Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2011, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 16.06.2011, Blaðsíða 16
vf.is Opið frá kl. 8:00 - 17:00 Engar tímapantanir Njarðarbraut 7 Bifreiðaskoðun GOLFTÍÐIN ER HAFIN NÝIR FÉLAGAR VELKOMNIR VEITINGASALAN OPIN ALLA DAGA FYRIR KYLFINGA OG AÐRA GESTI NÝJAR MOTTUR Á ÆFINGASVÆÐINU OPIÐ TIL 22:00 ÖLL KVÖLD 19. JÚNÍ, SUNNUDAGUR: Fjölskylduskemmtun á Selatöngum frá kl. 11:00 - 15:00. Ýmsar stöðvar: Aflleikir, reiptog, listaverk í fjörunni o.fl. Á Selatöngum má sjá minjar um verbúðir og sjósókn fyrri tíða. Eins er gaman að skoða Katlahraunið með sínum kyngimögnuðu hraun- myndunum. Selatangar eru við ströndina í um 10 km austur af Grindavík á Krýsuvíkurleið. Merkt með skilti við veginn. Umsjónarmaður á Selatöngum er Sigrún Jónsd. Franklín gsm 6918828. Fjórhjólaævintýri ehf bjóða upp á fjölskylduferð á fjórhjólum frá Grindavík að Selatöngum og hægt að njóta þess sem verður í boði þar. Tveir fyrir einn, umsjón Kobbi/Kjartan sími 8573001 www.fjör.is Salthúsið, réttur sunnudagsins: Fiskur/súpa tveir fyrir einn sími 4269700 www.salthusid.is Mánudag til föstudags: Heillandi heimur fisk- sins. Stakkavík býður þér einstakt tækifæri: Upplifðu fisk til útflutnings. Hjá okkur sérðu fiskinn unninn, finnur andann og upplifir hefðina sem færir heiminum íslenskan fisk. Fullkomnaðu þessa einstöku upplifun með því að gæða þér á léttum veitingum í þægilegu umhverfi íslenskrar úterðar. Nánari upplýsingar, tímapantanir, verð og fleira í síma 4208000 eða sendið póst á xperience@stakkavik.is 22. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR: Reykjanes gönguferðir, Eldfjallahringur í Grindavíkurlandi. Gengið er eftir gamalli hrauntröð upp undir mikinn hamravegg, Gálgakletta og þaðan yfir Sundhnúk stærsta gíginn í samfelldri óraskaðri gígaröð, Sundhnúkagígaröð er á náttúruminjaskrá sem einstakt náttúruvætti. Gengið verður áfram á Svartsengisfell 188 m. Ofan á fellinu er stór og myndarlegur gígur sem vert er að skoða auk útsýnis yfir Illahraun og Eldvörpin. Gangan tekur um 3 - 4 klst. Leiðsögumaður er Rannveig Garðarsdóttir, gsm 8938900. Mæting er kl. 19:00 við Grófina 2 - 4 230 Reykjanesbæ. Rútugjald er kr. 1.000. 23. JÚNÍ FIMMTUDAGUR: Kl. 14:00 Hellaskoðun tveir fyrir einn. Fjórhjólaævintýri ehf sími 8573001 www.fjor.is Salthúsið, réttur fimmtudagsins fiskur/súpa tveir fyrir einn sími 4269700 www.salthusid.is 24. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR: Skipsströnd á Hópsnesi, reiðhjólaferð frá tjaldsvæði Grindavíkur. Mæting kl. 10:00 tekur um 1-2 klst. Tveir fyrir einn umsjón Fjórhjólaævintýri Kobbi/Kjartan ehf 8573001 www.fjör.is. 25. JÚNÍ LAUGARDAGUR: Vitahringurinn, hestaferð fyrir fjölskylduna tveir fyrir einn, umsjón Artic Horses, Jóhanna sími 8480143 Skipsströnd á Hópsnesi, reiðjólaferð frá tjaldsvæði Grindavíkur, mæting kl 10:00 tekur um 1-2 klst. Tveir fyrir einn, umsjón Fjórhjólaævintýri Kobbi/Kjartan ehf 8573001 www.fjör.is Kl. 11:00 Í Kvikunni Hafnargötu 12 a mun Dagbjört Óskarsdóttir, leiðsögumaður lesa sögu fyrir börnin um Geira litla og vini hans. Jafnframt segir hún frá síðasta geirfuglinum sem felldur var í Eldey. Kl. 13:00 - 17:00 Skreytingar við öll tækifæri unnar úr náttúru Grindavíkur. Blómakot við Mánagötu, umsjón Gugga Bogga, guggabogga@visir.is Kl: 20:30 Jónsmessuganga á fjallið Þorbjörn. Hin árlega Jónsmessuganga Grindavíkurbæjar og Bláa Lónsin hefst við sundlaugina í Grindavík. Á fjallinu verður varðeldur og tónlistaratriði. Gangan endar í Bláa lóninu. Dagskráin er gerð með fyrirvara um frekari breytingar. Ratleikur Grindavíkur, Náttúran og þjóðtrúin er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur, sem staðið hefur frá upphafi Sjóarans síkáta og stendur fram að Jónsmessu. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið. Staðirnir eru við fjallið Þorbjörn og Skipsstíg, gömlu þjóðleiðina milli Innri- Njarðvíkur og Grindavíkur. Höfundur ratleiks er Sigrún Jónsd. Franklín. Hægt er að prenta út ratleikskort á www.grindavik.is Kvikan, auðlinda- og menningarhús, Hafnargata 12a. Er opin alla daga frá kl. 10:00-17:00. Þar eru tvær glæsilegar sýningar, annars vegar Saltfisksetrið og hins vegar Jarðorka sem er ný sýning og hefur þegar vakið athygli en hún var áður í Gjánni í Eldborg og sýnir jarðsöguna á áhrifaríkan hátt. 19. - 25. J Ú N Í - Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna Sjá nánar á www.grindavik.is og www.sjfmenningarmidlun.is NÁTTÚRUVIKA Á REYKJANESI Í GRINDAVÍK Fimmtudagurinn 16. júní 2011 • 24. tölublað • 32. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 MUNDI Gleðilega þjóðhátíð kæru lesendur Víkurfrétta! Heilsuskóli Keilis flytur inn heimsklassa fyrirlesara Heilsuskóli Keilis stendur fyrir 3ja daga Þjálfarabúð- um í september. Um er að ræða heimsklassa námskeið í styrkt- ar- og ástandsþjálfun með fjórum þjálfurum og kennurum með ára- langa reynslu sem allir koma frá Bandaríkjunum. Róbert Magn- ússon, sérfræðingur í íþrótta- sjúkraþjálfun, sem nú er staddur í Danmörku með U-21 árs lands- liðinu er einn margra sem hafa nú þegar skráð sig en hann seg- ir Þjálfarabúðirnar mikilvæga endurmenntun fyrir alla sem vilja halda sér vel upplýstum og fá nýj- ar hugmyndir frá topp fræðifólki í greininni og undir það tekur Helgi Guðfinnsson styrktarþjálf- ari og körfuknattleiksþjálfari sem ætlar ekki að láta sig vanta. ,,Nú þegar kreppir að hafa þjálfarar minni pening til endurmennt- unar og því munar miklu að þurfa ekki að fara erlendis til að sækja stór námskeið“ bætir Helgi við. Þjálfarabúðirnar í september eru þær þriðju í röðinni hjá Keili. Áherslan í þetta skiptið verður á æfingaval, stignun á æfingum, ólympískar lyftingar, djúpvöðva- kerfið og þyngdartap út frá nær- ingu og sálfræði. Stærsta nafnið í flokki kennara er Michael Boyle sem gefið hefur út fjöldann allan af kennsludiskum og bókum um þjálfun. Æfingastöð Boyle var val- in sú besta í Bandaríkjunum árið 2010 af tímaritinu Mens Health. Forskráningartilboð á Þjálfarabúð- irnar er til 20. júní. Nánar á www. keilir.net/heilsa.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.