Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 9
• Á gangi í mannmergðinni í New York.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir er einhver reynd-
asti og vinsælasti sjónvarpsmaður landsins.
Hún stendur nú á tímamótum í lífi sínu og
ræðir hér í einlægu viðtali um störf sín og
lífsskoðanir. Hún kynnir stórmerkilega út-
komu úr rannsókn sinni á stöðu kvenna í
íslenskum sjónvarpsfréttum og hefur sitt-
hvað að segja um jafnréttismál, fjölmiðla og
margt fleira.
Við Sigrún mæltum okkur mót á 51. stræti
við Lexington á Manhattan í New York. Ys
og erill borgarlífsins var í hámarki enda
Þakkargjörðardagur degi fyrr og þá er aldrei
meira verslað í borginni - einskonar Þorláks-
messa þeirra Bandaríkjamanna stendur yfir.
Aðstæðurnar eru vel við hæfi þegar Sigrún
Stefánsdóttir á í hlut; spenna, hraði og krefj-
andi tímaáætlanir. Hún sjálf á hraðferð frá
Minnesota á leið til íslands þar sem hennar
annað heimili er.
„Ég hef eiginlega fundið mér nýjan titil,"
segir hún þegar við rekumst á í lobbýinu á
Summit hótelinu og hefjum vonlitla leit að
rólegu afdrepi fyrir viðtalið. „Ég kalla mig
förukonu. Ég þekkti eitt sinn síðustu föru-
konuna á íslandi norður í Svarfaðardal, en
þetta orð hefur nánast dáið út því flökku-
kerlingar eru ekki til lengur.
Ég bý bæði í Reykjavík og í Minneapolis
og reyni svo að deila lífi mínu niður á þessa
tvo staði.“
í Bandaríkjunum eru slíkir kallaðir
„commuters“; hjón í krefjandi störfum, búa
á sitt hvorum staðnum og þeysast svo á milli
þegar frítími gefst. „Þetta er að verða við-
tekin venja héma,“ segir Sigrún, „og heima á
íslandi eiga margir mjög erfitt með að skilja
að svona nokkuð geti gengið til frambúðar.
Eiginmaður minn, Dr. Dean Abrahamson,
starfar í Minneapolis en ég hef ekki haft
áhuga á að festa rætur hér. Ég er svo mikill
íslendingur í mér að ég tími hreinlega ekki að
fara að vinna við fjölmiðlun í Bandaríkjun-
um þó að Dean hafi reyndar rætt þann
möguleika.“
Á þeytingi milli heimsálfa
35 ára að aldri dreif Sigrún sig í háskólanám
til Minnesota í Bandaríkjunum og lauk BA-
prófi í fjölmiðlafræði á helmingi styttri tíma
en venja er á þeim bæ. Þetta var á árunum
1983 og 1984 og á þeim tíma sem síðan er
liðinn hefur hún ýmist verið hér á íslandi við
fréttamennsku og kennt fjölmiðlafræði við
Háskóla íslands eða haldið sig af kappi við
áframhaldandi nám. í maí á þessu ári varði
hún svo doktorsritgerð sína við Háskólann í
Minnesota. í ritgerðinni gerir Sigrún saman-
burð á notkun og uppbyggingu skólasjón-
varps í Danmörku og í Kentucky-fylki í
Bandaríkjunum og fjallar um það hvemig
reynslan af notkun þessara tveggja sjón-
varpskerfa megi nýtast við íslenskar að-
stæður.
Það var í Minnesota sem Sigrún kynntist
núverandi eiginmanni sínum. Hann starfar
sem prófessor við Hubert Humphrey stofn-
unina í Háskólanum í Minnesota. Hann er
læknir og eðlisfræðingur að mennt og er
virtur sérfræðingur hvað varðar uppbygg-
ingu kjarnorkuvera og áhrif þeirra en er
reyndar mikill andstæðingur nýtingu kjam-
9