Læknablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 3
Forkólfar stjórnar LÍvið
tröppur Akureyrarkirkju
eftirgóðan aðalfund,frá
vinstri: Orri Þór Orrnars-
son, Þorbjörn Jónsson og
Salome A. Arnardóttir.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Aðalfundur Læknafélags íslands
og breytingar á stjórn
Aðalfundur Læknafélags íslands var haldinn á
Akureyri dagana 18. og 19. október og að lokinni
setningu ávarpaði Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra fundarmenn. Hann ræddi meðal
annars samningamál sérfræðilækna og ríkisins,
tækjakost Landspítala, undirbúning að byggingu
nýs sjúkrahúss, stefnumótun og meðferð fjármuna
í velferðarkerfinu og gerð nýrrar heilbrigðisáætl-
unar og svaraði síðan spurningum úr sal. Erindi
ráðherrans í heild er að finna á vef velferðarráðu-
neytisins: velferdarraduneyti.is
Efnt var til málþings um lækna og samfélags-
miðla en ítarlega umfjöllun um það er að finna á
blaðsíðu 604. Margar ályktanir voru samþykktar á
aðalfundinum og er þær að finna á vef Læknafé-
lags Islands, lis.is
Verulegar breytingar urðu á stjórn félagsins og
komu 5 nýir stjórnarmenn inn. Úr stjórn gengu
Valgerður Rúnarsdóttir varaformaður, Anna Kr.
Jóhannsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Ardís
Ármannsdóttir og Steinn Jónsson. I þeirra stað
voru kjörin Orri Þór Ormarsson barnaskurð-
læknir, varaformaður, og Salome Ásta Arnardóttir
heimilislæknir, ritari til tveggja ára, og fjórir nýir
meðstjórnendur til eins árs: Björn Gunnarsson
svæfingalæknir, Guðrún Jóhanna Georgsdóttir al-
mennur læknir, Magdalena Ásgeirsdóttir lungna-
læknir og Þórarinn Ingólfsson heimilislæknir. Þor-
björn Jónsson er formaður LÍ, Þórey Steinarsdóttir
verður áfram fulltrúi FAL í stjórn og Magnús Bald-
vinsson er gjaldkeri stjórnar LI.
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaðurog
Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Kristinn Pétursson (1896-1981) var listamaður sem hvarf
af sjónarsviðinu síðustu æviár sín og minningu hans hefur
lítið verið haldið á lofti eftir að hann féll frá. Um þessar
mundir vill þó svo til að verk sem hann vann
að í einrúmi á sjöunda og áttunda áratugnum
eru á sýningu í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði. Kristinn settist að í Hveragerði
árið 1940, líkt og fleiri listamenn á þeim tíma,
og byggði þar hús með vinnustofu. Einnig má
nú sjá nokkur verk eftir hann á sýningu um
Ijóðræna abstraktlist á Kjarvalsstöðum. Ferill
Kristins skiptist í nokkur tímabil eftir áherslum
og eru verk hans yfirleitt á skjön við íslenska
samtímamenn, ef frá eru talin fyrstu starfsárin.
Hann fékkst við landslagsverk og frásagnar-
verk eins og margir aðrir á fjórða og fimmta
áratugnum en þar er margt verulega sérstakt
og persónulegt að finna. Þegar leið á sjötta
áratuginn tók hann að vinna á forsendum sálgreiningar og
túlkaði meðal annars drauma sína og skar sig algjörlega
úr því sem listamenn voru að fást við á (slandi á sama
tíma. Súrrealisminn á sér ekki marga fulltrúa í íslenskri
listasögu. Síðasta tímabilið á ferli Kristins einkenndist af
leit út fyrir myndflötinn og inn i rýmið og gætir þar mikillar
leikgleði og frumleika. Aftur skar Kristinn sig úr, því fáir
íslenskir listamenn fengust á sama tíma við að leysa upp
listhlutinn með eins markvissum hætti með stefnu á inn-
setningar og staðbundin verk. Málverk og önnurtvívíð
verk Kristins eru varðveitt í Listasafni ASÍ
en því miður eru engir skúlptúrar til eða
rýmisverk. Örfáar Ijósmyndir sem til eru
gefa til kynna hvað listamaðurinn var að
fara og óútgefið handrit Kristins að bók um
eigin verk, varðveitt í Þjóðskjalasafni, er
mjög upplýsandi um hugmyndir hans. Hin
fágæta Ijósmynd á forsíðu Læknablaðsins
sýnir skúlptúr sem er að öllum líkindum frá
því um 1970 og þar má sjá tilraunir Kristins
með að teygja málverkaflötinn frá hinni tví-
víðu blekkingu um liti og form á stiga og út
í raunveruleikann. Einlitur, Ijósblár flötur er
lítillega brotinn upp og sveigðurtil. Hann
stendur sjálfstætt á gólfi og afstaða áhorf-
andans og birtan í umhverfinu ræður litbrigðum verksins.
Verkið er í anda framúrstefnulegra einlitra málverka sem
Kristinn vann síðustu æviárin, þá kominn yfir áttrætt. Allt
bendir þetta til þess að hér hafi verið á ferð frumlegur og
sérstakur listamaður sem vert er að kynna sér betur.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 571