Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 34
UMFJÖLLUN O G GREINAR Óánægja sérfræðinganna er áhyggjuefni Aðspurður um hvort lágt svarhlutfall stafi að því að læknarnir telji að slík könnun hafi engin áhrif segir Björn að það sé einkennileg afstaða ef rétt er og erfitt að henda reiður á slíku. „Ef fólk nýtir ekki þetta tækifæri til að lýsa vandamálunum á sannfærandi hátt þá er lítið hægt að gera. Við höfum farið út í ýmsar aðgerðir eftir niðurstöður síðustu könnunar 2010, meðal annars höfum við styrkt stjórnendur einstakra sviða og hvatt til aukinna sam- skipta og samstarfs, bæði innan sviða og á milli þeirra. Því má ekki gleyma að við sem stjórnum spítalanum horfum á hann í heild og ýmsar breytingar sem verða innan sviða eru ekki beinlínis á okkar könnu." Það vekur einnig athygli að einungis 31% sérfræðilækna treysta sér til að mæla með Landspítala sem góðum vinnustað og hefur fjölgað nokkuð í þeim hópi frá síðustu könnun. „Þetta er sannarlega áhyggjuefni, því sérfræðingarnir eru sá hópur sem ætti að vera fastur í sessi enda búnir að ljúka sérnámi og starfa við sína sérgrein. Svo mikil óánægja í þeirra röðum vekur upp margar spurningar um hvert spítalinn stefnir," segir Þorbjörn. „Við höfum þegar séð að sérfræðingar spítalans hverfa margir til starfa erlendis eða eru í hlutastörfum erlendis. Óánægja þeirra fer vaxandi og þessi könnun staðfestir það." „Óánægja sérfræðinga er líklega að miklu leyti kjaraleg. Þetta er starfsum- hverfiskönnun en ekki kjarakönnun og hafa verður í huga að í flestum tilfellum eru það kjaralegar forsendur sem ráða því hvort fólk ræður sig erlendis. Við getum í rauninni ekki haft áhrif á kjör lækna þar sem það eru stjórnvöld sem ráða því. Launakjör innan spítalans eru í samræmi við stefnu stjórnvalda í þeim efnum," segir Björn. Aðspurðir um hvað þeir telji að megi verða til þess að snúa þessari óheillaþróun við, segir Þorbjörn það augljóst að ekki verði brugðist við sívaxandi álagi á lækna spítalans með öðrum hætti en að fjölga þeim. „Sérfræðingar spítalans eru of fáir og meðalaldur þeirra fer hækkandi. Það staðfestir það sem vitað er, að nauðsynleg endurnýjun á sér einfaldlega ekki stað. Þarna þarf að snúa við blaðinu. Síðan þarf algjöran viðsnúning í tækjamálum spítal- ans og almennri starfsaðstöðu lækna svo þeir hafi löngun og áhuga á að starfa þar að loknu sérnámi. Spítalinn verður að vera samkeppnisfær á þessu sviði." Björn kveðst margoft hafa sagt á undanförnum misserum að ekki sé hægt að kreista meira útúr spítalunum og læknum hans en þegar er. „Við verðum að fá andrými, hvernig sem það gerist. Það þarf að upplýsa almenning og stjórn- málamennina um hvernig þetta gengur fyrir sig og hversu langt er hægt að ganga áður en eitthvað lætur undan. Fyrir sam- þykkt síðustu fjárlaga sagði ég að komið væri að þeim punkti að ekki yrði þrengt meira að starfseminni án þess að eitthvað léti undan. Við höfum lagt niður starfsemi á þremur stöðum og sameinað á aðra staði. Ef krafist er meiri niðurskurðar verðum við að leggja af meiri starfsemi. Eg hef verið mjög skýr að hér væri ekki meira að hafa. Það er pólitísk ákvörðun ef ganga á nær spítalanum en þegar hefur verið gert. Fjárlög næsta árs eru þau fyrstu eftir hrunið þar sem ekki er uppi krafa um aukið aðhald í rekstrinum. Með því gefst vonandi tækifæri til að styrkja innviðina." Breytingar á vísinda-, mennta- og nýsköpunarsviði Ómar bætir því við að viðbrögð stjórnar spítalans séu jafnan þau að ekkert megi kosta neina peninga. „Við höfum lagt ýmislegt til um breytingar á starfsaðlögun almennra lækna og verkferla sem ekki ætti að kosta mikla peninga. Viðbrögðin eru alltaf þau sömu að ef lagfæringar eða breytingar kosta peninga þá er ekki hægt að verða við því. Við spyrjum á móti hvort ekki kosti meiri peninga á endanum að gera ekki neitt." En stendur til að draga úr vinnuálagi almennra lækna og sérfræðinga með því að ráða fleiri? Björn segir einfaldlega að stutta svarið við þeirri spurningu sé nei. „Jafnvel þó við vildum gera það þá er framboðið ekki til staðar og við þyrftum einnig að fá aukin fjárframlög til að geta ráðið fleiri. Við getum ekki bætt við læknum með núverandi fjármuni. Við höfum sagt frá því löngu fyrir hrun að styrkja þurfi mönnun innan spítalans þar sem vinnutímatilskipun EES kallar á meiri mannafla. Við höfum ekki getað mætt því eins vel og við viljum. Það má telja varnar- sigur að við höfum getað haldið því sem fyrir er." Sá orðrómur hefur verið á kreiki innan spítalans að til standi að leggja niður vís- inda-, mennta- og nýsköpunarsvið. „Það verður ekki lagt niður en það er fyrirhuguð ákveðin skipulagsbreyting 1. janúar næstkomandi. Þá verða svið sam- einuð en með sömu þjónustu og áður og frá þessu munum við greina betur eftir örfáar vikur. Þetta mun ekki koma niður á þeirri þjónustu sem veitt er." En stendur spítalinn fyllilega undir nafni sem háskólasjúkrahús í ljósi þess niðurskurðar sem orðið hefur? Björn segir að ekki séu sjáanleg merki um neitt annað. „Við höfum getað haldið uppi tals- verðri rannsóknarstarfsemi þó vissulega hafi hún verið minni árið 2011 en 2010. Tækifærin til að kenna kandídötum og unglæknum eru ekki þau sömu og áður en á móti hafa þeir fengið fleiri tækifæri til að stunda rannsóknir á launum. Ég bendi á að spítalinn byrjaði í fyrra að veita 10 styrki árlega, að upphæð ein milljón hver, til að styrkja unga vísindamenn. En ég játa fúslega að við höfum haft nokkrar áhyggjur af þessu og erum að leita leiða til að styrkja kennsluþáttinn á spítalanum enn betur og meira en verið hefur. Von- andi mun þess sjá merki strax á næsta ári." Hvað finnst viðmælendum að lesa megi jákvætt úr viðhorfum lækna af þessari könnun? Þeir eru sammála um að allir læknar spítalans telji störf sín mikilvæg. „Ég held að það sé ein aðalástæða þess að almennir læknar fást til starfa á Land- spítala, að þrátt fyrir allt telja þeir sig vera að vinna mikilvæg störf," segir Ómar Sigurvin og Þorbjörn tekur undir þetta fyrir hönd sérfræðilæknanna. 602 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.