Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.07.2011, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 28.07.2011, Blaðsíða 14
14 FIMMTudagurInn 28. júLí 2011 • VÍKURFRÉTTIR Stefna allir á Los Angeles árið 2015 Verðlaunahafarnir okkar frá Alþjóðaleikum Special Olympics komu heim fyrir skömmu eftir að hafa náð glæsilegum árangri í Aþenu á dögunum. Blaðamaður hitti þá Sigurð Guðmundsson, Guðmund Markússon, Jakob Gunnar Lárusson og Jósef Daníelsson á Kaffitári á dögunum og spurði þá um förina til Aþenu. Þeir Sigurður og Guðmundur voru í knattspyrnuliðinu sem hlaut silfurverðlaun á leikunum eftir 2-1 tap gegn Svartfjallalandi í spennandi leik. Þeir sögðust hafa verið óheppnir að tapa leiknum og litlu hefði munað á liðunum. Jakob Gunnar náði að landa bronsi í langstökki og varð fimmti í 100m hlaupi, sannarlega frábær árangur hjá kappanum. Þeir Sigurður og Guðmundur spiluðu með knattspyrnuliði Íslands á Alþjóða- leikum Special Olympics. Jakob Gunnar og bróðir hans Jósef eru í frjálsum íþróttum en Jósef fór á Special Olympics í Kína árið 2007 og er sá eini af hópnum sem farið hefur áður. Hvernig fannst ykkur í Grikklandi? „Það var bara mjög skemmtilegt og nátt- úrulega mjög flott. Fullt af flottum munum út um allt,“ segja strákarnir sem þó sögðust ekki hafa haft mikinn tíma til þess að skoða söfn og þvíumlíkt. Þó sáu þeir rústirnar á Akropólisarhæð og hrifust mjög af þeim. Hitinn var gríðarlegur þarna úti og sérstaklega rétt eftir hádegi þegar leikirnir kláruðust oftast. „Samt var eiginlega alltaf heitt, sama hvað klukkan var,“ segir Jakob. Hvað stóð upp úr í ferðinni til Grikklands? „Það var eiginlega grín sem við gerðum í hvor öðrum þegar við vorum á hótelinu,“ segir Guðmundur og rifjar upp þegar að hann var tekinn á beinið af félögum sínum. „Ég var að fara í sturtu og þvæ á mér hárið með sjampói eins og gengur. En áður hafði Beggi liðsfélagi minn sett heila tannkremstúbu í sjampóið mitt. Eftir að hafa þvegið mér var hárið á mér klístrað og ég skildi ekkert í því, hárið á mér var líka hálf aflitað eftir þennan þvott.“ Strákarnir skellihlæja af þessari sögu og það er augljóst að stemningin var góð í hópnum. Strákarnir segjast hafa kynnst mörgu fólki frá öðrum löndum og hafi jafnvel samband við þá enn þann dag í dag. Margir töluðu þó ekki ensku sem gerði samskiptin erfiðari fyrir vikið. Hvað æfið þið oft í viku? Þeir æfa allir fótbolta með Öspinni og svo NES þegar þær æfingar hefjast aftur og eru að jafnaði þrisvar í viku. Strákarnir eru sammála um að það sé frekar léleg aðstaða til þess að æfa frjálsar íþróttir hér á Suðurnesj- um en þeir æfa oftast fótbolta í Heiðarskóla. Jakob Gunnar keppti í langstökki og 100 metra hlaupi úti í Aþenu en hann segir langstökkið vera sína sterkustu grein en þó segist hann ekki muna hversu langt hann hafi stokkið, það sé alla vega hellingur. Næstu leikar eru árið 2015 í Los Angeles og það hlakkar í strákunum þegar þeir tala um þá leika, þangað vilja þeir allir fara. „Stefnan er bara að æfa af fullum krafti og stefna á þá leika, við ætlum allir að fara þangað. Svo er fótboltamót í London á næsta ári og þangað langar strákana að fara enda en þó segja þeir mikla samkeppni vera um stöðurnar í fótboltaliðinu. Fótboltaliðið með þá Sigurð og Guðmund innanborðs sigraði 6 leiki í Aþenu og töpuðu tveimur, báðum gegn Svartfjallalandi sem sigraði mótið. „Þeir voru mjög góðir og spiluðu aðeins betur en við. Við sigruðum samt Þýskaland, Austurríki, Holland, Slóveníu og stóðum okkur vel,“ segir Guðmundur sem leikur í vörn íslenska liðsins. Sigurður spilar sem bakvörður eða hægri kantur. Strákarnir æfa allir fleiri en eina íþróttagrein og eru að allan ársins hring. Til stendur að hefja æfingar í Reykjaneshöllinni þrisvar í viku en þar hafa þeir ekki æft áður og svo eru tveir úr hópnum að æfa sund fjórum sinnum í viku. „Það væri stór plús fyrir okkur að æfa í höllinni og geðveikt fyrir okkur. Annars erum við bara í Heiðarskóla sem er of lítill fyrir okkur því við erum 22-24 þar inni, það er allt of lítið. Eigið þið ykkur fyrirmyndir í íþróttunum? „Það er auðvitað Vidic,“ segir Guðmundur. „Og svo auðvitað Maradona.“ Sigurður segist hafa átt uppáhalds golfara sem hann hafi haldið upp á þegar hann var yngri. Sá heitir Tiger Woods en Sigurður hefur heyrt að hann sé ekkert svo góður lengur. Efirlætis íþróttamenn Jakobs Gunnars eru þeir Kobe Bryant hjá L.A Lakers og Luis Suarez hjá Liverpool, að ógleymdum þeim Andy Carroll og Steven Gerrard. Jósef tekur undir þetta með Jakobi bróðir sínum og bætir Xabi Alonso á listann. „Því hann var vanur að skora frá miðju,“ segir Jósef. Um kvöldið eftir viðtal okkar tóku strákarnir á móti viðurkenningu á Skötu- messunni í Garðinum og fannst Jakobi virkilega skrýtið að þeir hinir borði ekki skötu, hann skildi ekkert í því hreinlega. Að lokum sögðust strákarnir ætla að leggja sig alla fram til þess að komst á næstu leika því þetta væri frábær upplifun sem þeir vildu ekki missa af. SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS TIL LEIGU Gisting Akureyri; Skemmtilegar íbúðir í Amaróhúsinu við göngugötuna Tilboð: Vikuleiga með tveim upp- ábúnum rúmum, 60.000 Kr. Í íbúðinni er svefnpláss fyrir fjóra. sjá gistingamaro.is. Sími 461 5403 Ýmsar stærðir og gerðir af her- bergjum, með eða án húsgagna, með sameiginlegu eldhúsi og bað- herbergi eða sér eldhús og bað, með eða án húsgagna. Aðgangur að gufubaði og borðtennisborði. Internet og orka innifalin og all- ur sameigilegur kostnaður. Góð staðsetning og hagstætt leiguverð. Uppl. í síma 895 8230 og 860 8909. Skúr til leigu á góðum stað í Keflavík ca 50m2. S é r b a ð , n i ð u r f ö l l o g i n n - keyrsluhurð UPPLÝSINGAR Í 6911685/8985599 LEIGA 48.000 PER MÁN/ laus strax. Studio íbúð til leigu. Allur bún- aður innifalin. Í miðbæ Keflavíkur. Upplýsingar í síma 698 7626. 43m2 íbúð á Háleiti 1 í Keflavík. Leiga 55.000kr á mán. fyrir utan hita og rafmagn. Laus strax. Áhugasamir sendið póst með nafni og kennit. á lilja@sovon.is Til leigu 4 herbergja íbúð (neðri hæð) á frábærum stað í Keflavík. Laus um næstu mánaðarmót júlí/ ágúst. Gæludýr leyfð. Upplýsingar í síma 896 6267. 125m2, 4ra herbergja, falleg og björt íbúð í Njarðvík er laus til leigu. 100 þús á mán fyrir utan hita og rafmagn. Allar nánari uppl. í síma 661 7069. Til leigu herbergi í Sandgerði. Sér inngangur samleiginleg snyrting. 25þús pr. mán. Upplýsingar í sima 820 7494 Laust 1. ágúst. HEILSA Meiri orka – Betri líðan! H3O Pro Isotonic drykkurinn, ShapeWorks & flr. góðar vörur Ásdís og Jónas Herbalife dreifing- araðilar S: 843-0656 (Á), 864-2634 (J) og 421-4656 Tölvupóstur: asdisjul@internet.is Heimasíða/netverslun: http:// www.betriheilsa.is/aj TIL SÖLU Rafmagnspíanó til sölu. Roland HP 2e rafmagnspíanó til sölu verð. 200.000. Upplýsingar gefur Vallý í síma 481 1844 - 897 6656. Furuborð hálfhringur og 2 stól- ar, sjálfvirk ryksuga, og Overlock saumavél sem sker, Til sölu, upp- lýsingar í sima 698 7486. HÚSAVIÐGERÐIR ÞAKVERND - Þakviðgerðir. Ryð- og Lekavarnir, 100% vatnsþéttingar með Pace- aðferðinni 10 ára ábyrggð, margir litir í boði. Tilboð í síma: 777 5697. Lekabani@gmail.com ÓSKAST Bílskúr óskast til leigu fyrir stór- ann jeppa. Helst í Innri-Njarðvík, en má vera í Reykjanesbæ. Hringja í Hildi, sími 866-3845 HJÁLP!!!!! 4 manna fjölskylda óskar eft- ir 4 herbergja íbúð helst í innri Njarðvík en skoða líka í Keflavík. Getum tekið við henni strax og öll- um greiðslum heitið. Sími: 866 6260. Óska eftir raðhúsi, parhúsi eða einbýlishúsi, til langtímaleigu í Njarðvík. Reyklaus fjölskylda, góðri umgengni heitið, fyrirframgreiðsla og öruggar greiðslur. Upplýsingar í síma 899 0274. Óskast til leigu (langtímaleigu) Óskum eftir 4herb íbúð til leigu í nánd v/Holtaskóla. Erum reglu- samt par með litla stelpu sími 842 2525. Kirkjur og samkomur: Hvítasunnukirkjan Keflavík. Samkomur falla niður um versl- unarmannahelgi vegna sumarmóts í Kirkjulækjarkoti. ÝMISLEGT Búslóðaflutningar og allur al- mennur flutningur. Er með 20 rúmmetra sendibíl/kassabíl með lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi. Tek að mér allskonar viðgerð- ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað- ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567. Túnþökusala OddsTeins Erum mEð til sölu gæða túnþökur, fótboltagras, gólfvallagras, holta- gróður, lyng og gras á opin svæði. margra ára rEynsla. sími: 663-6666/663-7666 utningar ehf. www.go2.is Sími 770 3571 ALHLIÐA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF. Kynntu þér málið á www.lögfræðistofan.is s. 445-3500. Við störfum á Suðurnesjum. ERTU Í ÁBYRGÐ? Viltu vita rétt þinn eða fá hann leiðréttann? Hafðu samband. Sími. 445-3500 www.lögfræðistofan.is Við störfum á Suðurnesjum. Garðlist Vantar fólk í garðslátt í sumar. Sláttur í Njarðvíkurhverfi. Umsóknir á gardlist.is GÆLUDÝR Chihuahua. Chihuahua til sölu 9 vikna ætt- bókafærður hreinræktaðir foreldr- ar, sanngjarn verð. Upplýsingar í síma 421 6255. Kisan okkar er týnd. Kleópatra er smágerð svört með koparblæ, hún er með bleika ól með nafni heimilsfangi og síma- númeri. Kleópatra hvarf 13 júlí, Hennar er sárt saknað. Ef einhvert ykkar verðið var við hana vinsam- legast hafið samband í 897-0454 eða 867-3325. FUNDARLAUN. Rósi er týndur í Grindavík. Bröndóttur og hvítur högni týnd- ist í Grindavík 25 júní . Hann er geltur og örmerktur. Fólk er vin- samlega beðið um að ath. í bíl- skúra og geymslur hjá sér. Þeir sem verða hans varir eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 691 2183 FUNDARLAUN. Leigusamningar! gerum leigusamninga fyrir einstaklinga og fyrirtæki. 15.000 + vsk. Við erum ódýrastir. www.leigumidlun.com s. 445-3500. Útibú á suðurnesjum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.