Víkurfréttir - 28.07.2011, Síða 4
4 FIMMTudagurInn 28. júLí 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar
berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar
birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu
greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent
efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum
Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Leiðari Víkurfrétta
EYÞÓR SÆMUNDSSON, BLAÐAMAÐUR
Það hefur verið frekar rólegt hér á Suður-nesjum síðustu vikur enda fólk í sumarfríi
og á ferð og flugi innan- jafnt sem utanlands.
Þó hafa komið upp mál sem vert er að minnast á.
Í Grindavík átti sér stað skelfileg árás sem var virkilega
óhugnaleg og vakti óhug hjá fólki. Mörgum er umhugað
um mál bygginga í Innri-Njarðvík þar sem slysagildrur
eru víða og foreldrar skiljanlega áhyggjufullir vegna
þessa. Síðasta helgi var viðburðarík í íþróttalífinu hér
á svæðinu en þá eignaðist Hestamannafélagið Máni
Íslandsmeistara á Íslandsmóti yngri flokka sem haldið
var með glæsibrag á Mánagrund. Íslandsmeistarinn,
Jóhanna Margrét Snorradóttir sigraði einnig unglinga-
flokkinn á Landsmóti hestamanna sem fram fór á dög-
unum og ljóst að þarna er stórefnileg hestakona á ferð.
Íslandsmótið í höggleik fór fram á Hólmsvelli í Leiru
en Suðurnesjamenn riðu ekki feitum hesti frá því móti,
þótt umgjörðin hafi verið með besta móti. Annars er
farið að síga á seinni hluta sumars en mér persónulega
hefur alltaf fundist sumarið vera búið eftir verslunar-
mannahelgina og í minningunni hefur ágúst aldrei
verið annað en vonbrigði. Það mætti segja að ágúst sé
Liverpool mánaðanna, lofar alltaf góðu en stendur svo
aldrei undir væntingum. Kannski er það bara rugl í
mér. Framundan eru þó atburðir þar sem ærleg ástæða
er til að lyfta sér upp. Næstu helgi er Gay Pride hátíðin
í Reykjavík en hún hefur vaxið og dafnað síðustu ár og
er nú meðal stærstu viðburða ársins. Menningarnótt er
svo á næsta leiti en Suðurnesjamenn fjölmenna jafnan
þangað og njóta þess besta sem menningarlíf lands-
ins býður upp á. Svo er það rúsínan í pylsuenda okkar
Suðurnesjamanna, Ljósanóttin sjálf. Hátíð sem markar
endalok sumars og upphaf haustsins. Hátíð sem er fyrir
löngu orðin landsþekkt og fólk hvaðanæva að kemur
og heimsækir Reykjanesbæ. Virkilega væri gaman að
sjá þátt eins og Landann kíkja við á Ljósanótt og leyfa
okkur að láta ljós okkar skína. Oft verðum við Suður-
nesjamenn útundan í þáttum af þessum toga, erum ekki
á landsbyggðinni og ekki á höfuðborgarsvæðinu. Ég
efast þó ekki um að hér megi finna margt áhugavert fólk
og skemmtilega staði og oftar en ekki finnst mér verið
að leita langt yfir skammt í þessum efnum.
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin
alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.
Ágúst er Liverpool mánaðanna
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 11. ágúst. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
YOGA-HÚSIÐ
Holtsgötu 6, Njarðvík sími 823 8337
Haustnámskeiðin okkar
hefjast 8.ágúst
Innritun er þegar í fullum gangi í síma 8238337
Starf framkvæmdastjóra
UMF Þróttur auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra
félagsins. Starfshlutfall er 30-50% og er hluti starfsins viðvera á
skrifstofu félagsins í íþróttamiðstöðinni í Sv. Vogum.
Æskilegt er að umsækjendur séu liprir í samskiptum og hafi góða
þjónustulund, geti tekið frumkvæði og hafi getu til að vinna sjálfstætt.
Góð þekking á tölvum og geta til að koma frá sér rituðu íslensku máli
er nauðsynleg.
Umsóknir skulu berast stjórn Þróttar á netfangið
throttur@throttur.net fyrir 10. ágúst.
Frekari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 866-1699.
ATVINNA
Pulsuvagninn við Tjarnartorg auglýsir eftir starfsmanni 25 ára
og eldri. Viðkomandi þarf að hafa góða
þjónustulund og vera reyklaus.
Vinnutími frá kl. 10:00 - 17:00 á daginn og eitthvað um helgar.
Upplýsingar gefur Inga á staðnum eða í síma 896 2538.
Sigurður Sævarsson er tónskáld sem lærði söng og tónsmíðar
í Bandaríkjunum á sínum tíma,
nánar til tekið í Boston. Þar áður
hafði hann lært söng í tónlistar-
skólanum í Keflavík og í Nýja
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
„Ég segi alltaf að ég hafi hætt að
syngja um leið og ég fékk réttind-
in. Þannig er að ég fór upphaflega
í háskólanám í söng, við Boston
University. Fljótlega fékk ég að
bæta við tónsmíðanáminu og
lauk síðan meistaragráðu í báðum
greinum. Söngnámið gekk mjög
vel en það voru tónsmíðarnar sem
heilluðu mig meir. Ég syng stund-
um með Schola cantorum en læt
einsönginn alveg vera. Til að vera
góður einsöngvari þarf maður að
æfa sig daglega til að halda sér í
formi. Þegar ég er ekki að „skóla-
stjórast“ sit ég við píanóið, þannig
að það er enginn tími fyrir söng-
inn,“ sagði Sigurður eftir að hann
var spurður um hvort hann hefði
alveg sagt skilið við sönginn og
snúið sér alfarið að tónsmíðum.
Sigurður er að gefa út nýjan disk
þessa dagana. Hann heitir Missa
Pacis og eru það Hljómeyki, Stein-
grímur Þórhallsson, orgel, Sigurður
Halldórsson, selló og Frank Aarn-
ink, slagverk, sem flytja undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar. Verkið
var hljóðritað í janúar á þessu ári í
Skálholtsdómkirkju en Sigurður var
staðartónskáld Sumartónleikanna í
Skálholti 2010 og samdi við það til-
efni þessa messu.
Sigurður segist hafa verið að sýsla
við ýmislegt eftir námið í Boston
og þá aðallega verk fyrir röddina.
„Fyrsta verkið var óperan Z-ást-
arsaga, byggð á samnefndu skáld-
verki Vigdísar Grímsdóttur. Óperan
Hætti að syngja eftir að hann fékk réttindin
var sýnd á óperuhátíð Norðuróps
sem haldin var hér í Reykjanesbæ
2001. Næsta stóra verk var Hall-
grímspassía, verk fyrir kór, ein-
söngvara og hljómsveit. Passían var
frumflutt í Hallgrímskirkju 2007
og svo flutt aftur í Ytri-Njarðvík-
urkirkju 2010 og á Kirkjulistahátíð
í Hallgrímskirkju sama ár. Eftir það
samdi ég óperuna Hel, byggða á
samnefndu skáldverki Sigurðar
Nordal. Óperan var flutt í Íslensku
Óperunni á Listahátíð 2009. Það var
einmitt eftir sýningu á Hel að ég var
beðinn um að vera staðartónskáld
Sumartónleikanna í Skálholti 2010.
Ósk kom um að ég semdi eitthvað
fyrir kammerkórinn Hljómeyki
við trúarlegan texta. Fyrir valinu
varð latneski messutextinn. Þessi
texti hefur verið notaður af stórum
hluta tónskálda í gegnum aldirn-
ar og virðist alltaf vera sem nýr.
Nafnið sem ég gaf messunni, Missa
Pacis (messa friðar) er skírskotun í
þann frið sem dvöl í Skálholti veitir
manni og í leiðinni ósk mín um frið
fyrir alla, ekki síst sálarfrið.
Verkið var svo frumflutt á áður-
nefndum sumartónleikum í Skál-
holti 2010 og síðan hljóðritað í
Skálholti í janúar á þessu ári og flutt
aftur á Myrkum músíkdögum þann
sama mánuð.
Þeir sem hafa áhuga, geta farið
inn á heimasíðu mína: www.sig-
urdursaevarsson.com til að heyra
tóndæmi.
Sigurður var tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna í fyrra í flokki
klassískrar og samtímatónlistar fyr-
ir hljómplötu sína Hallgrímspassía
sem gefin var út í desember á síðasta
ári. Flytjendur eru kammerkórinn
Schola cantorum, Caput hópurinn
og Jóhann Smári Sævarsson, undir
stjórn Harðar Áskelssonar. En þess
má geta að Jóhann Smári er bróðir
Sigurðar.
Það er ýmislegt í gangi þessa dag-
ana hjá Sigurði. „Ég hef lítið getað
setið við píanóið þar sem það er
búið að vera mikið að gera í kring-
um útgáfu disksins. Síðan er verið
að vinna þýðingar á Hallgríms-
passíunni, bæði enska og danska,
með tilheyrandi fundarsetum. Svo
er ætlunin að bæta við þýskri þýð-
ingu. Það verður spennandi að sjá
hvað verður úr þessu öllu.
Varðandi næstu verkefni, þá lýk ég
við verk fyrir óbó og strengjakvar-
tet í haust. Áætlað er að frumflytja
það öðru hvoru megin við næstu
áramót. Síðan er annað stórt verk
í burðarliðnum, óratoría fyrir kór,
einsöngvara og hljómsveit. Verið er
að vinna textann þessa dagana og
vonast ég til að geta hafist handa við
tónlistina í haust,“ sagði tónskáldið
Sigurður Sævarsson að lokum.
Vertu í góðu sambandi við VF!
Auglýsingadeild í síma 421 0001 (gunnar@vf.is)
Fréttadeild í síma 421 0002 (hilmar@vf.is)
Ritstjórn og afgreiðsla í síma 421 0000 • vf.is • m.vf.is