Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.07.2011, Side 8

Víkurfréttir - 28.07.2011, Side 8
8 FIMMTudagurInn 28. júLí 2011 • VÍKURFRÉTTIR Elínrós Líndal stofnandi fram-leiðslufyrirtækisins ELLA er fædd og uppalin í Keflavík til 7 ára aldurs en segist alltaf líta á sig sem Keflvíking. „Ég hef alltaf ver- ið með annan fótinn hér, ég ólst að hluta til upp hjá ömmu minni og afa; þeim Fjólu Eiríksdóttur og Haraldi Líndal á Framnesveg- inum og á því margar góðar minn- ingar síðan þá. Nú eru þau bæði fallin frá en hluti af fjölskyldunni býr hér ennþá og erum við afar samrýmd sem er gott. Ég hef gríð- arlega sterkar taugar til Keflavíkur – hér býr yndislega hlýlegt og gott fólk og veit ég fátt skemmtilegra en að koma hér við þrátt fyrir að ég verði að viðurkenna að eftir ›› - segir Elínrós Líndal, stofnandi Ella design fráfall ömmu hefur heimsókn- unum fækkað töluvert. Elínrós flutti til Keflavíkur átján ára að aldri og vann um tíma m.a. á Flughótelinu með námi sínu í Verzlunarskóla Íslands. „Ég bjó hér í nokkur ár á menntaskólaaldri og vorum við nokkur sem keyrðum á degi hverjum til að sækja nám í Reykjavík.“ Elínrós er menntuð sálfræðingur og blaðamaður – með MBA meistaragráðu í stjórnun. „Ég er eigandi og listrænn stjórn- andi ELLU, sem er nýtt fram- leiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í Slow Fashion. Ég hef starfað við fyrirtækið í ein tvö ár, en við opn- uðum netverslunina www.ellabyel. com 8. apríl síðastliðinn. Við erum ótrúlega ánægð að vera komin inn hérna í Dutyfree Fashion, það er mikil viðurkenning fyrir nýtt fyr- irtæki. Ásta Dís nýr framkvæmda- stjóri Fríhafnarinnar er að leiða verslun þar á mjög spennandi staði þar sem boðið er upp á íslenska hönnun sem er einmitt það sem við viljum að ferðamennirnir okk- ar kynnist í heimsóknum sínum hér á landi. Fyrir okkur er þetta því kjörið tækifæri í viðleitni okkar að koma ELLU áfram á erlendri grundu – að kynna vöruna fyrir ferðamönnum víðsvegar um heim- inn hér,“ segir Elínrós. Starfar með fagfólki á ýmsum sviðum Elínrós segir margt spennandi að gerast í íslenskri hönnun. „Margir eru að vinna skemmtilega hluti í hönnun og vinnan er vönduð hér- lendis. Við erum slow-fashion fyr- irtæki eins og það kallast, í því felst meiri áhersla á gæði og góð snið. Fyrirtækið er samfélagslega ábyrgt í framleiðslu sinni. Við framleiðum í Evrópu og kynnum okkur vel að- stæður fólks sem að framleiðslunni vinnur. Við viljum ekki nýta okkur fátækt fólks og bjóðum heiðarleg laun fyrir gott handverk.“ Elínrós starfar með fagfólki á ýms- um sviðum, m.a. Katrínu Maríu Káradóttur yfirhönnuði ELLU. Hún starfar einnig sem aðjúnkt við Listaháskóla Íslands og hefur unnið fyrir merki á borð við Christian Dior og John Galliano. „Með mér er fullt af góðu og sterku fólki,“ segir Elínrós sem segist vera mikill frumkvöðull í sér. „Ég hef starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og fannst það frá- bært starf. Einnig lærði ég sálfræði því mig langaði að reyna fyrir mér á þeim vettvangi en áhugi minn á tískunni varð ofar öllu öðru sem er bara gott þar sem mikil sálarfræði og textaskrif nýtast í starfinu mínu í dag. Eftir að tískumerkin fóru á hluta- bréfamarkað á tíunda áratug síðustu aldar fór ég að finna fyrir síaukinni kröfu á ávöxtun eiginfjárs þeirra fjárfesta sem inn á markaðinn komu sem kom fram í lakari gæðum, meiri fjöldaframleiðslu og minni klassík. Af þessum sökum fannst mér vanta fleiri fallega sniðnar flíkur, gerðar á heiðarlegan hátt með það að mark- miði að þær ættu að standast tímans tönn bæði þegar kemur að útliti og endanleika. Í þeim efnahagslega árfarvegi sem við upplifum í dag, þurfum við að gera meiri kröfur til þess að flíkur endist. Þú notar 20% af fataskápn- um þínum 80% af tímanum. Þann- ig að ef þú kaupir frekar 20% af þeim flíkum sem þú gerir vanalega á ári þá er buddan betur sett. Einnig er ómissandi að eiga einn góðan svartan kjól sem hægt er að dressa upp og niður. Þannig að ég er sann- færð um að ELLA eigi erindi í dag. Við höfum náð vel til markhóps okkar en við höfum verið að selja á netinu og erum núna komin hing- að í Fríhöfnina. Verslunin Kronk- ron hefur einnig verið að bjóða upp á kjóla og peysur frá ELLU og svo höfum við opnað okkar eig- in verslun á Ingólfsstræti 5. Við höfum einnig fengið fjölmargar fyrirspurnir erlendis frá og erum komin með umboðsmenn í Lond- on og New York, þannig að það er ýmislegt á dagskránni hjá okkur á næstu vikum og mánuðum. Við viljum þó vera einbeittar í því að vaxa rétt. Við höfum fengið til- boð frá stórri verslunarkeðju sem við erum að velta fyrir okkur, en framtíðarstefnan er að opna litl- ar verslanir sjálfar í New York og London svo við getum stýrt upp- lifun viðskiptavinarins á ELLU allt frá upphafi til enda.“ Var ekkert erfitt að komast hérna að í Fríhöfninni? „Ætli ég hafi ekki bara verið hepp- in,“ segir Elínrós og heldur áfram: „Ég hafði samband við Ástu Dís en ég hef lengi fylgst með því sem hún er að gera, hún er kona sem ég ber virðingu fyrir sem stjórnanda og ég hef mikla trú á því sem hún er að gera. Þetta finnst mér vera hugrekki að breyta svona stefnu Dutyfree Fashion búðarinnar og bjóða upp á íslenskt. Það er löngu orðið tímabært að íslensk hönnun sé aðgengileg, enda er svo margt spennandi að gerast hér á landi í þeim efnum. Við höfum löngum verið þekkt fyrir tónlistina okkar, hreina náttúru og nú er án efa kom- inn tími tískunnar líka. Ísland er góður staður til að byrja rekstur á, að undanskyldri veikri krónu, því þú ert í svo mikilli nálægð við viðskiptavininn og íslenskar konur, sem eru algerlega ófeimnar við að vera þær sjálfar og segja þér hvað sé gott og hvað ekki, sem ég kann vel að meta,“ sagði Elínrós að lokum. „Margt spennandi að gerast í íslenskri hönnun“

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.