Vísbending - 01.07.2013, Qupperneq 2
2 V Í S B E N D I N G • 2 6 T B L 2 0 1 3
kaupi eingöngu spariskírteini ríkissjóðs
og húsbréf en eðli sínu samkvæmt er þetta
öruggasta fjárfesting sem þeir eiga kost á.
Lífeyris sjóðir verða að eiga kost á innlendri
fjár festingu, sem hefur sambærilega
arðsemi og húsbréf og spariskírteini. Til
þess að svo megi verða, þurfa stjórnendur
hlutafélaga að breyta um stefnu gagnvart
hlutabréfaeigendum. Stjórnendur hluta-
félaga verða að hætta að líta á arð til hluthafa
sem afgangsstærð, sem hægt sé að skammta
eftir geðþótta. Arður og verðhækkanir verða
að vera á einhvern hátt sambærileg við vexti
af spariskírteinum. Vilhjálmur Bjarnason
1994-1999 Kyrr kjör
1994 26. tbl. Ritstjóri Sverrir Geirmundsson
ASÍ hefur sett allt á annan endann í
umræðum um kjaramál með yfirlýsingum
sínum um launaskrið hjá opinberum
starfsmönnum og bankamönnum á tímum
þjóðarsáttar. Forystumenn samtakanna hafa
sem kunnugt er sagt að engar launahækkanir
hafi orðið hjá félagsmönnum þeirra umfram
þau 14,6% sem samið hefur verið um frá
upphafi þjóðarsáttarinnar en aftur á móti
hafi launavísitala, sem Hagstofan reiknar
út skv. lögum í þeim tilgangi að mynda
grunn fyrir lánskjaravísitölu, hækkað um
16,7%. Í framhaldi af þessu ályktar ASÍ að
laun opinberra starfsmanna og bankamanna
hljóti að hafa hækkað um 20,4% en sú
niðurstaða fæst með því að beita einföldum
þríliðureikningi.
1995 27. tbl. Ritstjóri Ásgeir Jónsson
Nú víkur sögunni til íslenskra stjórn-
valda og þeirra aðgerða, sem reyndar hefur
lítið til spurst. Það virðast enn vera hveiti-
brauðsdagar á stjórnarheimilinu og menn
hafa hliðrað sér hjá erfiðum ákvörðunum.
En ef þessi stjórn hefur ekki getu eða þor til
aðgerða nú í upphafi kjörtímabils og með
öruggan þingmeirihluta þá er fokið í flest
skjól.
1996 17. tbl. Ritstjóri Benedikt Jóhannesson
Ef tekið er mið af skuldaaukningu
undan farinna ára þá virðist sem kaupmáttur
þyrfti að hækka um 15 til 20% frá því
sem hann var árið 1994 til þess að sporna
við frekari skuldasöfnun. Nú þegar hefur
kaup mátturinn aukist en ýmislegt bendir
til þess að tekjuaukningunni sé hins vegar
ekki varið til þess að greiða skuldir heldur í
frekari neyslu. Bílakaup og utanlandsferðir
hafa aukist. Því er alls ekki augljóst að vandi
heimila sé að minnka.
1997 29. tbl. Ritstjóri Tómas Örn Kristinsson
Þeir valkostir sem íslensk stjórnvöld
standa frammi fyrir í kjölfar þess að evró
gengið fellt um 6%. Með þeim hætti átti að
auka tekjur útflutningsfyrirtækja í krónum
svo að þau gætu staðið undir kostnaðinum
við framleiðsluna. Gallinn var bara sá að
kostnaðurinn hélt áfram að aukast; ekki
bara launakostnaður og verð á aðföngum
heldur einnig fjármagnskostnaður þar
sem ekkert dró úr eftirspurn eftir lánum.
Gengisfellingarnar urðu af þessum sökum
alls þrjár á árinu 1988.
1990 32. tbl. Ritstjóri Sigurður Jóhannesson
Áður hefur því verið haldið fram í
Vísbendingu að helsta von opinberra
starfsmanna um verulegar kjarabætur væri
að stofnanir fengju meira frelsi í fjármálum.
Þá mundi samkeppni um starfsfólkið koma
af stað launaskriði. Á móti kæmi að með
auknu sjálfstæði stofnana mundi atvinnu-
öryggi starfsmanna væntanlega minnka og
kröfur aukast.
1991 18. tbl. Ritstjóri Sigurður Jóhannesson
En að líkindum gengi það ekki þrauta-
laust að venja menn við fastgengi. Sennilega
munu atvinnurekendur enn um sinn ganga
að því vísu að launahækkunum yrði eytt
með gengislækkun þegar í harðbakkann
slægi. Ef atvinnuleysi og hrun blasir við
er freistingin mikil fyrir stjórnmálamenn,
að lækka gengið. Líklega myndu þeir velja
þann kost ef krónan væri aðeins bundin
ecu með einhliða yfirlýsingu [undanfari
evr unnar nefndist ecu, European Currency
Unit]. En ef full aðild væri fengin að
Evrópska gengiskerfinu væri ekki hægt að
lækka gengi krónunnar nema í samráði við
önnur ríki þess. Þetta myndi án efa auka
ábyrgðartilfinningu Íslendinga í kjara-
samningum og efla trúna á stöðugleika.
1992 47. tbl. Ritstjóri Sigurður Jóhannesson
Fyrirtækjum í sjávarútvegi hefur löng-
um verið innrætt að þau beri ekki fulla
ábyrgð á rekstrinum og með Þróunarsjóði
sjávar útvegsins er ýtt undir það hugarfar.
Sum fyrirtæki í greininni hafa verið vel
rekin, en nú er gert ráð fyrir að þau leggi
sitt af mörkum til þess að borga mistök
hinna. Gjöld á fiskiskip og húseignir renna
til Þróunarsjóðs, en hann kaupir eignir
útgerðar og fiskvinnslu úr rekstri. Ríkis-
valdið er í hlutverki Hróa hattar og tekur
fé frá vel reknum útvegsfyrirtækjum eins
og Útgerðarfélagi Akureyringa og Granda
og færir hinum, sem hafa lagt í rangar
fjárfestingar.
1993 19. tbl. Ritstjóri Sigurður Jóhannesson
Á komandi árum mun ráðstöfunarfé
lífeyris sjóða vaxa hröðum skrefum. Ekki
er hægt að leggja það á lífeyrissjóði, að þeir
[ekki var búið að finna upp nafnið evra]
verður tekin í notkun eru sennilega fremur
fáir. Núverandi fyrirkomulag kemur áfram
til greina. Með því geta íslensk stjórnvöld
gripið inn í ef óvænt atvik verða hérlendis,
óháð þróun í viðskiptalöndum okkar. Þessi
leið er sjálfsagt freistandi því að með henni
er settur varnagli á gengisþróun. Hættan
er sú að ráðandi herrar gætu ákveðið að
nýta þetta tæki til gengisbreytinga þegar
aðrar leiðir væru betri, t.d. gæti breyting
á gengi hugsanlega verið átakaminni
en niðurskurður í ríkisfjármálum. Með
sjálfstæðum seðlabanka má sjá þessa aðferð
við gengisstýringu virka, enda verði sett skýr
markmið um verðbólgu. Inngripin yrðu að
vera háð afar ströngum skilyrðum til að trú
á stöðugleika myntarinnar héldist.
1998 40. tbl. Ritstjóri Tómas Örn Kristinsson
Það er svolítil einföldun, en ekki
eins mikil og menn kynnu að ætla, að
segja að væntingar séu helsti áhrifavaldar
kreppu. Brjálæðisleg bjartsýnisköst valda
ofþenslu og í kjölfarið fylgja svartsýnisköst
sem eru engu betri og magna áhrifin af
samdrættinum mun meira en þyrfti. Flestar
aðrar forsendur efnahagskerfisins eru
óbreyttar, framleiðslugeta iðnfyrirtækja er
sú sama, afkastageta fólksins er óbreytt og
raunverulegir peningar eru til í sama magni
og áður. Það versta sem getur komið fyrir
er að almenningur, minnugur reynslunnar,
hættir að eyða peningunum sínum og fer að
leggja þá fyrir til að eiga varasjóð til að geta
lifað kreppuna af. Og það gerist næstum
alltaf.
1999 23. tbl. Ritstjóri Eyþór Ívar Jónsson
Í hagfræðilíkani fyrir ráðandi fyrirtæki
setur ráðandi fyrirtæki verð jafnt
lágmarksmeðalkostnaði annarra fyrirtækja.
Það getur ekki sett verðið hærra vegna þess
að þá koma ný fyrirtæki inn í greinina
og það þjónar ekki hagsmunum þess að
setja verðið lægra til þess að hrekja önnur
fyrirtæki út af markaðnum. Það getur
skilað hagnaði vegna þess að kostnaður
þess er lægri en samkeppnisfyrirtækjanna.
Ráðandi staða Baugs þýðir hærra vöruverð
fyrir neytendur en það kann þó að vera
einungis skammtímafyrirbrigði þar sem
markaðsyfirráðin fara algerlega eftir fjölda
nýrra fyrirtækja sem koma inn í greinina,
hversu hratt þau geta komist inn í greinina
og hvernig kostnaður þeirra er í samanburði
við ráðandi fyrirtæki.
2000-2003 Kreppa á nýrri öld
2000 7. tbl. Ritstjóri Eyþór Ívar Jónsson
Hvað um Ísland? Hér fást stjórnmála-
menn ekki einu sinni til að ræða kosti og