Gaflari - 09.05.2014, Side 8
8 - gafl ari.is
Auglýsingasími Gaflara
544 2100
auglysingar@gaflari.is
TILVERAN
Menntun? BA í sagnfræði.
Starf? Bókaútgefandi.
Hvaða bók er á náttborðinu? Maður
að nafni Ove og Verjandi Jakobs
Eftirlætis kvikmyndin? Engin ein en
ég hef t.d. mjög gaman að myndum
Tarantino og Scorsese.
Play-listinn í ræktinni? Stunda ekki
ræktina en þegar ég hleyp hlusta ég á
AC/DC.
Fallegasti staðurinn í Hafnarfirði?
Akurgerði.
Eftirlætis maturinn? Lamb er alltaf
gott og sama má segja um vel grillaða
nautasteik.
Eftirlætis húsverkið? Þvottur er
eitthvað sem ég ræð auðveldlega við.
Er líka liðtækur á gufustraujárninu.
Ertu í einhverskonar félagi eða fé-
lagsskap? Já, nokkrum.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Lestur góðra bóka, útivera og göngur,
kvikmyndir og fótbolti.
Hvað gefur lífinu gildi? Fjölskyldan,
vinirnir, góð heilsa, gleði og jákvæðni.
Hvað var það sem heillaði þig við
Rósu? Rauða hárið.
KÍKT Í KAFFI Gaflarinn hefur undanfarið í kíkt í kaffi til betri helminga
oddvita þeirra flokka sem bjóða fram í Hafnarfirði. Nú er röðin komin að
Jónasi Sigurgeirssyni en hann og Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, hafa verið samstíga í lífsins ólgusjó undanfarna áratugi.
Rauða hárið heillaði
Hollráð Steinars
Maísólin skín skært þessa dag-
ana. Margir nýttu sér þjónustu
bæjarins í vikunni til að fjar-
lægja garðaúrgang en garð-
verkum lýkur aldrei. Steinar
hjá Skógræktinni heldur áfram
að gefa lesendum góð ráð fyrir
garðinn.
Áburðargjöf
Allur gróður þarf næringu sér
til vaxtar og viðhalds. Tilvalið
er að bera tilbúið áburðar-
kyrni, t.d. blákorn, á garðinn
núna. Dreifið því vel. Berið á
grasflatir, trjá- og runnabeð
ásamt beðum með fjölærum
jurtum. Betra er að bera lítið á
en gera það oftar yfir sumarið
heldur en að bera mikið á í eitt
sinn. Áburðurinn leysist smátt
og smátt upp með regnvatni.
Ef ekki rignir næstu daga eft-
ir áburðargjöf borgar sig að
vökva. Sjá nánar á gaflari.is
Í spilaranum
Hvað er í spilaranum hjá Arnari
Gíslasyni?
Lára Rúnarsdóttir
skoraði á eiginmann-
inn Arnar Gíslason.
Arnar er á fullu með
Pollapönkurum í
Eurovision-keppninni sem fram fer
í Kaupmannahöfn. Arnar er himin-
lifandi yfir árangri pönkaranna en
jafnframt spenntur fyrir úrslita-
kvöldinu. Hann segir þó aðalatriðið
að hafa gaman af því að vera með
og njóta upplifunarinnar.
„Ég er að hlusta á
Íkorna, alveg stórkost-
lega plötu eftir Stefán
Örn Gunnlaugsson.
Þetta er alveg heimsins
besta músík. Svo er ég líka að hlusta á
Bon Iver og hef gert síðan síðasta plata
kom út. Mig langar til að skora á Íkorn-
ann sjálfan, Stefán
Örn. Hann er öflugur
tónlistarmaður og
að sjálfsögðu Hafn-
firðingur .“
Hvernig kynntust þið? Við kynnt-
umst á veitingastaðnum Horninu.
Komum þangað hvort í sínu lagi með
vinum okkar fyrir 24 árum og höfum
verið saman síðan.
Helsti kostur Rósu? Hún er skynsöm,
góðgjörn og traust.
Helsti galli Rósu? Vill stundum að
hlutirnir gerist í gær.
Deilið þið sömu stjórnmálaskoðun?
Já, að mestu leyti.
Hvernig hljómar síðasta sms-ið
sem þú fékkst frá Rósu? „Geturðu
keypt ýsu og spínat á leiðinni heim?“
GAFLARI MÆLIR MEÐ...
Bústi til að
byrja daginn á,
sem endist al-
veg fram að há-
degi í maganum.
Setjið saman í blandara: 3 dl létt
ab-mjólk, ½ banana, 1 ½ dl frosin
bláber og 1 ½ tsk chia-fræ – verði
ykkur að góðu.
Samverustund-
um með þeim
sem eru þér
kærastir. Það er
tilvalið að nota
sumarið til að hitta fjölskyldu og
vini. Koma saman, spjalla, hlæja
og borða góðan mat, grípa í spil
eða fara í útileiki. Já sumarið er
tíminn…