Fjarðarpósturinn - 10.07.2014, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. júlí 2014
Tælenskur
veitingastaður
Hádegistilboð virka daga kl. 11.30-14
Þrír réttir úr borði fyrir einn kr. 1.390,-
Súpa og ka fylgir.
Kvöldtilboð alla daga kl. 17.15-20
Þrír réttir úr borði fyrir einn kr. 1.490,-
Fjölbreyttur matseðill alla daga
grænmetisréttir og matseðill fyrir börn
Taktu með heim eða borðaðu á staðnum
Ban Kúnn
Thai Restaurant
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. 1
40
6
Tjarnarvöllum 15 sími 565 5665
Opið: Mánudag- föstudags kl. 11-21.
Sunnudaga kl. 16-21. Laugardaga kl. 11-03 (eldhús lokar kl. 21) karaoke og bar stemmning til kl. 03.
Gömul friðuð hús skoðuð
í göngu um miðbæinn
Í kvöld kl. 20 leiðir Sigríður
Björk Jónsdóttir byggingar list
fræðingur og fv. bæjarfulltrúi
göngu um miðbæ Hafnarfjarðar
þar sem friðuð hús verða skoðuð.
Í Hafnarfirði eru fjölmörg gömul
og friðuð hús sem mynda
nokkuð heildstæðan byggða
kjarna þar sem sagan er hluti
mannlífsins.
Gefinn verður sérstakur gaum
ur að því hvernig byggingarstílar
frá ólíkum tímum birtast í bygg
ingunum, skreyti þeirra, efnis
notkun og hlutföllum. Gengið
verður um miðbæinn með
áherslu á hús og mannvirki við
Strandgötu og Austurgötu.
Gangan hefst í Hafnarborg.
Sigríður Björk Jónsdóttir er
sagnfræðingur með meistara
gráðu í hönnunar og byggingar
listasögu. Hún hefur rannsakað
og skrifað um byggingarlist og
kenndi auk þess um skeið bygg
ingarlistasögu. Sigríður er fyrr
verandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
og formaður skipulags og bygg
ingarráðs, og hefur verið
varafulltrúi í Húsafriðunarnefnd
frá 2013. Sigríður starfar sem
framkvæmdastjóri Vistbyggðar
ráðs.
Í sumar er boðið upp á kvöld
göngur með leiðsögn um svæðið
umhverfis miðbæ Hafnarfjarðar
alla fimmtudaga kl. 20. Hver
ganga tekur um klukkustund,
þátttaka er ókeypis og allir vel
komnir. Göngurnar eru sam
starfs verkefni skrifstofu menn
ingarmála í Hafnarfirði, Byggða
safnsins og Hafnarborgar og
njóta stuðnings frá Hafnar fjarð
ar höfn.
Hátt í 200 hús eru friðuð í Hafnarfirði, langflest vegna aldurs
húsanna. Örfá hús eru hins vegar friðlýst, Fríkirkjan, Hafnar
fjarðar kirkja, tvö hús Fjörukráarinnar og nú í ár Bæjarbíó.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Viðbótarhæð ekki leyfð
Umsækjandi vísaði í fordæmi
Byggingarfyrirtækið Ástak
ehf. sem byggir fjögurra hæða
fjölbýlishús að Klukkuvöllum
eitt hefur óskað eftir því að fá að
byggja eina hæð ofan á húsið og
fjölga íbúðum úr 12 í 15.
Skipulags og byggingarráð
tók neikvætt í fyrirspurnina þar
sem hún samræmist ekki deili
skipulagi né uppbyggingu svæð
is ins.
Í bréfi umsækjandi er vísað til
skorts á smærri íbúðum, einkum
í Vallarhverfinu en óskað er
einnig eftir lóðarstækkun vegna
fjölgunar bílastæða. Vísar um
sækjandi til þess að á síðustu
árum hafi víða verið leyfð fjölg
un íbúða, m.a. með fjölgun
hæða, s.s. við Kirkjuvelli og
víða.
Margir hafa gagnrýnt eftir
látssemi bæjaryfirvalda sem í
fjölmörgum tilfellum hafa leyft
breytingar á samþykktu deili
skipulagi og fjölgun íbúða í
nýbyggingarhverfum. Slíkar
breytingar hafa áhrif á hverfin,
bílaumferð eykst, bílastæði taka
meiri pláss og áhrifin geta haft
áhrif á áform um skólabyggingar
og fl. Þrátt fyrir að víða hafi
verið leyfð viðbótarhæð á
fjölbýlishúsum á Völlum tók
skipu lags og byggingarráð nei
kvætt í þessa ósk.
Fjölbýlishús í byggingu við Klukkuvelli.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Miðbærinn lifnar við í sólinni
Tilraunaverkefni sýnir þörf á betra almenningsrými
Nýtt almenningsrými sem Menningar og listafélag Hafnarfjarðarbæjar hefur gert með Vinnuskóla
Hafnarfjarðar við Strandgötu.
Það viðraði ekki vel fyrir
„Lifandi laugardag“ í miðbænum
á laugardag þegar ný sk. almenn
ingsrými voru vígð. Á mánu
daginn hins vegar var rjómablíða
og fjölmennt var í miðbænum og
enginn asi á fólki. „Blómastofan“
við gamla verslunarhús Einars
Þorgilssonar á horni Strandgötu
og Lækjargötu var greinilega
vinsæl á meðal gesta í miðbæn
um.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n