Vísbending - 06.10.2014, Side 4
4 V Í S B E N D I N G • 3 8 . T B L . 2 0 1 4
Aðrir sálmar
Skynjun og
raunveruleiki
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Net fang: visbending@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök.
Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita
án leyfis út gef anda.
Fyrir nokkrum árum barst frétt af því að elsti maður í Tókíó væri dáinn.
Árum saman hafði hann gert fjölskyldu
sinni gagn með því að liggja í rúminu og
safna bótum inn á bankareikning sinn.
Enginn taldi það eftir, því að fjölskyldan
annaðist hann og þjóðfélagið þurfti hvorki
að greiða umönnunar- né sjúkrakostnað.
Gamli maðurinn kaus að vera heima
að sögn fjölskyldunnar eins og „lifandi
Búdda“. Ef einhver kom í heimsókn til
hans sögðu ættingjar að hann vildi engan
hitta. Þegar öldungurinn varð 111 ára
töldu háttsettir embættismenn við hæfi
að þeir heimsæktu hann og færðu honum
blóm. Þeim brá þó í brún þegar þeir
komu að rúmin og sáu að afmælisbarnið
var látið. Og ekki bara það. Þá voru 30 ár
síðan það hafði síðast dregið andann.
Það er auðvitað fátítt að menn
nýtist fjölskyldu sinni svona vel löngu
eftir andlátið, en margir hafa gert
valdstjórninni gagn með því einu að vera
til. Sögur fara af einræðisherrum sem
misstu meðvitund og komust aldrei til
hennar aftur en héldu þó bæði embætti
og völdum. Á ofanverðri 18. öld náði
Struensee, líflæknir Danakonungs,
völdum í skamma stund, en kóngurinn
sjálfur hafði misst vitið eða kannski aldrei
haft það.
Völd Struensee og velferðartékkar
múmíunnar í Tókíó eru dæmi um hvað
getur gerst, vegna þess að aðrir halda að
eitthvað sé rétt. Í sjálfu sér báru menn
ekki brigður á það að danski kóngurinn
treysti lækni sínum, en engum datt í
hug að gera neitt í því að æðsti maður
ríkisins væri bilaður. Hann var kóngur
og orð hans voru lög. Flestir þegnar hafa
kannski ekkert vitað um andlegt ástand
konungsins, að minnsta kosti er það ekki
umtalað í íslenskum sögubókum.
Þegar útvarpið færir okkur umsagnir
um mál líðandi stundar segir það okkur oft
að „prófessor“ eða „stjórnmálafræðingur“
segi þetta eða hitt. Í nokkur andartök
höldum við að stóridómur hafi fallið,
þangað til að við heyrum að þetta er bara
gamall flokksgæðingur sem segir það sem
fréttamaðurinn vill heyra. En ef til vill
telur fólk flest að sérfræðingar sem fram
eru leiddir hafi rétt fyrir sér. Skynjunin er
mikilvægari en raunveruleikinn. bj
Tafla 3: Skuldir og tekjur stærstu
sveitarfélaga á íbúa árið 2013
Bæjarfélag
Skuldir Tekjur Skuldir
á mann á mann /Tekjum
Reykjanesbær 2.578 1.066 242%
Fljótsdalshérað 2.212 958 231%
Reykjavík 2.083 1.090 191%
Sandgerði 1.992 912 218%
Fjarðabyggð 1.825 1.131 161%
Norðurþing 1.721 936 184%
Hafnarfjörður 1.451 716 203%
Kópavogur 1.312 709 185%
Borgarbyggð 1.238 854 145%
Vesturbyggð 1.216 1.018 119%
Ísafjarðarbær 1.214 941 129%
Skagafjörður 1.213 921 132%
Stykkishólmur 1.212 840 144%
Akureyri 1.090 1.056 103%
Rangárþing ytra 1.043 809 129%
Mosfellsbær 1.032 790 131%
Hveragerði 993 767 129%
Árborg 953 780 122%
Ölfus 878 864 102%
Akranes 842 758 111%
Snæfellsbær 834 1.072 78%
Garðabær 770 912 84%
Fjallabyggð 674 917 74%
Dalvíkurbyggð 638 884 72%
Vogar 592 699 85%
Bláskógabyggð 574 988 58%
Hornafjörður 452 957 47%
Húnaþing vestra 435 1.054 41%
Þingeyjarsveit 426 874 49%
Vestmannaeyjar 401 996 40%
Rangárþing eystra 341 754 45%
Seltjarnarnes 201 711 28%
Eyjafjarðarsveit 188 758 25%
Sveitarfélagið Garður -27 652 -4%
Grindavíkurbær -146 805 -18%
hlutfall. Dreginn er einn þriðji frá 10,0
fyrir hvert prósentustig yfir 10%.
4) Hlutfall nettóskulda af tekjum sé
sem næst 1,0. Frávik um 0,1 yfir þessu
hlutfalli lækkar einkunnina um 1,0 frá
einkunninni 10. Frávik um 0,1 fyrir
neðan þetta hlutfall lækkar hana um
0,2. Ef skuldir eru mjög litlar getur það
bent til þess að sveitarfélagið haldi að
sér höndum við framkvæmdir. Þetta er
breyting. Áður var miðað við frádrátt
Tölur í þúsundum króna. Heimild: Upplýsingaveita Sambands íslenskra sveitarfélaga
upp á 0,5.
5) Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 (sem
gefur 10) þannig að sveitarfélagið hafi
góða lausafjárstöðu en hafi ekki of mikla
peninga í lélegri ávöxtun. Frávik um 0,1
neðan við hlutfallið gefur 1 í frádrátt.
Frávik um 0,1 fyrir ofan hlutfallið gefur
0,2 í frádrátt. Hlutfall yfir 2,0 gefur
einkunnina 8. Þetta er breyting frá fyrra
ári þegar það hlutfall gaf 5.
Allir þessi þættir gilda jafnt.
framhald af bls. 3