Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.07.2011, Blaðsíða 5

Víkurfréttir - 28.07.2011, Blaðsíða 5
5VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 28. júLí 2011 Skötumessa var haldin í Garð-inum í sjötta sinn síðastliðinn miðvikudag með miklum glæsi- brag. Herlegheitin voru haldin í sal Gerðaskóla og var ekki eitt einasta sæti laust í húsinu. Born- ar voru fram kræsingar frá Axeli Jónssyni og var skatan vinsælust þrátt fyrir að saltfiskur, plokk- fiskur og annað góðgæti væri á boðstólum. Ýmsir þjóðkunnir skemmtikraftar komu fram þ. á m. Hreimur Örn Heimisson, Raggi Bjarna, Bjartmar Guðlaugsson og Árni Johnsen sem að öðrum ólöstuðum stal senunni og myndaði sannkallaða þjóðhátíð- arstemningu í salnum þar sem fólk læsti saman örmum og ruggaði sér og trallaði. Ágóðinn af Skötumessunni í ár mun fara til aðstoðar íþróttafélags- ins NES en þau eru að fara að keppa á Íslandsmeistaramóti í Boccia í haust. Einnig er ætlunin að styrkja fatlaðan sundmann úr Hafnarfirði. Vel heppnuð Skötumessa í Garðinum Skötukallinn Ásmundur Friðriksson afhenti Axeli Jónssyni, Skólamat, Val- gerði Pálsdóttur, Víkurfréttum og Ragnari H. Kristjánssyni, Fiskmarkaði Suðurnesja viðurkenningarskjal fyrir gott samstarf á liðnum árum. Nýlega afhentu þær María Ósk Kjartansdótt-ir og Aðalheiður Ásdís rannsóknarhópi á Keldum myndarlega upphæð sem safnast hefur til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu. María Ósk er af heilablæðarafjölskyldu og er um- hugað um að rannsóknirnar haldi áfram. Stúlk- urnar stóðu fyrir hinum ýmsu viðburðum eins og Hip-Hop tónleikum og barnaskemmtun í 88-hús- inu. Einnig var slegið upp veislu á Manhattan á sínum tíma og fólki var frjálst að veita málefninu framlög eftir getu hvers og eins. Þegar allt var saman talið höfðu safnast 1.475.075 kr. Söfnuðu 1,5 milljón til styrktar arfgengri heilablæðingu Vegna forfalla vantar raungreinakennara á unglingastigi í Heiðarskóla fyrir skólaárið 2011 - 2012. Umsóknarfrestur er til 11. ágúst. Upplýsingar veitir Gunnar Þór Jónsson skólastjóri í síma 894-4501, umsóknir eiga að berast starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is RAUNGREINAKENNARI HEIÐARSKÓLA Dagdvöl aldraðra Reykjanesbæ auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf .   Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is. Umsóknarfres- tur er til 11. ágúst. Upplýsingar veitir forstöðumaður Inga Lóa Guðmundsdóttir í síma 420-3400, inga.l.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar KARLAR OG KONUR   ER NÁGRANNAVARSLA Í ÞINNI GÖTU? Reykjanesbær minnir á nágran- navörslu þar sem íbúar geta gert samkomulag um vöktun í sinni götu. Til þess að taka þátt þarf undirskriftir allra íbúa í götunni og er hún þá og húsin merkt sérstak- lega. Nágrannavarsla felur m.a. í sér að tilkynna til lögreglu grunsamlega hegðun í götunni sem þá verður fylgt eftir. Góður granni er áhrifaríkasta afbrotavörnin. Sjá nánar á reykjanesbaer.is/usk BÆKLINGAR FYRIR FERÐAMENN Tveir nýir bæklingar hafa komið út þar sem íslenskum ferðamönnum og auðvitað heimamönnum líka, er bent á áhugaverða staði í bæjarfélag- inu og næsta nágrenni, hvað hægt er að gera og hvert er hægt að fara. Annar bæklingurinn er sérstaklega ætlaður börnum og þar er bent á fjölda skemmtilegra tækifæra sem hægt er að njóta án mikilla fjárútláta, flestir staðirnir eru meira að segja alveg ókeypis fyrir börnin. Hægt er að nálgast þessa bæklinga á vef Reykjanes- bæjar, á Markaðsstofu Suðurnesja og á helstu ferðamannastöðum bæjarins s.s. Víkingaheimum og Duushúsum. EKUR ÞÚ VARLEGA? 30 km hámarkshraði er í íbúðahverfum. Hvetjum íbúa til að aka varlega Sýnum tillitssemi – ökum varlega. 30

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.