vel og var lítið eftir þegar markaðinum lauk. Öll innkoma af markaðnum renn- ur óskipt í söfnun fyrir hjálparstarf Rauða krossins í Malaví. Framlög frá Grundaskóla hafa fram til þessa farið í að styrkja fátækustu börn- in í Chiradzulu og Mwanza. Mörg þeirra eru munaðarlaus vegna al- næmis og hafa þau verið styrkt til náms og lagt til umönnunar þeirra. Skólagjöld þeirra eru greidd, skóla- búningar og skólavörur keyptar auk þess sem þau fá félagslegan stuðning frá sjálfboðaliðum Rauða krossins í þorpunum. Eins hefur verið hald- ið úti nokkurs konar leikskólum þar sem yngstu börnin koma yfir dag- inn til að foreldrar eða forráðamenn þeirra komist til vinnu. Grundaskóli hefur styrkt börn í Malaví með þess- um hætti frá árinu 2007. Nemend- ur og starfsmenn Grundaskóla hafa styrkt 1400 börn til náms í Malaví en alls hafa safnast 1.464.180 krón- ur fram til þessa og er ekki innifalið í þeirri fjárhæð það sem safnast hef- ur á þessu ári. grþ Fyrsti í aðventu í Grundarfirði Frá tónleikum Stórsveitarinnar. Ragnar Smári Guðmundsson knattspyrnumaður var kjörinn íþróttamaður Grundarfjarðar árið 2013. Ljósm. tfk. Jólaljósin tendruð á Akratorgi Drengirnir sem kveiktu ljósin á trénu þetta árið, Marinó Ísak og Aron Elvar Dags- synir, ásamt Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra. Dætur Grýlu fluttu frumsamið atriði. Fjöldi fólks safnaðist saman á torginu á aðventuhátíðinni. Löng röð myndaðist þegar nemendur í unglingadeildinni gáfu yngri nemendum andlitsmálun í tilefni dagsins. Safnað til styrktar börnum í Malaví Eins og sjá má var um að ræða fjölbreytta listmuni sem margir koma sér vel fyrir jólin. Unnið var kappsamlega að jólakortagerð í Grundaskóla undanfarið og var afraksturinn seldur á markaðnum. Anna Sigríður Melsteð og Ingibjörg H. Ágústsdóttir við opnunina á laugardaginn. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Smáræði og vinnustofuopnun í Stykkishólmi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.