Víkurfréttir - 03.03.2011, Qupperneq 15
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í YFIR ÞRJÁ ÁRATUGI! 15VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 3. MARS 2011
SPORT
BODYBUILDER.IS
er netverslun með fyrsta
flokks fæðubótarefni á góðu
verði auk þess að vera með
ýmsar aðrar vörur tengdar
líkamsrækt.
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð við
Aðalgötu 1 til sölu. Laus strax.
Upplýsingar á Fasteignasölunni Ásberg
í síma 421 1420.
Jón Örvar Arason hlaut Starfsbikar Keflavíkur en margir fleiri fengu við-
urkenningar fyrir góð störf sem afhent-
ar voru á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta-
og ungmennafélags í vikunni.
Helga Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ
talaði um hversu vel reikningar félags-
ins væru lagðir fram og skýrsla stjórnar.
Þá sæmdi hún þá Ólaf Birgi Bjarnason
og Guðsvein Ólaf Gestsson starfsmerki
UMFÍ.
Þórður Magni Kjartansson, gjaldkeri
Keflavíkur, sagði í ræðu sinni að þó félagið
í heild sinni kæmi ekki nema í rúmum
tíu milljón króna tapi eftir árið, þá mætti
lítið útaf bera. Hann sagði eigið fé ekki
mega vera mikið minna til að illa færi.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur kom best
út árið 2010 en hún var með tæpar 2,8
milljónir í rekstrarafgang. Þá kom fim-
leikadeildin verst út eða með rúmar 5
milljóna kr. tap.
Stærsta körfuboltamót landsins, Nettómótið, verður haldið nú um
helgina í Reykjanesbæ. Allur undir-
búningur mótsins er á lokastigi en að
mörgu þarf að huga svo jafn fjölmennt
körfuboltamót gangi eins hnökralaust
og mögulegt er. Mótið er einnig lang-
stærsti einstaki íþróttaviðburðurinn í
Reykjanesbæ ár hvert og er mótið fyrir
drengi og stúlkur 11 ára og yngri.
20 ára afmælismótið í fyrra var gríð-
arlega vel heppnað að sögn mótshald-
ara og reyndist mótið það stærsta frá
upphafi, en rúmlega þúsund keppendur
mættu til leiks. Í ár verður um enn frek-
ari fjölgun að ræða, enda hafa 190 lið
skráð sig til keppni frá 24 félögum sem er
um 25% fjölgun frá fyrra ári. Reikna má
með að leiknir verði hátt í 450 leikir á 13
völlum í fimm íþróttahúsum.
Nettó, Reykjanesbær og KarfaN, sam-
eiginlegt hagsmunafélag barna- og
unglingaráða Körfuknattleiksdeilda
Keflavíkur og Njarðvíkur, hlakka til að
sjá ykkur á Nettómótinu 2011 og bjóða
alla velkomna til Reykjanesbæjar um
helgina. Þar munu allir leggja sig fram
um að öll fjölskyldan eigi stórbrotna
helgi, skemmti sér konunglega og taki
með sér góðar og ógleymanlegar minn-
ingar heim frá mótinu.
Veittar voru viðurkenn-
ingar fyrir árið 2010 og
voru þær eftirfarandi:
Starfsbikar Keflavíkur 2010
Jón Örvar Arason
Starfsmerki UMFÍ
Ólafur Birgir Bjarnason
Guðsveinn Ólafur Gestsson
Bronsmerki Keflavíkur
Ásdís Júlíusdótt-
ir, badmintondeild
Hjördís Baldurs-
dóttir, knattspyrnudeild
Halldóra B. Guðmunds-
dóttir, fimleikadeild
Helga H. Snorra-
dóttir, fimleikadeild
Silfurmerki Keflavíkur
Geir Gunnarsson, skotdeild
Hermann Helgason,
körfuknattleiksdeild
Þorsteinn Magnússon,
knattspyrnudeild
Gullmerki Keflavíkur
Árni Pálsson, skotdeild
Sigurvin Guðfinns-
son, aðalstjórn
Þórður Magni
Kjartansson, aðalstjórn
Silfur-heiðurs-
merki Keflavíkur
Björn Jóhannsson
Hörður Ragnarsson
Jón Ólafur Jónsson
Gull-heiðursmerki
Keflavíkur
Sigurður Steindórsson
Viðurkenningar
Björn Jóhannsson,
Sigmar Björnsson og
Baldvin Sigmarsson
Sjúkraþjálfun Suðurnesja
Nettó-mótið aldrei verið stærra
4 Stærsta körfuboltamót landsins haldið um helgina í Reykjanesbæ
Sundparið Árni Már Árna-son og Erla Dögg Haralds-
dóttir sem stunda nám við
Old Dominion háskólann í
Virginu fylki Bandaríkjanna,
náðu glæsilegum árangri á
meistaramóti CAA sem er
deild innan þeirra fylkis síð-
ustu helgi. Árni var valinn
sundmaður mótsins og telst
það frábær viðurkenning.
Hann vann allar þrjár ein-
staklingsgreinarnar sem hann
tók þátt í, en hann var alveg
við sína bestu tíma í 100 og
200 jarda bringu og í 100
jarda bringusundi náði Árni
10. besta tíma ársins yfir alla
háskólasundmenn landsins
sem er frábær árangur. Einnig
setti Árni mótsmet í 200 jarda
fjórsundi. Erla bætti sig í öll-
um sínum greinum 100 og 200
jarda bringu og 200 jarda fjór-
sundi og setti skólamet í þeim
öllum um leið. Erla fékk tvö
silfur og eitt brons á mótinu.
Bæði náðu þau lágmörkum
til þátttöku á Háskólameist-
aramóti NCAA sem er milli
allra háskóla landsins en þar
mun Erla taka þátt í fyrsta sinn
en Árni hefur einu sinni áður
komist inn.
GlæsileGur áraNGur
hjá erlu DöGG oG árNa
Jón Örvar hlaut Starfsbikar Keflavíkur
Ólafur Birgir Bjarnason og Guðsveinn Ólafur Gestsson fengu
starfsmerki Ungmennafélags Íslands. Jón Örvar Arason fékk Starfsbikar Keflavíkur 2010.