Akureyri


Akureyri - 29.03.2012, Síða 13

Akureyri - 29.03.2012, Síða 13
14 29. MARS 2012 ÖFGAR GÖFGA Öfgar eru hugtak sem sífellt skýtur upp kollinum. Til að mynda ef eitthvað hefur farið út í öfgar þá er átt við að hófs hafi ekki verið gætt og að gengið hafi verið út fyrir skynsamleg mörk. Eða að eitthvað sé það mesta sem til greina komi og sé gjarnan fjarstæðukennt eða jafnvel óhugsandi. Öfgar eru ýkjur, skortur á skynsemi, fjarstæða og jafnvel örlar á brjálsemi. Svo segir orða- bókin á Snörunni. Undanfarið er oftast talað um öfgafemínista. Hvað í ósköpunum er það? Femínisti er sú manneskja sem veit að jafnrétti er ekki náð og hefur fullan hug á að gera eitthvað í því. Því jafnrétti er ekki náð, það sést á launamuni kynjanna, fjölda kvenna í stjórnunarstöðum, skiptingu heimilisverka, viðhorfi unglingsstúlkna til kyn- lífs með drengjum og svo mætti lengi telja. En hvar eru ýkjurnar og fjarstæðan? Oftast er bent á þær aðferðir sem slíkt “foráttufólk” bregður fyrir sig, t.d. að safna saman niðurlægjandi og ógnvekjandi orðalagi um konur, neytendur vændis osfrv. Sú aðferð að safna gögnum, vinna úr þeim og birta niðurstöður er viður- kennd á sviði rannsókna. Og ég sé ekki betur en að slík samantekt sé ákaflega sanngjörn, og umfram allt, skynsamleg leið til að varpa ljósi á ákveðið ástand. Að vera vakandi fyrir þeim atrið- um í samfélaginu sem koma í veg fyrir jafnrétti er nauðsynlegt. Það krefst þrautsegju og góðs auga fyrir smáatriðum á borð við það þegar að börn eru merkt með litum á fatnaði, fígúrum og myndum, jafnvel strax á fæðingardeildinni - stelpurnar krúttlegar, strákarnir galvaskir. Hve margar konur sitja í stjórnum fyrirtækja. Þöggun mála er varða ofbeldi gegn konum, andlegt og líkamlegt. Eða þegar að áhrif kláms koma fram í daglegu lífi, líkt og þegar að súludans er gerður að líkamsrækt sem janvel þykir heppileg unglingsstúlkum. Það eru litlu atriðin, þau er virðast á einhvern hátt eðlileg og næstum hvers- dagsleg, sem skipta máli. Því í framsetningu hins smáa felast stærstu skilaboðin! Ef þetta eru öfgar, þá merkir orðið öfgafemínisti dugnaðarfemínisti. Þá er átt við manneskju sem fellur ekki verk úr hendi við að gagnrýna samfélagið með það fyrir augum að snúa því til betri vegar. Sú merking orðsins “öfgar” sem kemur fram í orðabókum ætti kannski frekar við þá sem nota það. Því baráttan gegn þeim sem, af einskærri hugsjón og dugnaði, vinna að því að koma auga á og benda á hvað betur mætti fara til að jafnrétti verði náð er ýkt, skortir alla skynsemi, fjarstæð og jafnvel örlar á geðveiki. Það sanna dæmin. Um er að ræða öfgaafturhaldsseggi. Sú útjaskaða gamla tugga, sem gjarnan var not- uð sem rök fyrir því að konur fengju ekki kosn- ingarétt, var að þær væru of tilfinningaríkar og skorti alla hófsemi til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Og enn er verið að nota hana, svo margtuggða að hún er orðin að sósu, að þau, einkum konur, sem eitthvað vilji upp á dekk, sem sætta sig ekki við ójafnrétti, séu vanstilltar, óskynsamar og brjálaðar. Öfgafemínistar eru ótrúlega dug- legt fólk. Fólk sem snýr ekki tánum upp í loft heldur er vakið og sofið yfir ójafnrétti í öllum þeim myndum sem það birtist, kemur auga á það sem öðrum er dulið, mætir andstreymi og lætur ekki deigan síga heldur vinnur að jafnrétti af tilfinningu og ástríðu. Ég get vonandi kallað mig öfgafemínista. Því öfgar göfga. ANDARTAK MEÐ ARNDÍSI OPIÐ HÚS HJÁ MIÐALDRA ROKKURUM „Að stofna rokkhljómsveit er ekki krísa fyrir mið- aldra karlmenn sem fíla ekki Frímúrararegluna eða Oddfellow,“ segir Heiðar Ingi meðlimur í hljómsveitinni Trúboðunum. „Heldur er það ástríða fyrir því að gera það sem okkur finnst skemmtilegast að gera; að spila, semja tónlist og rokka!“ Næstkomandi laugardag, 31. mars, ætla tvær hljómsveitir eins og Heiðar Ingi lýsir að ofan að opna bílskúrinn sinn og leyfa Norð- lendingum að sjá og heyri hvað þeir hafa verið að bauka (með áherslu á k) síðustu misseri. Tónleikarnir verða á Græna Hattinum og hefjast kl. 22:00. Í báðum sveitum er að finna gamla spilafélaga sem leikið hafa í mörgum af helstu rokk og poppsveitum Norðlendinga. Segja má að hér sameinist akureyrsk rokk- og tónlistarsaga í eitt. Má í þessu samhengi nefna Zýkklana, Hún Andar, Exit, Stuðkompaníið, Dægurlagapönk- hljómsveitin Húfu, Útópía, ofl. „En hér er það rokkið sem blívur, þessi lífsins elexír sem fær fólk gleyma stund og stað, aldri og áhyggjum. Og aðeins eitt skiptir máli; að hækka upp í 11,“ segir Heiðar Ingi. MOTTUBOÐ Í MENNINGARHÚS- INU Í KVÖLD Í kvöld klukkan 20 stendur Klúbbur mat- reiðslumeistara á Norðurlandi, í samstarfi við Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, að Mottuboði í menningarhúsinu Hofi. Tilgangur Mottuboðsins er að vekja athygli á krabbameini karla, stuðla að forvörnum og styrkja starf Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Við innganginn verður Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis með kynningu á starfsemi sinni og fræðslu um krabbamein og krabbameinsleit. Guðrún Pálína í Flóru GUÐRÚN PÁLÍNA Í FLÓRU Í kvöld, fimmtudagskvöld 29. mars kl. 20-21 verður Guðrún Pálína í listamannsspjalli í Flóru og allir eru velkomnir. Sýning Guðrúnar Pálínu í Flóru byggir á hugmyndum tengdum hlutverki og stöðu föðursins. Vonast er til að hún varpi fram spurningum til áhorfandans og vangaveltum. Sýningin byggir á ættfræðirann- sóknum en þær eru ein leið til að skilja erfðafræðilega stöðu einstaklingsins. Á sýn- ingunni notar Guðrún Pálína ættfræði föður síns í karllegg og býr til sjónræna fram- setningu andlita. ÞÝSKUR RAFTÓNLISTARMAÐUR Á HATTINUM Í KVÖLD Tónleikahelgin á Græna Hattinum hefst í kvöld fimmtudagskvöld en þá mun þýski raftónlistar- maðurinn Tobias Braun aka Whale v/s Elephant halda tónleika ásamt íslenskum gestum en hann hefur komið fram á Iceland Airwaves og er nú stuttri tónleikaferð á Íslandi þar sem hann kemur fram á völdum stöðum í Reykjavík og á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00. Á föstudagskvöld eru öðlingarnir KK og Magnús Eiríksson með tónleika kl. 22.00. MARGT AÐ GERAST HJÁ LA Sýningar á sjóræningjaleikritinu Gulleyjunni eru enn í fullum gangi hjá Leikfélagi Akureyrar og munu halda áfram næstu vikur. En fleira er á boðstólum. Stórsveitin Hundur í óskilum fer í gegnum Íslandssöguna á hundavaði í tali og tónum og gefst gestum færi á að sjá þá um páskahelgina hjá Leikfélagi Akureyrar. Þá birtist Sigurður Sigurjónsson í nýjum sprenghlægileg- um íslenskum einleik sem nefnist Afinn og er hlýlegt gamanverk með stórt hjarta. Sýnt verður 12.,13.,21. og 22.apríl í Samkomuhúsinu. EITT OG ANNAÐ Sögulegt ágrip um Svanfríði Glæsileg dagskrá verður á Græna Hattinum um páskana. Hún hefst miðvikudaginn 4.apríl með 40 ára afmælistónleikum Svanfríðar. Hljómsveitin Svanfríður var stofn- uð í ársbyrjun 1972 í kjölfar þess að hljómsveitin Náttúra leystist upp eftir að hafa tapað öllum hljóðfærum sín- um í Glaumbæjarbrunanum 4. des- ember 1971. Pétur W. Kristjánsson söngvari hljómsveitarinnar lét það ekki stöðva sig, fékk sér nýtt hljóð- kerfi og bað Birgi Hrafnsson gítar- leikara, fyrrum félaga sinn í Pops, um að taka þátt í stofnun nýrrar hljómsveitar. Birgir var að hætta í hljómsveitinni Ævintýri og tók með sér trommuleikarann Sigurð Karls- son. Fjórði maðurinn var Gunnar Hermannson bassaleikari Tilveru. Platan What‘s Hidden There seldist upp og var lengi ófáanleg nema í sjó- ræningjaútgáfum sem gefnar voru út víða um heim. Árið 2011 gaf þýska fyrirtækið Shadocks Music út vandaða útgáfu af What‘s Hidden There á vínyl í 500 tölusettum eintökum og einnig á geislaplötu. Hefur þessi útgáfa hlotið afar lofsamleg ummæli um allan heim og eiga Svanfríð- ar menn aðdáendur á ólíklegustu stöðum. Svanfríður hætti sumar- ið 1973 þegar Birgir Hrafnsson og Sigurður Karlsson tóku boði Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar um að ganga í hljómsveitina Change. Pétur W. Kristjánsson og Gunnar Her- mannsson stofnuðu stuttu seinna hljómsveitina Pelican. Nú þegar 40 ár eru liðin frá því að hljómsveitin Svanfríður var stofnuð ber svo við að Pétur W. Kristjáns- son hefði orðið 60 ára á þessu ári, en hann lést langt um aldur fram 3. september 2004 aðeins 52 ára gamall. Birgir Hrafnsson, Gunnar Hermannsson, Sigurður Karlsson og Sigurður Rúnar Jónsson, sem léku allir á plötunni What‘s Hidden There, ætla að heiðra minningu Péturs og fagna um leið 40 ára afmæli hljóm- sveitarinnar á tónleikum á Græna Hattinum 4. apríl og í Austurbæ 14. apríl næstkomandi. Þar verða rifjuð upp nokkur þeirra tökulaga sem nutu hvað mestra vinsælda í flutningi Svan- fríðar auk þess sem öll lögin af plöt- unni What‘s Hidden There? verða leikin. a Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Vökvakerfislausnir

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.