Vísbending - 14.10.2010, Síða 3
V í s b e n d i n g • 3 4 . t b l . 2 0 1 0 3
Tafla 2: Íbúafjöldi í stærstu bæjarfélögunum
og fjölgun frá 2008 til 2009
framhald á bls. 4
2008 2009 Br. %
Alls 319.756 317.593 -2.163 -0,7%
Reykjavík 119.848 118.427 -1.421 -1,2%
Kópavogur 29.957 30.314 357 1,3%
Hafnarfjör ur 25.837 25.872 35 0,1%
Akureyri 17.522 17.563 41 0,2%
Reykjanesbær 14.208 14.081 -127 -1,1%
Gar abær 10.358 10.587 229 2,4%
Mosfellsbær 8.469 8.527 58 0,8%
Árborg 7.928 7.810 -118 -1,6%
Akranes 6.630 6.555 -75 -1,3%
Fjar abygg 4.736 4.637 -99 -1,7%
Fljótsdalshéra 3.707 4.406 699 15,1%
Seltjarnarnes 4.410 4.129 -281 -6,3%
Ísafjar arbær 3.968 4.137 169 4,1%
Skagafjör ur 4.077 3.897 -180 -4,4%
Vestmannaeyjar 4.090 3.543 -547 -13,4%
Borgarbygg 3.747 3.465 -282 -7,6%
Nor ur ing 2.998 2.929 -69 -2,3%
Grindavíkurbær 2.849 2.841 -8 -0,3%
Álftanes 2.510 2.524 14 0,6%
Fjallabygg 2.129 2.302 173 7,5%
Hverager i 2.316 2.082 -234 -10,7%
Hornafjör ur 2.110 2.089 -21 -1,0%
Dalvíkurbygg 1.942 1.945 3 0,2%
Ölfus 2.002 1.951 -51 -2,8%
Snæfellsbær 1.717 1.744 27 1,6%
Rangár ing eystra 1.762 1.711 -51 -3,0%
Sandger i 1.750 1.701 -49 -2,9%
Rangár ing ytra 1.610 1.545 -65 -4,3%
Gar ur 1.542 1.520 -22 -1,5%
Húna ing vestra 1.142 1.195 53 4,5%
Stykkishólmur 1.108 1.122 14 1,2%
Vogar 1.215 1.090 -125 -11,3%
Eyjafjar arsveit 1.040 1.030 -10 -1,0%
Grundarfjör ur 921 937 16 1,7%
Vesturbygg 901 968 67 7,2%
Bláskógabygg 986 941 -45 -4,9%
Bolungarvík 962 910 -52 -5,7%
Blönduóssbær 908 879 -29 -3,3%
Heimild: Hagstofa Íslands
Tafla 3: Skuldir stærstu sveitarfélaga á íbúa ári 2009
Heimild: Hagstofa Íslands.
litið á einkunnir undanfarin þrjú ár. Þá
skera tvö bæjarfélög sig úr, nær jöfn í efsta
sæti: Seltjarnarnes og Garðabær. Hvað er
það sem gerir þessi bæjarfélög góð?
Útsvarsprósentan er lægri þar en annars
staðar. Hjá fjölskyldu með 5 milljón króna
árstekjur var útsvarið 46 þúsund krónum
lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík. Þetta
jafngildir um það bil 2 % hærri ráðstöf-
unartekjum. Afkoma er góð og skuldir
sem hlutfall af tekjum eru nálægt 100% í
báðum bæjarfélögunum.
Athygli vekur að höfuðborgin fær 3,9 í
þriggja ára meðaltal og er með falleinkunn
öll árin.
Horfur
Það er erfitt að halda niðri skattprósentu á
meðan sveitarfélögin þurfa að greiða niður
skuldir. Átökin í efnahagslífinu um þessar
mundir koma hart niður á sveitarfélögum
með ýmsum hætti. Atvinnuleysi er sums
staðar mikið. Tekjur sjómanna hafa þó
hækkað og útgerðarbæir njóta góðs af því.
Víðast þýða erfiðleikar í rekstri fyrirtækja
að geta til þess að greiða góð laun versnar.
Fólksflutningar úr bæjarfélögunum, jafn-
vel úr landi, eru líka áhyggjuefni. Þrýst-
ingur á sameiningu bæjarfélaga hlýtur
að aukast. Álftanes leitar logandi ljósi að
einhverju bæjarfélagi sem vill taka við
skuldum þess. Líklegast verður Reykjavík
þrautalengingin.
Ef bæjarfélag verður gjaldþrota, er það
afar alvarlegt og nánast útilokað að láta
það gerast. Íbúarnir varða að gjöra svo
vel að axla skuldirnar með einhverjum
hætti, en auðvitað er það skárri kostur fyr-
ir bankastofnanir að dreifa endurgreiðslu
á langan tíma en að tapa peningunum.
Þjónusta í skuldsettum bæjarfélögum
hlýtur að minnka.
Margir hæðast að hugmyndum borg-
arstjórans í Reykjavík um sameiningu
Reykjavíkur og Kópavogs. Hún er þó
góðra gjalda verð, því að eins og hann
bendir á er þjónustukerfi bæjarfélaganna
nánast tvöfalt og því örugglega hægt að
spara. Íbúar sýndu það í kosningunum í
vor að þeir krefjast þess að bæjarfulltrú-
ar hjakki ekki í sama farinu. Það er þó
spurning hve margir borgarstjórar þyrftu
að vera í sameinuðu sveitarfélagi.
Forsendur
draumasveitarfélagsins
Skattheimtan þarf að vera sem lægst.
Sveitarfélög með útsvarshlutfallið 12,35%
fá 10 og sveitarfélög með hlutfallið
13,03% fá núll. Skalinn er í réttu hlutfalli
þar á milli.
Breytingar á fjölda íbúa þurfa að vera
hóflegar. Fjölgun á bilinu 1,6 til 3,6% gef-
ur 10 og frávik um 1% frá þessum mörk-
um lækka einkunnina um einn heilan.
Afkoma sem hlutfall af tekjum á að
vera sem næst 10%, sem gefur einkunnina
10. Dreginn er frá 1 fyrir hvert prósentu-
stig sem sveitarfélag er fyrir neðan 10%
hlutfall. Dreginn er hálfur frá fyrir hvert
prósentustig yfir 10%.
Hlutfall skulda af tekjum sé sem næst
1,0. Frávik um 0,1 yfir þessu hlutfalli
lækkar einkunnina um 1,0 frá einkunn-
inni 10. Frávik um 1,0 fyrir neðan þetta
hlutfall lækkar hana um 0,5. Ef skuldir
eru mjög litlar getur það bent til þess að
sveitarfélagið haldi að sér höndum við
framkvæmdir.
Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 (sem
gefur 10) þannig að sveitarfélagið hafi góða