Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 05.05.2011, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagurinn 5. maí 2011VÍKURFRÉTTIR ›› Virkjunardagurinn er á laugardaginn: Virkjunardagurinn er dag-ur allra sem vilja stuðla að öflugu starfi í Virkjun. Vinir í velgengni (sjálfboðaliðar) og Virkjun standa að þessum gleði- degi með öflugum stuðningi frá Kadeco. Fögnum komu sumarsins og tökum þátt í ódýrri skemmtun fyrir alla. Það er opið fyrir alla að koma og heimsækja Virkjun, kynnast starfinu sem þar fer fram og kynnast því hvað virknimið- stöð raunverulega er. Starfsemi Virkjunar er alltaf að aukast og er alltaf að verða öflugara og öflugara í stuðningi sínum við atvinnuleitendur og öryrkja á Suðurnesjum. Núna er tækifæri fyrir alla að koma og með smá framlagi er m.a. hægt að kom- ast á stórtónleika og skemmtun í Andrews leikhúsinu. Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma og fagna Virkjunardeginum. Á Virkjunardaginn verður boð- ið upp á kynningar á starfinu, sýningar, sölubása, örfyrirlestra, töframann og fleira. Á svæðinu verður gos- og snakk-kynning. Einnig verða kaffiveitingar gegn vægu gjaldi. Í lok dagsins verður síðan blásið til stórtónleika í Andrews leik- húsinu þar sem fram komi fjöldi listamanna, bæði aðfluttir sem innfæddir. KK, Mirra Rós, Bjarni Ara, Valdimar og Björgvin o.fl. spila á tónleikunum. Síðan verða einnig Daníel Örn töframaður og Alma Geirdal uppistandari og kynnir. Áætlað er að dagskemmt- un hefjist kl. 12 en tónleikarnir hefjast kl. 16 og standi til kl. 18. Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína 15. janúar 2009 sem virknimiðstöð atvinnuleit- enda á Suðurnesjum. Hlutverk Virkjunar er að auka virkni at- vinnuleitenda og stuðla að því að koma þeim í uppbyggilegan far- veg, svo þeir geti annað hvort farið af stað sjálfir með atvinnusköpun eða komist í starf þegar tækifæri opnast. Starfsemi virkjunar er einnig ætlað að fyrirbyggja félags- lega einangrun og aðrar neikvæð- ar afleiðingar atvinnuleysis, og vera ein allsherjar virknimiðstöð. Virkjun hefur einnig að markmiði að efla hæfni og kunnáttu fólks til nýrra starfa, svo það geti nýtt tækifæri sem það annars hefði ekki skoðað. Flestir sem vinna í Virkjun eru sjálfboðaliðar. Meginmarkmið Virkjunardags- ins er tvenns konar. Annars vegar að auglýsa ofangreinda starfsemi Virkjunar og opna augu almenn- ings og annarra atvinnuleitenda fyrir því hve öflug starfsemi er í Virkjun. Hins vegar að safna fjármunum og styrkjum til þess að tryggja rekstrarumhverfi og starfsemi Virkjunar mannauðs á Reykjanesi, en síðustu misseri hefur borið á samdrætti í styrkj- um sem hefur mikil áhrif á rekst- ur Virkjunar. Öll vinna við undirbúning og á Virkjunardaginn er í höndum sjálfboðaliða, Vina í velgengni eða kostuð af stuðningsaðilum. Tónlistarmenn og hljómsveitir gefa vinnu sína á tónleikunum. Hægt verður að nálgast miða í forsölu í Virkjun, sími 426-5388 og síðan einnig við innganginn hjá Andrews leikhúsinu. Virkjunardagurinn verð-ur haldinn 7. maí 2011 á Ásbrú en dagurinn er hugsaður sem styrktardagur fyrir Virkj- un, miðstöð fyrir atvinnuleit- endur á Suðurnesjum. „Við viljum koma á framfæri að við ætlum að vera með söluborð fyrir almenning sem vill losna við dót úr geymslunni, bílskúrn- um eða hannyrðir eða hvað sem fólki dettur í hug. Borðið er leigt á 5.000 kr. fyrir daginn. Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér borð verði í sambandi við Önnu Margréti í síma 771-2403 á virkum dögum frá 11.00-15.00,“ segir í tilkynningu frá aðstand- endum Virkjunardagsins. Virkjunardagurinn er dagur fyrir alla fjölskylduna Hátíðarhöld vegna 1. maí - í Virkjun á Ásbrú og Andrews leikhúsinu. Aðstaða fyrir sölubása á Virkjunardegi á laugardag Varð undir í samkeppni við fermingarveislur Hátíðardagskrá á alþjóðlegum degi verkafólks fór fram í Stapa í Reykjanesbæ sl. sunnudag í skugga ferminga í Reykjanesbæ, ef svo má að orði komast því oft hefur verið fjölmennara á Stapa á þessum degi. Georg Georgs- son, formaður Rafiðnaðarfélags Suðurnesja setti dagskránna en síðan flutti Hilmar Harðarson, for- maður Félags iðn- og tæknigreina ræðu dagsins. Georg og Hilmar voru báðir harðir í sínum ræðum og voru klárir í verkfallsátök. Flutt var atriði úr revíu Leikfélags Keflavíkur og sönghópurinn Orfeus söng. Kynnir var Guð- brandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. Slökkvilið flugvallarins var með æfingu sl. fimmtudag þar sem notaður var nýr eldfugl. Eldfugl er líkan af flugvél þar sem hægt er að láta elda loga á þrem- ur stöðum, báðum hreyflum og hjólastellinu. Þessi fugl var keypt- ur hingað til Íslands frá Noregi og kostar svona græja um 36 millj- ónir íslenskra króna. Að brunaæfingu lokinni fór hóp- urinn að Bragganum sem er ný að- staða fyrir vaktmenn slökkviliðs- ins en það þurfa alltaf að vera tveir menn úti á velli á vakt. Þarna er geymsla fyrir einn stóran bíl og af- þreyingaraðstaða fyrir starfsmenn. Að lokum var hópnum svo boðið í léttar veitingar í mötuneyti starfs- manna. Hægt er að skoða fleiri myndir á ljósmyndavef Víkurfrétta. VF-myndir: Siggi Jóns Brunaæfing með nýjan eldfugl

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.