Vísbending - 06.05.2011, Page 4
4 V í s b e n d i n g • 1 7 . t b l . 2 0 1 1
Aðrir sálmar
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646.
Net fang: visbending@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök.
Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita
án leyfis út gef anda.
Góður þjónnframhald af bls. 2
Almenningur gerir yfirleitt ekki miklar kröfur til stjórnmálamanna,
en engu að síður ná þeir sjaldnast að
uppfylla væntingar. Klisjur, órökstuddar
fullyrðingar, dylgjur og jafnvel níð um
náungann einkenna málflutning margra
þeirra sem hafa valist til þess að leiða
þjóðina. Það er vinsælt að segja að þjóð-
ir fái þá foringja sem þær eiga skilið, en
vandséð er hvað Íslendingar hafa til saka
unnið.
Fjármálaráðherra hefur að sumu
leyti reynt að taka ábyrga afstöðu eftir
að hann tók við embætti. Hann hafði
í stjórnarandstöðu harðlega gagnrýnt
samstarfið við AGS, en hefur síðan
orðið mikill talsmaður þess og hreyk-
inn sagt frá því, að bent sé á Ísland sem
dæmi um vel heppnaða aðstoð.
Eðlilega leita erlendir fjölmiðlar eftir
umsögn fjármálaráðherra um framtíð-
arsýn fyrir Ísland. Wall Street Journal tal-
aði nýlega við hann. Í frásögn mbl.is kom
fram að ráðherrann telur Ísland ekki
eiga erindi í Evrópusambandið: „Stein-
grímur bendir á sérstöðu Íslands hvað
varðar sjávarútveg og landbúnað, auk
fleiri hluta. Þá segir fjármálaráðherra að
krónan sé betri kostur en evruaðild enda
hafi gjaldmiðillinn „þjónað landinu
vel“. Hann segir að veiking krónunnar
hafi ekki verið sársaukalaus fyrir lands-
menn en þrátt fyrir það hafi hún skapað
góð skilyrði fyrir útflutningsgreinarnar.“
Einmitt svona málflutningur verður
til þess að traust á stjórnmálamönnum
er lítið. Ráðherrann „bendir á sérstöðu
Íslands“ en segir ekkert í hverju hún er
fólgin. Með því að endurtaka klisjuna
nógu oft þarf hún ekki að hafa neitt
innihald lengur. Engin grein fær jafn-
mikið fé innan Evrópusambandsins og
landbúnaður. Enginn stjórnmálamaður
vill segja það, en aðalvandi sjávarútvegs-
ins í Evrópu er að veiðikvótar hafa verið
allt of miklir. En vitlausasta fullyrðingin
er að krónan hafi þjónað landinu vel.
Íslendingar hafa marga fjöruna sopið í
efnahagsmálum og víða hlaupið á sig.
Versti óvinur almennings er engu að síð-
ur krónan. Hundraðkallinn fyrir níutíu
árum er nú innan við fimm aura virði.
Það er armur þjónn. bj
Tafla 1: Skatthlutfall fjáreignatekna miðað
við mismunandi raunvexti og verðbólgu
og 20% fjáreignaskatt
Tafla 2: Skatthlutföll með 20% fjáreigna-
tekjuskatti og 1,5% auðlegðarskatti
Hér er búið að bæta við áhrifum af 1,5% auðlegðarskatti við 20% fjáreignatekjuskatt.
Miðað við raunvexti og verðbólgu eru skatthlutföll fjáreignatekjuskatts núna sem
hér segir:
Mynd 4
Hér er búið að bæta við áhrifum af 1,5% auðlegðarskatti við 20% fjáreignatekju-
skatt.
Mynd 5
Miðað við raunvexti og verðbólgu eru skatthlutföll fjáreignatekjuskatts núna sem
hér segir:
Mynd 4
Hér er búið að bæta við áhrifum af 1,5% auðlegðarskatti við 20% fjáreignatekju-
skatt.
Mynd 5
Fyrir utan skattlagningu, sem hér er
nefnd, koma til ýmsar skerðingar á bót-
um elli- og örorkulífeyrisþega vegna fjár-
eignatekna. Það er utan við efni þessarar
greinar. Það er ekki tilviljun að bankainn-
stæður, sem eru að sjálfsögðu andlag til
skattlagningar, lækki.
Fyrstu skattahækkanirnar tóku gildi í
júlí 2009, einmitt þegar innstæður voru
mestar, en síðan hafa þær stöðugt minnk-
að. Ástandið á óverðtryggðum reikning-
um er mun verra en sem hér kemur fram,
þar sem vexir halda ekki í við verðbólgu.
Markmið skattlagningar er tekju-
öflun. Hvort tveggja hefur gerst: Vextir
hafa lækkað og innstæður hafa minnkað.
Tekjuöflun verður ekki af hækkun skatt-
hlutfalls við slíkar aðstæður. Að auki er
sparnaður ekki nauðsyn líkt og atvinna.
Þegar sparnaði er mætt með eignarnámi
kemur eyðsla í stað sparnaðar, sóun í stað
ábata.
Bankainnstæður eru ekki í eigu auð-
manna. Þær eru varasjóður hins venjulega
manns, ætlaðar til að mæta framtíðarút-
gjöldum og eftir atvikum óvæntum út-
gjöldum einstaklinga í stað þess að þeir
leggist á almannaframfæri eða fari í banka
til lántöku. Það er betri leið til samúðar að
leita eftir láni í banka.
Bankainnstæður eru
varasjóður hins venju-
lega manns, ætlaðar
til að mæta framtíðar-
útgjöldum og eftir
atvikum óvæntum
útgjöldum einstakl-
inga í stað þess að þeir
hinir sömu leggist á
almannaframfæri eða
fari í banka til lántöku.
Miðað við raunvexti og verðbólgu eru skatthlutföll fjáreignatekjuskatts
og auðlegðarskatts núna sem hér segir: