Vísbending


Vísbending - 14.01.2014, Side 4

Vísbending - 14.01.2014, Side 4
4 V Í S B E N D I N G • 2 . T B L . 2 0 1 4 Aðrir sálmar Að lækka skatta sem engir eru Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Net fang: visbending@heimur.is. Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök. Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. framhald af bls. 1 Katrín Jakobsdóttir spurði forsætis­ráðherra á Alþingi hvaða breytingar ríkisstjórnin ætlaði að gera á skattkerfinu fyrir þá lægstlaunuðu. Hann svaraði: „Það verður ... að ítreka samanburð á þeirri stefnu sem núverandi ríkisstjórn rekur, m.a. í skattamálum, og síðasta ríkisstjórn. Eða hafa kjör þeirra lægstlaunuðu eða millitekjuhópa eða nokkurra versnað frá því að síðasta ríkisstjórn kom með stefnu sína og innleiddi hana? Nei, þvert á móti. Þannig að þegar hv. þingmaður heldur því fram að núverandi ríkisstjórn geri ekki nógu mikið fyrir ákveðna hópa þá gerði síðasta ríkisstjórn það svo sannarlega ekki heldur. Hv. þingmaður spyr: Hvernig er best hægt að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu? Þar greinir okkur sjálfsagt á vegna þess að það er ekki best að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu í gegnum skattkerfið. Áhrifin af slíkum breytingum fyrir þá lægstlaunuðu eru miklu minni en fyrir aðra. Þar verður að koma til raunveruleg kjarabót, raunveruleg launahækkun og hvernig verður hún til? Hún verður til með aukinni verðmætasköpun og með því að innleiða lög sem fela í sér hvata til þess að greiða hærri laun en ekki hindranir eins og við sáum allt of mikið af á síðasta kjörtímabili, hindranir sem stuðla ekki að hærri launagreiðslum, aukinni vinnu eða aukinni verðmætasköpun heldur þvert á móti. Í þessu felst grundvallarstefnumunur á núverandi ríkisstjórn og þeirri síðustu. Við munum sjá það á næstu misserum og árum hvor leiðin er betur til þess fallin að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu. Katrín spurði aftur hvort lækka bæri skatta þeirra skattlægstu og fékk svar: „Ég hélt því einmitt fram, að ef hv. þingmaður væri þeirrar skoðunar að síðasta ríkisstjórn hefði staðið vörð um þá lægstlaunuðu, m..a. hvað varðaði skattkerfið — ... þá hafi ekki orðið nein breyting á skattlagningu þessa hóps hjá nýrri ríkisstjórn. Hv. þingmaður getur ekki haldið því fram að sú skattprósenta sem nú er í gildi sé á einhvern hátt aðför að ákveðnum hópi, vegna þess að þetta er sama prósenta og síðasta ríkisstjórn lagði á sömu hópa.“ bj Mynd 3: Eiginfjárhlutfall fólks 45 ára og eldra. Árin 1997-2012 Mynd 4: Eiginfjárhlutfall eftir aldri árin 1997, 2005, 2010 og 2012 Hjá þessum hópum vegur hrun á hlutafjár markaði þungt og það tap kemur ekki til baka. Því má telja að þessir hópar verði miklu lengur að komast upp í „eðlileg“ hlutföll en hinir yngri. Skuldavandi hópsins er þó mun minni en hinna yngri. Á mynd 4 sést svo hvernig eiginfjár­ hlutfall breytist eftir aldri hjá mismunandi aldurshópum. Þar sést að lítil breyting varð á milli áranna 1997 og 2005 þrátt fyrir marg rómað „góðæri“. Góðærið fólst fyrst og fremst í því að fá meira að láni en áður á móti svikagróða á hlutabréfamarkaði. Lægstur er ferillinn árið 2010, en hefur strax lagast nokkuð árið 2012, þó að hann liggi um 20 prósentustigum lægra en ferlarnir fyrir 2006. Af þessu sést að aðgerðir ríkis­ stjórnarinnar geta ekki læknað þann skaða sem hrunið olli einstaklingum, en öruggt má telja að þær lagi stöðuna í heild. Ekki er þó hægt að segja til um það enn hvort þeir hópar sem verst fóru út úr hruninu muni ná sér á strik aftur. Til þess að kortleggja vandann að fullu þyrfti að bera saman fjölda þeirra sem er í greiðslu vanda hverju sinni. Því má ekki gleyma að eiginfjárvandi felst oft fyrst og fremst í „tölum á blaði“ í þeim skilningi að þeir sem geta borgað af sínum lánum lenda ekki í sérstökum hremmingum, öðrum en þeim að sjá að skuldir eru tíma­ bundið meiri en eignir. Eiginfjárvandinn er sálfræðilegur fremur en hagfræðilegur, en slæmt sálarástand þegnanna getur vissulega haft lamandi áhrif á hagkerfi þjóðarinnar. Heimild: Hagstofa Íslands Heimild: Hagstofa Íslands

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.