Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2011, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 16.06.2011, Blaðsíða 14
14 FIMMTudagurInn 16. júní 2011 • VÍKURFRÉTTIR vf.is Dagskrá 17. júní 2011 í Grindavík 17. júní hátíðarhöld í Grindavík verða að þessu sinni á grassvæðinu á milli Gula hússins, íþróttamiðstöðvar og sundlaugarinnar. Dag- skráin verður fjölbreytt og sniðin fyrir börnin en að vanda ber söngvakeppni barna hæst. Íþróttafólk er hvatt til þess að mæta í hátíðarguðsþjónustu í Grindavíkurkirkju. Dagskrá 17. júní er eftir- farandi: Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni. Kl.10:00 Hátíðarguðsþjónusta í Grindavíkurkirkju. • Sr. Elinborg Gísladóttir þjónar fyrir altari. • Ræðumaður : Róbert Ragnarsson bæjarstjóri. • Einsöngvari : Berta Dröfn Ómarsdóttir. • Kór Grindavíkurkirkju syngur ættjarðarsálma undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur organista. • Að lokinni guðsþjónustu verður boðið upp á kaffi og meðlæti. Kl.14:00. Karamelluregn á Landsbankatúninu. Kl.14:15. Skrúðganga frá Landsbankatúninu að Íþróttasvæði knatt- spyrnudeildar UMFG við Gula húsið. Kl.14:30. Skemmtidagskrá á túninu við Gula húsið. • Setning : Forseti bæjarstjórnar Bryndís Gunnlaugsdóttir flytur ávarp. • Ávarp fjallkonu: Rakel Eva Eiríksdóttir. • Söngatriði: Pálmar Guðmundsson tekur nokkur létt lög. • Helgi töframaður sýnir töfrabrögð. • Söngvakeppni 14 ára og yngri. ( Forkeppni verður haldin í Kvennó fimmtudaginn 16. júní kl. 18:00, skráning á staðnum). • Solla stirða ásamt föruneyti mætir á staðinn. • Hoppukastalar. • Andlitsmálun fyrir hressa krakka. • Knattspyrnuþrautir. • Golfþrautir. • Arctic Horses leyfa börnum að fara á hestbak. • Kynnir er Þorsteinn Gunnarsson. Slysavarnarsveitin Þórkatla verður með sölu á ýmsu góðgæti, blöðrum og fánum. Kl. 17:00 Dagskrárlok. Umsjón: Knattspyrnudeild UMFG og íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkurbæjar. Það er margt spennandi um að vera hjá Suður- nesjakonum í nýsköpun og fyrstu skrefum rekstrar þessa dagana. Miðvikudaginn 11. maí út- skrifuðust 13 glæsilegar konur af Brautargengisnámskeiði Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands sem haldið var í Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú í vetur. Á myndinni má sjá þennan glæsilega útskriftarhóp en þar er í uppbyggingu fjöldi flottra fyrirtækja á hinum ýmsu sviðum. Á myndinni (frá vinstri): Selma Dögg Sigurjónsdóttir (Ný- sköpunarmiðstöð Íslands), Íris Rós Söring (leirmunir), Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir (Húsið okkar), Ingibjörg Magnúsdóttir (ÍMA), Hulda Sveins (Raven Design), Laufey Kristjánsdóttir (Bergnet), Arnfríður Kristinsdóttir (Styrktar- þjálfun.is), Helga Björg Steinþórs- dóttir (Mýr Design), Bjarnhildur Árnadóttir (Myndsaumur), Edda Svavarsdóttir (innanhússráðgjöf) og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir (Faxi Baycruise). Á myndina vantar Bryndísi Guðmunds- dóttur (Lærum og leikum með hljóðin), Margréti Sif Sigurðar- dóttur (Já takk) og Þórunni Benediktsdóttur (Húsið okkar). Það er því óhætt að segja að Suðurnesjakonur eru að gera góða hluti og leggja sitt lóð á vogas- kálarnar við að auka fjölbreytni atvinnuflórunnar á Suðurnesjum! Suðurnesjakonur gera það gott! ›› Carbon Recycling International: Framkvæmdir við verksmiðju Carbon Recycling International (CRI) við Svartsengi eru nú á lokastigi. Fram- kvæmdum við verk- smiðjuhús og búnað til framleiðslu á vetni úr vatni og rafmagni er nærri lokið. Búnaður til hreinsunar á jarð- g u f u , e f n ab l ön d u n og eimingar kom til Helguvíkurhafnar í síðustu viku með leigu- skipi, sem hafði verið á siglingu frá Houston í Texas frá því í byrjun maímánaðar. Uppsetning búnaðarins hófst sl. miðvikudag og er gert ráð fyrir að prófanir á verksmiðjunni geti hafist fyrir lok júní. Búnaðurinn sem kom með skipinu til Helguvíkur samanstendur af sérsmíðuðum framleiðslueiningum sem reistar voru og tengdar við verksmiðjuna. Um er að ræða meira en 200 tonn af einingum. Stærsta einingin vegur um 42 tonn og er 23 metrar að lengd og 4,5 metrar á breidd. Auk starfsmanna CRI tekur fjöldi undirverktaka þátt í þessum framkvæmdum, en yfir 50 manns eru nú við vinnu við verkefnið. ÍAV hefur séð um framkvæmdir á byggingarstað, en starfsmenn fjölda inn- lendra og erlendra verk- fræðifyrirtækja koma einnig að verkefninu. Verksmið j a C arb on Recycling er sú fyrsta sinnar tegundar í heim- inum. CRI hefur þróað aðferð til þess að hreinsa koltvísýring úr útblæstri orkuvera eða verksmiðja og endurvinna kolefnið til framleiðslu á elds- neyti. Koltvísýringnum er blandað við vetni sem framleitt er með raf- greiningu úr vatni og er efnunum blandað saman til að mynda metanól. Í Svartsengi verður koltví- sýringurinn unninn úr jarðgufu orkuversins en við það er einnig komið í veg fyrir losun brennisteinsvetnis. Eini útblástur eldsneytisverksmiðjunnar er hreint súrefni. Endurnýjanlegu metanóli verður blandað við bensín en allir bensínbílar geta brennt lágri blöndu af metanóli og bensíni. Við það fæst bensín með hárri oktantölu og hreinni bruni. Þá er endurnýjanlegt metanól einnig hráefni til framleiðslu á lífdísil. Með þessum hætti er í fyrsta sinn hægt að endurvinna gróðurhúsaloft- tegundir til framleiðslu bílaeldsneytis. Uppsetning eldsneytisverksmiðju CRI í Svartsengi á lokastigi Ellert Skúlason ehf. fagnaði nýverið 50 ára starfsafmæli sínu en fyrirtækið hefur starfað samfleytt frá árinu 1961 við hin ýmsu verkefni. Í tilefni dagsins bauð Ellert samstarfsmönnum í gegnum tíðina ásamt vinum og vandamönnum til veglegs hádegisverðar að Mánagrund. Á boðstólum var lambalæri með öllu tilheyrandi og það virtist leggjast vel í matargesti. Fyrirtækið hefur komið við á ýmsum sviðum á þessum árum. Það hefur unnið að mörgum stórfram- kvæmdum, bæði í samstarfi við aðra verktaka og eins sjálfstætt. Sem dæmi má nefna virkjanir, flugvallargerð, vegagerð, hafnargerð, jarðgöng, ýmsar almennar byggingafram- kvæmdir, boranir og sprengingar. VF-myndir: Eyþór Sæmundsson Ellert Skúlason fagnar 50 ára starfsafmæli Ellert ásamt konu sinni Elínu Guðnadóttur. Guðrún J. Karlsdóttir, myndlistarkona úr Keflavík opnar sína tíundu einkasýningu á Listatorgi í Sandgerði, þriðjudaginn 14. júní og stendur sýningin yfir til sunnudagsins 26. júní. Guðrún er áhugafólki um myndlist á Suðurnesjum af góðu kunn. Hún hefur verið virk í starfi Baðstofunnar og Listafélags Reykjaness um ára raðir og tekið þátt í fjölda samsýninga á þeirra vegum. Guðrún hefur sótt fjölda námskeiða, sem þessi félög hafa staðið fyrir og notið þar handleiðslu fjölda góðra leiðbeinenda. Þessi sýning Guðrúnar er í raun þrískipt. Í öndvegi sýningarinnar eru ævintýralegar myndir úr töfraheimi hverasvæðisins í Krísuvík. Þá eru nokkrar myndir af uppstillingum og síðast en ekki síst eru nokkrar ,,Heilladísamyndir” sem gert hafa góða lukku á umliðnum árum. Nú eru tæp tíu ár frá því að Guðrún hélt sína fyrstu einkasýningu. Listatorg í Sandgerði er opið alla daga vikunnar á milli kl. 13:00 og 17:00. Allir eru hjartanlega velkomnir að líta við og njóta. Guðrún sýnir á Listatorgi Erla Sigurjónsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Gerður Eyrún Sigurðardóttir, Margrét Ragna Kjartansdóttir, Pétur Valdimarsson, Hafdís Kjartansdóttir, Árni H. Árnasson, Sif Kjartansdóttir, Haukur H. Hauksson, Lilja Guðrún Kjartansdóttir, Svanur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, G. Kjartans Sigurðssonar, vélstjóra, Háaleiti 27, Keflavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir alúð og góða umönnun. Megi guðs blessun fylgja ykkur öllum. Erla Sigurjónsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Rúna Sigurðardóttir, Margrét Ragna Kjartansdóttir, Pétur Valdimarsson, Hafdís Kjartansdóttir, Árni H. Árnason, Sif Kjartansdóttir, Haukur H. Hauksson, Lilja Guðrún Kjartansdóttir, Svanur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.