Vísbending - 06.10.2014, Side 2
2 V Í S B E N D I N G • 3 8 . T B L . 2 0 1 4
Skuldastaða Reykjanesbæjar, Hafnar-
fjarðar, Kópavogs og Reykjavíkur er
alvarleg og vel yfir 150% af tekjum,
sem er lögboðið hámark. Eftirlitsnefnd
sveitarfélaga nefndi í ársskýrslu sinn
vegna ársins 2012 Reykjanesbæ,
Norðurþing og Breiðdalshrepp sem
sveitarfélög sem væru í sérstakri
umfjöllun.
Sveitarfélög sem skulduðu í lok árs
2011 meira en 150% af tekjum sínum
fengu allt að 10 ár hjá nefndinni til að
ná 150% skuldaviðmiði og því þarf að
gera meiri kröfur í rekstri gagnvart þeim.
Við framsetningu viðmiða er miðað við
lágmarkskröfur og ekki er gert ráð fyrir
nema takmarkaðri fjárfestingu, þar sem
svigrúm til nýrra fjárfestinga/lántöku
hjá þeim sveitarfélögum sem skulda
meira en 150% af tekjum sínum, er mun
þrengra en þeirra sem skulda 150% og
minna. Viðmið fyrir þau sveitarfélög
sem skulda minna en 150% af tekjum
gerir ráð fyrir óbreyttu skuldahlutfalli
þeirra við skoðun á lágmarksviðmiðum,
þ.e.a.s. ef sveitarfélag skuldar 100%
af tekjum sínum eru viðmiðin til þess
fallin að viðhalda 100% skuldahlutfalli.
Framsetning viðmiða fyrir sveitarfélög
sem skulda meira en 150% af tekjum
sínum gerir ráð fyrir niðurgreiðslu skulda
á 10 ára tímabili.
Einkunnagjöf
Vísbending hefur í mörg ár skoðað
fjárhag sveitarfélaga. Mörg undanfarin
ár hefur tímaritið gefið einkunnir eftir
nokkrum þáttum. Slíkt getur auðvitað
ekki veitt fullnægjandi svör vegna allra
þeirra spurninga sem upp koma um
fjárhagslegt bolmagn sveitarfélaganna.
Einkunnagjöfin hefur oft vakið eftirtekt
og stundum hafa sveitarfélög mótmælt
niðurstöðunni því að hún mæli ekki
lífsgæði í sveitarfélögunum. Því er rétt
að undirstrika að einkunnagjöfin mælir
fyrst og fremst fjárhagslegan styrk
sveitarfélaganna.
Í tölunum hér á eftir er miðað
við rekstrartölur úr ársreikningum
sveitarfélaga árið 2013 sem eru að
sjálfsögðu nýjustu tölur sem fyrir liggja.
Upplýsingaveita Sambands íslenskra
sveitarfélaga birtir gögn á Netinu og er
aðalheimild um tölur í þessari grein.
Mjög mikilvægt er að líta á heildarskuldir
sveitarfélaga þar sem meðtaldar eru
skuldir vegna eftirlaunaskuldbindinga
og ábyrgðir vegna einkaframkvæmda svo
að dæmi séu tekin. Einkafjármögnun
framkvæmda naut mikilla vinsælda sumra
stjórnmálamanna, ekki bara vegna þess
að hún sé hagkvæmari en framkvæmdir
hins opinbera heldur ekki síður vegna
þess að hún kom ekki fram í skuldum.
Þetta hefur nú breyst bókhaldslega,
en enn tala stjórnmálamenn þó
um einkaframkvæmdir, nú síðast í
vegamálum.
Hér er alltaf horft á bæjarfélagið í
heild en ekki aðeins sveitarsjóð. Þetta er
eðlilegt vegna þess að mörg sveitarfélög
hafa fært ákveðna þætti út úr sveitarsjóði
og eru því ekki sambærileg við önnur sem
ekki hafa gert sambærilegar breytingar.
Skuldir
Heildarskuldbindingar sveitarfélaganna
í landinu minnkuðu úr 593 milljörðum
króna árið 2012 í um 550 milljarða
árið 2013 sem er raunminnkun um
9%. Hlutfall heildarskulda (með
skuldbindingum) var um 184% af
tekjum á ári hjá sveitarfélögunum í
heild, en var 213% árið áður. Skuldir
sveitarfélaganna minnkuðu meðan
tekjur jukust og staðan batnaði talsvert á
þennan mælikvarða.
Lengi vel hefur mælikvarðinn skuldir
á íbúa verið talinn gefa góða vísbendingu
um fjárhagslega stöðu sveitarfélags.
Í árslok 2013 var hún tæplega 1.700
þúsund krónur á mann, en nam
1,843 milljónum króna árið 2012. Að
raungildi er það minnkun um 10%.
Nettóskuldir, þ.e. skuldir að frádregnum
veltufjármunum voru 476 milljarðar
króna í árslok en var 510 milljarðar
króna árið áður.
Fyrst og fremst er horft á nettóskuldir
á íbúa. Nokkur sveitarfélög eiga
talsverðar peningaeignir og eðlilegt að
tekið sé tillit til þess þegar horft er á
stöðuna.
Skuldugasta sveitarfélagið samkvæmt
þessum mælikvarða (sjá töflu 3) er
Reykjanesbær með 2,5 milljónir í skuld
á íbúa. Skuldirnar hafa hækkað í krónum
talið frá fyrra ári. Í höfuðborginni eru
nettóskuldir um 2,1 milljón á íbúa, en
skuldir Orkuveitunnar eru enn afar háar.
Sandgerði, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað
og Norðurþing eru öll með skuldir upp
á 1,5 til 2,0 milljónir króna á íbúa og
hefur hlutfallið í flestum tilvikum lækkað
nokkuð. Þetta hlutfall segir ekki allt.
Sum sveitarfélög hafa staðið í miklum
framkvæmdum og vænta þess að fá meiri
tekjur til baka en hin.
Einnig má horfa á hlutfall skulda af
tekjum ársins. Hlutfallið sýnir hversu
lengi sveitarfélögin væru að borga skuldir
sínar ef þau þyrftu ekkert að sinna rekstri
eða nýjum framkvæmdum. Hér er
miðað við að hlutfallið sé ekki hærra en
1,0. Eftirlitsnefndin hefur miðað við að
hlutfallið fari ekki yfir 1,5. Hjá mörgum
sveitarfélögum er hlutfallið sem fyrr segir
hærra en 2,0 í árslok 2012 (sjá töflu 3)
sem er mjög alvarlegt veikleikamerki.
Fólksfjöldi
Sveiflur hafa verið í mannfjölda að
undanförnu. Fólki fjölgaði um 0,7%
á árinu 2012 og um 1,2% árið 2013.
Þó voru flutningar frá landinu miklir.
Fækkun ber það með sér að íbúarnir telji
að betra sé að búa annars staðar og getur
verið til vitnis um að ekki sé allt eins og
best verður á kosið í sveitarfélaginu sem
fækkar í.
Það er heppilegt að fólksfjöldi aukist
hóflega. Ef hann eykst of hratt er hætt
við að erfitt verði að veita öllum nýju
íbúunum þjónustu strax. Gatnagerð og
aðrar framkvæmdir vegna nýbygginga
geta líka komið niður á fyrri íbúum.
Tekjur og afkoma
Tekjur sveitarfélaganna á íbúa eru
nokkuð mismunandi. Mestar eru þær
í Fjarðabyggð, 1.131 þúsund krónur á
mann og yfir milljón á mann í Reykjavík,
Snæfellsbæ, Reykjanesbæ, Akureyri,
Húnaþingi vestra og Vesturbyggð.
Tekjurnar eru innan við 750 þúsund
krónur á íbúa í Garði, Vogum, Kópavogi,
Seltjarnarnesi og Hafnarfirði. Það er að
sjálfsögðu ekki markmið í sjálfu sér að
sveitarfélög afli mikilla skatttekna, en
á næstunni er augljóst að sveitarfélög
verða mörg bæði að draga úr þjónustu og
fullnýta skattstofna.
Eðlilegt má telja að afgangur af rekstri
sé nálægt 10%. Allmörg sveitarfélög
voru með milli 10 og 15% af tekjum í
rekstrarafgang.
Útsvarsprósenta var víðast 14,48%.
Ekki er hægt að segja að mikil fjölbreytni
sé í útsvarsprósentunni árið 2013. Lægst
var hún hjá stærri sveitarfélögum13,66%
í Garðabæ og á Seltjarnarnesi.
Draumasveitarfélagið
Í umfjöllun sinni um sveitarfélög hefur
Vísbending útnefnt draumasveitarfélagið,
en það er það sveitarfélag sem er best
statt fjárhagslega samkvæmt nokkrum
mælikvörðum (sjá skilgreiningar í kassa).
Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt
árferði. Aðeins eitt sveitarfélag nær
einkunn yfir 9,0, en það er Seltjarnarnes
með 9,3. Seltjarnarnes er því
draumasveitarfélagið í ár. Garðabær með
8,7. Garðabær var draumasveitarfélagið
framhald af bls.1