Akureyri - 29.03.2012, Blaðsíða 3
4 29. MARS 2012
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum
í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja
líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er
hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökva-
jafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi
nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og
losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og
afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir
álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir
eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum.
Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Minnistöflur
Kreppan bitnar á krabbameinssjúkum
Formaður Krabbameinsfélags Akureyrar stoltur af frumkvöðlastarfi í héraði – mottumars þýðingarmikið átak
Krabbameinsátakið mottumars er
senn á enda runnið þetta árið en
mikið stendur til vegna átaksins í
kvöld, á Akureyri sem og víða annars
staðar. Þorbjörg Ingvadóttir er fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélags
Akureyrar en þar á bæ vinnur fólk
að góðum málum allan ársins hring.
Blaðamaður Akureyri vikublaðs
spurði Þorbjörgu nokkurra spurn-
inga.
Þorbjörg, hverjar eru helstu skyld-
ur Krabbameinsfélags Akureyrar ?
Félagið er áhugamannafélag og
tilgangur þess er í stuttu máli að
styðja í hvívetna baráttuna gegn
krabbameini. Þetta gerum við meðal
annars með því að fræða, en aðalá-
herslan í starfsemi félagsins er þó
að styðja við þá sem greinast með
krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Núna erum við þrjár í hlutastarfi hjá
félaginu, auk mín eru það Jóhanna
Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur
og nýlega bættist Sigrún Jónsdótt-
ir sjúkraþjálfari í hópinn. Við erum
mjög stolt af því að vera fyrsta
Krabbameinsfélagið á Íslandi til að
ráða sjúkraþjálfa til starfa en rann-
sóknir sýna ótvírætt að endurhæfing
fólks sem greinist með krabbamein,
bætir líðan þeirra, dregur úr verkjum
og flýtir bata. Þetta er frumkvöðla-
starf sem við viljum festa í sessi og
gera að sjálfsögðum hluta í meðferð
þeirra sem greinast með krabbamein.
Hversu margir leita til ykkar?
Við höfum lengi skráð fjölda
heimsókna á skrifstofu félagsins og
það er greinilegt að ásókn fer vax-
andi í það sem kalla mætti almenn-
an stuðning og ráðgjöf. Árið 2009
voru skráð viðtöl 89, en á síðasta
ári (2011) fóru þau í 289 sem er, eins
og sjá má, veruleg aukning. Það má
svo geta þess að konur hafa fram til
þessa verið í meirihluta þeirra sem
til okkar leita, en sem betur fer eru
karlar farnir að líta við hjá okkur í
auknum mæli.
Hverskonar krabbamein eru al-
gengust ?
Samkvæmt tölum frá Krabba-
meinsskránni eru það brjóstakrabba-
mein hjá konum og blöðruhálskirtil-
skrabbamein hjá körlum.
Er það löngu liðin tíð að greining
á illkynja meini ígildi dauðadómi?
Þá má aftur vísa í Krabba-
meinsskrána þar sem fram kemur
að þrátt fyrir stöðuga aukningu
nýgengis krabbameina í heild, þá
fer dánartíðnin lækkandi hjá báð-
um kynjum. Fyrir 50 árum höfðu
70% krabbameinsgreindra látist af
völdum meinsins fimm árum eftir
greiningu, en nú hefur þetta hlutfall
lækkað í um 30% og stöðugt fjölgar
þeim einstaklingum sem hafa feng-
ið krabbameinsgreiningu og eru á
lífi, því nú telur þessi hópur tæplega
12.000 einstaklinga.
Hvað getur félagið gert fyrir börn
og aðra aðstandendur krabbameins-
sjúkra?
Áherslan í starfsemi félagsins hef-
ur verið að þróast í þá átt að veita
alhliða stuðning við fólk sem grein-
ist með krabbamein og fjölskyldur
þeirra, bæði maka og börn, vini
og vinnufélaga. Auk þess að veita
persónulega ráðgjöf þá hefur félagið
staðið fyrir námskeiðum sem yfir 200
einstaklingar hafa sótt á undanförn-
um árum. Einnig hefur félagið að-
stoðað fólk við að greiða fyrir afnot af
íbúðum Krabbameinsfélagsins. Þeir
einstaklingar sem þurfa að fara í
geislameðferð þurfa allir til Reykja-
víkur, þar sem það er eini staðurinn
sem slík meðferð fer fram. Fólk er
ekki lagt inn á sjúkrahús þegar það
fer í þessa meðferð, heldur þarf það
að útvega sér samastað á meðan á
meðferð stendur og það getur ver-
ið allt frá 10 dögum upp í 10 vikur.
Það segir sig sjálft að þegar vikurnar
eru margar þá verða þetta upphæðir
sem sannarlega munar um. Lengi vel
greiddi félagið þetta að fullu fyrir
sína félagsmenn, en frá árinu 2010
urðum við að takmarka greiðslu-
þátttöku okkar við 50%. Þá voru
gistinæturnar 541, en á síðasta ári
er þessi tala komin upp í 751.
Duga fjármunir til starfseminn-
ar – hefur kreppan bitnað á krabba-
meinssjúkum?
Kreppan hefur að sjálfsögðu
bitnað á krabbameinssjúkum og má
þá t.d. benda á þá staðreynd að sér-
hæfð heilbrigðisþjónusta hefur verið
dregin saman á svæðum utan höfuð-
borgarinnar sem þýðir að fólk á okkar
svæði þarf í auknum mæli að sækja
meðferð og þjónustu um langan veg.
Þeir fjármunir sem félagið hefur til
ráðstöfunar koma að langmestu leyti
frá okkar félagsmönnum sem búa vítt
og breitt um félagssvæðið sem nær
frá Ólafsfirði í vestri að Stóru Tjörn-
um í austri. Félagsmenn hafa undan-
farin ár greitt 2.500 kr. árgjald sem
kannski virðist ekki mikið en það
stendur samt sem áður undir tæplega
40% af starfseminni. Krabbameins-
félag Íslands greiðir helming launa-
kostnaðar starfsmanna hjá félaginu
og öðrum aðildarfélögum þar sem
reknar eru þjónustuskrifstofur, auk
þess sem við höfum fengið verkefn-
isstyrki frá þeim til að standa straum
af kostnaði vegna námskeiða. Síðan
má ekki gleyma velvilja fyrirtækja
og gjöfum einstaklinga hér á okkar
félagssvæði.
Hvaða ávinning sérðu helstan af
Mottumars?
Ávinningurinn er fyrst og fremst
aukin vitundarvakning meðal al-
mennings, bæði um mikilvægi þess
að vera vakandi gagnvart hugsan-
legum einkennum en líka um þá
þjónustu sem krabbameinsfélögin
veita. Við erum þannig bæði að kynna
starfsemina og leita eftir stuðningi.
Þar, eins og ég nefndi áður, eru félags-
menn okkar mikilvægasti bakhjarl og
þeir sem vilja bætast í þann hóp og
gerast félagsmenn í Krabbameins-
félagi Akureyrar og nágrennis geta
litið við á skrifstofu félagins að Gler-
árgötu 24 á Akureyri, hringt í okkur
eða sent okkur tölvupóst á netfang-
ið okkar: kaon@simnet.is , það eru
engar kvaðir sem fylgja því að vera
félagsmaður en auðvitað tökum við
öllum fagnandi sem vilja leggja eitt-
hvað af mörkum til starfseminnar. a
ÞORBJÖRG INGVADÓTTIR Félagið er áhugamannafélag og tilgangur þess er í stuttu
máli að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Völundur
Opinn fundur í gamla
Húsmæðraskólanum
þriðjudaginn 3. apríl kl 20
Æska, líf og dauði á Gaza
RÆÐUMENN: Anees Mansour frá Gaza
og Þóra Karítas Árnadóttir leikkona
Samtök hernaðarandstæðinga